07.04.1949
Neðri deild: 87. fundur, 68. löggjafarþing.
Sjá dálk 2100 í B-deild Alþingistíðinda. (3155)

Málshöfðunarleyfi gegn þingmanni

Forseti (BG) :

Forseta deildarinnar hefur borizt svo hljóðandi bréf:

„Föstudaginn 1. þ. m. birtist grein á annarri síðu Morgunblaðsins, og er hún talin vera ræða, er Ólafur Thors alþingismaður hafði flutt á Alþingi daginn áður, fimmtudaginn 31. marz. Í grein þessari eru meðal annars eftirfarandi ummæli:

„Í marga mánuði hafa kommúnistar reynt að æsa fólkið til ódæða. Oft hafa þeir beitt fyrir sig mönnum eins og séra Sigurbirni, Klemenz Tryggvasyni, Pálma Hannessyni, Einari Ól. Sveinssyni og Gylfa Gíslasyni. — Þessir fuglar hafa verið látnir ljúga því að landslýðnum, að verið væri að selja landið . . . Ef eitthvað hefði skeð, ef eitthvað skeður, þá eru það þessir menn, sem ábyrgðina bera og til saka skulu fá að svara, og svo auðvitað þeir, sem þeim stjórna, sjálfir leiðtogar kommúnistanna.“

Alþingismaðurinn hefur ekki leiðrétt þessi ummæli, og verður því að líta svo á, að þau séu rétt eftir höfð. Er hér um að ræða rakalausar staðhæfingar og mjög meiðandi ummæli í okkar garð, sem við teljum nauðsynlegt að fá hnekkt. Með skírskotun til 49. gr. stjórnarskrár Íslands leyfum við okkur því að fara þess á leit við háttvirta neðri deild Alþingis, að hún veiti heimild til þess, að við megum höfða mál út af ummælum þessum á hendur Ólafi Thors alþingismanni.

Reykjavík, 6. apríl 1949.

Einar Ól. Sveinsson, Gylfi Þ. Gíslason, Pálmi Hannesson, Klemenz Tryggvason, Sigurbjörn Einarsson.

Til forseta neðri deildar Alþingis.“