25.04.1949
Neðri deild: 92. fundur, 68. löggjafarþing.
Sjá dálk 1902 í B-deild Alþingistíðinda. (3120)
186. mál, eyðing refa og minka
Jörundur Brynjólfsson:
Herra forseti. Við 1. umr. þessa máls var af hálfu hv. landbn. gerð nokkur grein fyrir þessu máli. — Það er síður en svo, að ég hafi nokkuð við það að athuga, að upp séu tekin ný ákvæði og endurbætt ákvæði fyrri laga um útrýmingu refa og þá eitthvað ákveðið um útrýmingu villiminka. Það er sannarlega þess vert, að reynt sé að ganga sem bezt fram í því sem hægt er að stemma stigu fyrir útbreiðslu þessara skaðræðisdýra og koma í veg fyrir það tjón, sem þau valda, ef þau ná að breiðast mikið út. — Um ákvæði frv. viðkomandi útrýmingu refanna ætla ég ekki að fjölyrða, og þar sem þetta er 2. umr. málsins, ætla ég ekki heldur að fjölyrða neitt um málið í heild sinni, heldur víkja örfáum orðum að einstökum gr. þess.
Ég býst við, að það sé meining hv. landbn., að í þessu frv. eigi að felast afgreiðsla á frv. okkar hv. þm. Borgf. (PO), sem var meðflm. minn að frv. um útrýmingu villiminka og um bann við minkaeldi. Því miður hefur hv. landbn. samkv. þessu frv. ekki getað fallizt á að banna algerlega minkaeldi. Eftir till. hennar samkv. IV. kafla þessa frv., 13. gr., þá er það á valdi bæjar- og sveitarfélaga, hvort leyft verður í umdæminu eldi minka. Ég fyrir mitt leyti get látið mér mjög í léttu rúmi liggja, þó að löggjöfin sé byggð á þessum grundvelli hvað snertir sveitarfélögin, því að fyrir fram er ég alveg sannfærður um það, að ekki ein einasta sýslunefnd eða sveitarstjórn mundi innan síns umdæmis leyfa minkaeldi. Það kunnugt er orðið um landið, hvert tjón villiminkurinn gerir, að ekki þarf að fjölyrða um það, að það er ekki til neitt öryggi fyrir því af hálfu þeirra, sem þetta dýraeldi stunda, að minkar sleppi ekki úr haldi. Engri af þeim þjóðum, sem þessa dýrarækt hafa, hefur tekizt að hafa þessi dýr svo í haldi, að þau hafi ekki sloppið út, meira og minna. Og t.d. í Noregi og Svíþjóð valda þessi dýr stórtjóni, og er ekki séð fyrir endann á því, og hér er sama plágan í uppsiglingu. Nú ætla ég ekki að þessu sinni að fara langt út í það atriði, því að það á ekki við, þar sem við 2. umr. á að ræða einstakar gr., en ég geri ráð fyrir að víkja nánar að þessari hlið málsins við 3. umr.
Mér þykir það miklu miður, að ætlazt er til þess hér, að bæjarstjórnirnar ráði þessu, hvort minkaeldi skuli leyft í þeirra umdæmi. Vel má vera, að bæjarstjórnir þessa lands setji sig svo í spor þeirra manna, sem eiga mikið í hættu, ef þessi dýr sleppa og auka kyn sitt og haldast villt við í landinu, að þær af þeim ástæðum leyfi ekki minkaeldi hjá sér í umdæminu hver fyrir sig. En það er, að mér finnst, samt sem áður fullmikið treyst í þessum till. á það, að þeir menn, sem með stjórnarvöld bæjanna fara, setji sig svo inn í þetta mál sem skyldi, þar sem það er nokkuð fjarstætt þeim og þeir hafa tæplega nægan kunnugleika á þessum málum, þegar þeir taka sínar ákvarðanir um það, hvort leyfa skuli eldi minkanna eða ekki. Mér finnst fullmikið treyst á þetta til þess, að það sé rétt að eiga þetta undir þeirra áliti. Stjórnarvöld bæjanna eiga líklega í flestum tilfellum annaðhvort ekkert í hættu eða þá mjög lítið, þó að minkar sleppi úr haldi og verði villtir. Það eru aðrir þegnar landsins, sem þar eiga allt á hættu.
