09.04.1949
Neðri deild: 89. fundur, 68. löggjafarþing.
Sjá dálk 2108 í B-deild Alþingistíðinda. (3166)
Málshöfðunarleyfi gegn þingmanni
Gylfi Þ. Gíslason:
Herra forseti. Ég vil aðeins svara ræðu þm. S-Þ. nokkrum orðum. — Það er algerlega utangarna hjá þessum hv. þm. að ræða þetta mál eins og ég eigi hér einn hlut að máli. Eins og oft hefur verið tekið fram, þá eru bréfritararnir fimm, og ég er sá eini af þeim, sem sæti á hér á Alþingi. Ég get lýst því yfir, að ef málið snerti mig einvörðungu, þá hefði ekki til þessarar óskar komið, því að í slíku tilfelli tel ég, eins og þm. S-Þ., að þingið sjálft sé vettvangur, sem þess háttar mál eiga að ræðast á, og ég hefði vel treyst mér til að eiga orðaskipti um slíkt mál við þm. G-K. En hér er bara um allt annað að ræða, þar sem fjórir utanþingsmenn eiga hlut að máli, og það er þess vegna, sem málið er alveg óvenjulegt í okkar þingsögu. Ég hygg, að það sé algert einsdæmi, bæði hér og þó að víðar væri leitað, að einn áhrifamesti maður Alþingis ávarpi og ræði eins um utanþingsmenn á þingi eins og þm. G-K. gerði hér, og það án þess að forseti svo mikið sem hringi. Það hefur áreiðanlega oft verið hringt á þm. hér á Alþingi af þýðingarminna tilefni en hér um ræðir, einkum þegar þess er gætt, að hlut eiga að máli fjórir menn, sem gegna mjög mikilvægum embættum í þjóðfélaginu. Einn er rektor menntaskólans í Reykjavík, annar einn bezti fræðimaður okkar í íslenzkum fræðum og prófessor við háskólann, sá þriðji mjög mikils metinn guðfræðingur og sá fjórði hagfræðingur Landsbankans. Ég leyfi mér að fullyrða, að það eru látalæti, þegar þm. þykjast vera undrandi yfir, að þessir menn láti ekki bjóða sér ómótmælt, að sagt sé á Alþingi, að þeir hafi æst til skrílsuppþota og það kunni að vera, að þeir hafi ekki ætlað að stofna til manndrápa. Slík undrun er yfirdrepsskapur, sem ekki liggur alvara á bak við. Það er allt annað mál, þó að stjórnmálamenn sætti sig við hörð ummæli og svívirðingar.
Spurt hefur verið um, hvers vegna við tökum ekki beiðni okkar aftur, þegar umræddur þm. hefur endurtekið ummæli sín utan þinghelginnar. Ég hef áður rakið ástæðurnar fyrir því og sé ekki ástæðu til að endurtaka þær, nema aðeins það atriði, að við viljum fá þingummælin dæmd ómerk. Við óskum ekki eftir málssókn vegna blaðaummæla eða að fá ummæli blaða ómerkt, þó að til þess væru ótal tækifæri, að minnsta kosti fyrir suma okkar, því að þau tökum við ekki alvarlega. Það er skoðun gagnmerkra lögfræðinga, að það sé engan veginn víst, að dómur félli á sama hátt um ummæli í þingræðu, sem leyft væri að kæra, og ummæli í blaði, þótt sömu ummæli væru. Meðferð málsins fyrir dómstólunum yrði nokkuð önnur, ef málið er rekið út úr þingummælunum, en ef það er rekið út úr blaðaummælum. Nú er það að vísu ekki fullvíst, hvað sagt hefur verið. Þingskrifarinn hefur skrifað annað eftir hv. þm. en hann hefur sjálfur látið eftir sér hafa í Morgunblaðinu. Ég hef ekki það gott minni, og ég geri ráð fyrir, að enginn hafi það, að ég vilji staðhæfa, hvað hv. þm. sagði, og hann hefur að sjálfsögðu rétt til þess að leiðrétta ræðu þingskrifarans, eins og hann telur í fyllstu, samræmi við það, sem hann hefur sagt, og kemur mér ekki í hug að vefengja þann rétt hv. þm. En mér vitanlega hefur hann ekki enn leiðrétt ræðu sína og ekki heldur látið koma fram, hvað hann sagði, og meðan hann hefur ekki gert það, liggur ekki fullkomlega ljóst fyrir, hvaða ummæli raunverulega hafa fallið. Það mundi líka vera atriði, sem dómstólarnir þyrftu að taka til athugunar, hver ummælin hafa verið.
