08.04.1949
Neðri deild: 88. fundur, 68. löggjafarþing.
Sjá dálk 2102 í B-deild Alþingistíðinda. (3159)

Málshöfðunarleyfi gegn þingmanni

Ólafur Thors:

Herra forseti. Ég vil taka það fram, að ég hef ekki séð þetta blað, sem hv. 4. þm. Reykv. var að rétta mér og hann segir, að sé ræða mín, skrifuð af þingskrifara. Ég vil beina þeirri fsp. til hv. 4. þm. Reykv., hvort hann vill standa við allar ræður sínar eins og þær koma frá þingskrifurum. Ef hann vill gera það, þá skal ég standa við mínar ræður. Það, sem hefur verið sagt í blöðunum, er rétt eftir haft, og ég vil taka það fram, að þar sem ég hef endurtekið þessi ummæli utan þings, þá geta þessir menn sótt mig til saka, án þess að deildin þurfi að veita nokkra undanþágu, og einmitt á það lagði ég áherzlu, svo að deildin þyrfti ekki að upphefja þinghelgina, því að ég álít, að það sé óheppilegt, og ef allt ætti að tína til, sem hægt væri að höfða meiðyrðamál út af, þá mundi það verða æði margt. Hv. 4. landsk. þm. sagði t. d., að ég hefði gefið merki út um gluggann um daginn, annaðhvort til þess að ráðizt yrði á fólkið eða til þess að ráðizt yrði á þingið. Þá situr einnig við hlið mér annar þm., sem hefur látið sér ýmislegt um munn fara í þessu sambandi, svo að ég nú ekki nefni hina orðvöru fröken, sem situr mér hér á hægri hönd. En með ummælum mínum utan þingsins vildi ég leysa þm. undan þeim vanda að upphefja þinghelgina, og ég hika ekki við að endurtaka þau orð, sem ég hef sagt um þetta mál. Ég get ekki ákveðið, hvað deildin gerir í þessu máli, en ef til þess kemur, að gengið verður til atkvæða um þetta mál, þá skora ég á alla flokksmenn mína að samþykkja það, að þinghelgin verði upp hafin. Ég kæri mig ekki um neina hlífð af hálfu þinghelginnar.