Í 14. gr. frv. er talað um fyrirkomulag við útrýmingu og hvernig greiða skuli kostnaðinn, sem af útrýmingu hvorra tveggja þessara dýrategunda leiðir. Fjallskilasjóðir eiga að greiða kostnaðinn fyrst, en svo eiga þeir að fá endurgreitt úr sýslusjóði einn þriðja hluta og úr ríkissjóði einn þriðja hluta kostnaðarins. Hvað snertir útrýmingu refanna, þá er þetta fyrirkomulag út af fyrir sig; ég hef ekki mikið að athuga við það. En það gegnir nokkuð öðru máli með útrýmingu villiminkanna hvað þetta ákvæði snertir, vegna þess að fyrir útrýmingu þeirra verður miklu meira haft. Og tjón það, sem þau dýr valda, ef ekki heppnast að uppræta þau, mun sýna sig, að verður drjúgt hér eins og annars staðar og það miklu meira, sem þarf til þess að eyða þeim dýrum. Ég ætla ekki að fara ýtarlegar út í það að þessu sinni. Við 3. umr. mun ég koma að því hirðisbréfi, sem loðdýraræktarráðunauturinn hefur sent landbn., og bera það saman við reynslu annarra þjóða í þeim efnum og bregða upp nokkurri mynd af því, hvaða þekkingu sá embættismaður hefur á þessum málum, því að ég ætla honum ekki annað en að hann hafi sagt það, sem hann vissi réttast, en því miður hefur hann ekki nægilegan kunnugleika á málinu, því að annars mundu till. hans hafa orðið allt aðrar. (FJ: Eru ekki friðunarákvæði í 5. gr.?) Það má nú kannske segja. En þetta á nú aðeins við refina, þar sem stendur svo, með leyfi hæstv. forseta: „Óheimilt er öðrum en þeim, sem til þess eru ráðnir samkv. 4. gr., að vinna greni eða taka yrðlinga, nema svo hafi staðið á, að ekki hafi náðst til skotmanns í tæka tíð.“ En þetta er nú ekki sett fram sem friðunarákvæði hjá hv. landbn., þó að það kunni fyrir sumum að líta svo út við fyrstu sýn, og þetta er ekki alveg út í loftið. Það hagar sem sé víða svo til við greni, að það er illt að vinna þau nema hafa nokkur tækifæri til þess og góð tök á því. Og þá er forðazt, þar sem menn hafa ekki slíkan útbúnað, að koma nærri greninu, til þess að dýrið styggist ekki frá, þar til nauðsynleg tæki eru til staðar til þess að vinna grenið. Það mun vera vegna þess, sem þetta ákvæði er sett inn í frv. af hv. landbn. og er dálítið sérstaks eðlis. En e.t.v. mætti setja þetta ljósar fram, svo að menn misskildu ekki ákvæðið.
Ég geri ráð fyrir, að við hv. þm. Borgf. freistumst til þess að bera nú fram brtt. við þetta frv. við 3. umr., til þess að gera tilraun til að gera frv. þannig úr garði hvað snertir útrýmingu minkanna, að leitazt verði við að framkvæma hana eftir beztu getu. — Ég ætla svo ekki að þessu sinni að gera málið frekar að umtalsefni. En ég vil beina því til hv. frsm., hvort það sé ekki svo að skilja, að þetta frv. eigi að vera afgreiðsla á okkar máli, hv. þm. Borgf. og mín um útrýmingu minka. Ég hef tekið það svo.