Út frá því, sem hv. þm. S-Þ. sagði, að það væri viðurhlutamikið að byrja á málaferlum út af þingummælum, þá er það vissulega rétt, en ég tel, að fimmmenningarnir beri ekki ábyrgð þar á. Ég tel, að ábyrgðin hvíli á hv. þm. G-K., því að hann gerði sig sekan um að viðhafa ummæli, sem ómögulegt er fyrir utanþingsmenn að þegja við, með sérstöku tilliti til þeirrar stöðu og embætta, sem þeir menn gegna, og einnig með tilliti til þess, að sumir þeirra hafa engin afskipti haft af stjórnmálum almennt. Ég verð því að vísa þeirri ábyrgð af okkur fimmmenningunum.
Um fordæmi vil ég segja, að fordæmið er þegar til, því að í það eina skipti, sem farið hefur verið fram á slíkt leyfi, hefur leyfið verið veitt, en ég vil skjóta því til hv. þm. Snæf., að það, sem hann og hv. þm. Ísaf. stinga upp á, er nýtt. Það hefur aldrei komið fyrir, að slíkri beiðni hafi verið vísað frá með rökstuddri dagskrá. Auðvitað hefði Jón Magnússon getað farið að eins og hv. þm. G-K. og boðizt til að endurtaka ummælin utan þings, eins og hv. þm. G-K. gerði. En hann taldi ekki ástæðu til þess, heldur óskaði eftir, að d. leyfði, að mál yrði höfðað, og það hygg ég réttara og drengilegra fyrir hv. þm. G-K. að gera. Hann hefur að vísu farið fram á, að d. leyfði málshöfðunina. Ég met það við hann. En einn helzti flokksmaður hans hefur ekki tekið tillit til þeirrar óskar, og leggur til, að málinu verði vísað frá. Verð ég að láta í ljós undrun yfir því, að hv. þm. skuli ekki taka meira tillit til óska formanns flokks síns, en hann virðist gera með því að bera fram þessa dagskrá. Hitt teldi ég í alla staði eðlilegast, að fara eftir ósk hv. þm. G-K. og leyfa málshöfðunina. Þá er fylgt fordæmi, sem fyrir hendi er frá Jóni Magnússyni, en hann var í útvarpinu í gær af þeim manni, sem lengst hefur átt sæti á þingi, nefndur einn mesti vitmaður, sem setið hefði á Alþingi. Ég hygg, að sá dómur sé réttur, hann hafi vissulega verið mikill vitmaður og góður maður. Það er því engin skömm fyrir d. að fylgja hans fordæmi og leyfa þessa málshöfðunarbeiðni. Ég vil því segja, andstætt því, sem hv. þm. S-Þ. sagði, að það sé hættulegt fordæmi að neita um slíka beiðni. Hvað gæti ekki á eftir komið, ef menn gætu viðhaft alls konar ummæli og skákað í því skjóli, að neitað yrði um leyfi til málshöfðunar? Hitt skal ég játa, að það má of mikið að því gera að veita slík leyfi. Það má misnota þennan rétt eins og allt slíkt. En d. á að beita skynsemi og skera úr, hvenær eigi að veita leyfi og hvenær ekki.
Að síðustu vil ég taka þetta fram út af því, sem hv. þm. S-Þ. sagði, að við bærum fulla ábyrgð á þeim ólátum, sem hefðu átt sér stað fyrir utan þinghúsið 30. marz: Mér skilst, að rökin séu þau, að við höfum verið sammála Sósfl. um afgreiðslu þess máls, sem hér var um að ræða. En ef fimmmenningarnir og við 3 þm., sem greiddum atkv. eins og Sósfl. í þessu máli, eigum að bera ábyrgð á gerðum Sósfl. fyrir það, þá vil ég minna hann á, hversu oft hann hefur sjálfur greitt atkv. eins og Sósfl. Hvað gerði þessi hv. þm. í sambandsslitamálinu? Var hann ekki sammála kommúnistaflokknum um sambandsslitin við Dani? Það gekk ekki hnífurinn milli hv. þm. S-Þ. og hv. þm. G-K. og Sósfl. og verulegs hluta Framsfl. Aldrei hefur mér dottið í hug svo óheiðarlegur málflutningur að halda fram, að þessir menn beri ábyrgð á því, sem Sósfl. skrifaði um það mál. Og hvað á að segja um þá, sem hafa setið árum saman með kommúnistum í ríkisstj.? Eina ríkisstj., sem kommúnistar hafa verið í hér á landi, var undir forustu hv. þm. G-K. Bar hann þá ekki ábyrgð á öllu, sem kommúnistar sögðu og gerðu á þeim árum? Það skyldi nú ekki vera, að þeir hafi einhvern tíma kastað grjóti, meðan hv. þm. G-K. var forsætisráðherra? Hvernig var það við Sjálfstæðishúsið, þegar ráðizt var á hæstv. núverandi utanrrh.? Mér kemur ekki til hugar að halda fram, að hv. þm. G-K. beri ábyrgð á þeim aðgerðum, þótt hann hafi þá verið sammála kommúnistum um marga hluti og mikilvæga. Engu að síður virðist hann og fleiri telja sér sóma að því að bera það á okkur, að við berum ábyrgð á því, sem gerðist hér 30. marz. Þetta hljómar hlægilega. Sjálfstfl. og Sósfl. hafa oft greitt saman atkv. í mikilsverðum málum, og það væri fáránlegt að ætla þar með að gera Sjálfstfl. ábyrgan fyrir gerðum Sósfl. — Það er ekki laust við, að það sé spaugilegt að heyra hv. þm. S-Þ. beita þessum rökum, einmitt vegna þess, hversu oft hann sjálfur hefur verið talinn faðir íslenzks kommúnisma og bera meiri ábyrgð á kommúnistaflokknum en nokkur annar. Í ótal skipti hefur hann verið kallaður faðir kommúnismans á Íslandi í blöðum Sjálfstfl., einungis af því að í sumum málum hafði hann sömu afstöðu og kommúnistar. Síðan hefur hann þurft að eyða verulegum hluta af sinni starfsorku til að afsanna, að hann væri kommúnisti, þótt hann hafi að vísu einhvern tíma haft skoðanir, sem kommúnistar hafa líka aðhyllzt.
Þá er einnig spaugilegt að heyra formann Sjálfstfl. halda því fram, að við Pálmi Hannesson og Einar Ól. Sveinsson berum ábyrgð á kommúnistum. Ég hef aldrei verið kommúnisti og verð það aldrei. Ég hef aldrei sagt eða skrifað nokkurt orð, sem getur talizt til málsbóta fyrir kommúnista eða hefur lyft undir þá og flokk þeirra. En sama getur formaður Sjálfstfl. ekki sagt, því að hann er sá maður utan kommúnistafl., sem mest hefur hossað þeim flokki og bezt tækifæri gefið honum til áhrifa. Eigi því nokkur maður utan kommúnistafl. skilið að vera kallaður faðir kommúnismans á Íslandi, þá er það þessi hv. þm., og er þó e. t. v. alveg ástæðulaust að vera að hreinsa hv. þm. S-Þ. af sinni ábyrgð. ( ÓTh: Þetta getur maður kallað, að sé ný sköpunarsaga með tvo feður.) Hún stenzt í þessu tilfelli. Sósfl. getur rakið upphaf sitt sumpart til hv. þm. S-Þ. og völd sín og áhrif að verulegu leyti til hv. þm. G-K. og flokks hans, því að áhrifatímabil kommúnistaflokksins byrjar 1937–38 fyrir tilstilli Sjálfstfl., þegar hann reynir að veikja Alþfl. og lyfta kommúnistum upp í verkalýðssamtökunum. Þá er það, sem kommúnistar ná fyrst áhrifum í þjóðfélaginu. Síðan eflast þeir á Alþingi við kjördæmaskipunarbreytinguna. En svo ná þeir hátindi valda sinna með því að taka sæti í ríkisstjórn. Og fyrir tilverknað hvers? Hv. þm. G-K. Hann hélt þeim undir sínum verndarvæng í tvö ár. Þá var aðalblómaskeið kommúnismans á Íslandi. Þá höfðu íslenzkir kommúnistar meiri völd og áhrif en nokkurn tíma fyrr eða síðar. Því hefur verið haldið fram, að á þessu tímabili hafi kommúnistar gert óskaplega margt illt af sér. Nú er sagt, að að baki þeim liggi hreinn glæpaferill. En þessi glæpaferill var genginn undir forustu og leiðsögn hv. þm. G-K., fyrrv. hæstv. forsrh., Ólafs Thors. Ég verð því að segja, að það er næsta spaugilegt, þegar þessir menn, hv. þm. S-Þ. sem fóstraði kommúnismann í æsku, að sögn Morgunblaðsins, og hv. þm. G-K., sem kom honum til vegs og valda á Íslandi með því að lyfta undir hann í verkalýðshreyfingunni og koma honum inn í ríkisstj., eru að reyna að koma á mig og Einar Ól. Sveinsson og hina, að við berum ábyrgð á því, sem kommúnistar hafa sagt og gert.
Ég vil síðan leyfa mér að taka sterklega undir þau tilmæli hv. þm. G-K. til d., að hún leyfi þessa málshöfðun.