09.04.1949
Neðri deild: 89. fundur, 68. löggjafarþing.
Sjá dálk 2119 í B-deild Alþingistíðinda. (3168)

Málshöfðunarleyfi gegn þingmanni

Jónas Jónsson:

Herra forseti. Ég álít nauðsyn fyrir Alþingi að líta á þetta mál í sambandi við aðstöðu þingsins í heild sinni, og hv. 4. þm. Reykv. hrakti ekki rök mín, að þegar ofbeldi er beitt í lýðræðislöndunum, þá er það, sem liggur á, að laga sig eftir kringumstæðunum. Mér þykir rétt að benda á atvik úr þessum sal í sambandi við þetta mál. Það er vitað, að í þingræðislöndum, þá er gert ráð fyrir því, að forseti hafi algert vald yfir umræðum, og í Englandi, móðurlandi parlamentarismans, er það venja, að ef einhver þingmaður hagar sér óþinglega, þá vísar forseti honum af þingi, og hver einstakur þingmaður hlýðir því, ef svo ber undir. Nú vitum við, að 30. marz gerast þau undur, að einn af helztu þm. sósíalista, form. þingflokks þeirra, neitar að hlýða forseta. Hann tekur það beinlínis fram, að hann muni hafa úrskurð forseta að engu og muni tala eins lengi og hann vilji. Þannig verður þessi maður, sem annars er kurteis, þegar hann kemur fram sem byltingarmaður, og það er ekki grundvallareðlismunur á því að brjóta lög og reglur þingsins og brjóta rúður og hús og særa menn með grjótkasti. Fræðilega var því ekkert til fyrirstöðu, að maðurinn talaði í þrjá klukkutíma — annað eins hefur hann gert enda þótt forseti ætlaði að ljúka umr. á þrem tímum. Það varð þó úr, að hann hætti eftir nokkuð langa stund. Þessi maður hafði þá raunverulega gert byltingu. Það hefur aldrei áður þekkzt, að menn óhlýðnuðust forseta svo. Ég heyrði þau orð falla, að eðlilegt væri, að forseti beitti valdi til þess að láta þm. hætta að tala, en fyrir því finnst enginn stafur í þingsköpum. Það hefði þó náttúrlega átt að gera strax og hann braut reglur þingsins og láta lögregluna fjarlægja hann, þótt vafalaust sé, að ýmsir hefðu kallað það óhæfu. En allt um það er það eftirtektarverð lexía, þegar einn hv. þm. lýsir því yfir, að hann neiti að hlýða forseta. Kommúnistar sýndu þarna, hvað þeir hugsa sér og telja sér fært að gera. Ég veit ekki, hvort þetta er nokkur furða, en það er nú þegar vitað, að annaðhvort verður forseti þingsins að gera, að láta þessa sökudólga og þeirra handbendi vaða hér uppi með frekju, eins og þarna varð raun á, eða að leita til lögreglunnar um að láta þá út úr þingsölunum. Það verður að gera ráð fyrir þessu valdi forseta, ef þingið vill ekki láta fara með sig eins og nazistar fóru með þýzka þingið.

Hv. 4. þm. Reykv. vill halda því fram, að hann og hans lið hafi ekki æst til ófriðar. Það er nú erfitt að segja, að hve miklu leyti þeir atburðir, sem hér urðu 30. marz, hafa verið þjóðvarnarmönnum að kenna. En ég skal segja hér eitt lítið dæmi um það, hverju áróður þeirra og kommúnista hafði fengið áorkað. Ég þurfti að fá bíl til að flytja mig eitthvað um bæinn daginn eftir í ein tvö skipti. Ég þekkti ekki hina myndarlegu bílstjóra, en annar þeirra fór að tala um atburðina og sagði m. a.: „Ég var vestur í bæ í gær, og kom þá kommúnisti þar inn í kjallara, þar sem öldruð kona var að þvo þvott, og sagði við hana: „Þú verður að koma niður á Austurvöll og hafa grjót í vasanum.“ Og fræin, sem sáð hafði verið í hennar sál, höfðu borið þann ávöxt, að hún hlýddi þessu.“ — Hinn bílstjórinn hafði ekið innan úr Hlíðum ungum manni. Hann var með böggul í hvítu bréfi, og án þess að bílstjórinn athugaði það, hélt hann fyrst, að í bögglinum væru kartöflur, en það kom í ljós, að það voru steinar. — Þarna hef ég þá frá áreiðanlegum sjónarvottum tvö dæmi — um gömlu konuna, sem er heimtuð frá vinnu sinni til þess að taka þátt í árás á þinghúsið, og um unga manninn í Hlíðunum, sem reiddi grjót í böggli. Og við höfum séð þessa steina, bæði hafa þeir skaddað þingmenn og fyrst og fremst utanþingsmenn, og það vita allir, að á þeim á sökina orðbragðið í Þjóðviljanum og Þjóðvörn, og hv. 4. þm. Reykv. getur ekki neitað því, að hann sé einn af þjóðvarnarmönnum og beri því sína ábyrgð, hann er talinn þar með, þótt nafn hans sé ekki á blaðinu. En hve Þjóðvörn er sniðin eftir Þjóðviljanum, kom e. t. v. hvað greinilegast í ljós núna eftir slaginn. Þjóðvörn réðst einkum á hæstv. menntmrh. og bar hann gömlum og nýjum sökum, m. a. þeim, að hann hefði lánað ofbeldismönnum stofu hér niðri í húsinu. Frekjan hefur aldrei verið meiri hjá Þjóðvörn heldur en núna eftir á, og vita þó allir, hvernig málflutningur hennar hefur verið í vetur.

Það væri nú ekkert á móti því, að benda þessum mönnum á það, að ef það er satt, sem þeir halda fram, að við höfum selt okkar land, þá er það jafnsatt um hin 10 ríkin, að þau hafa þá selt sig Bandaríkjunum, sem eru hinn sterki aðili í þessu bandalagi, en þar hefur aðild að bandalaginu yfirleitt alls staðar verið samþykkt með atkvæðum allra nema kommúnista eða manna, sem algerlega eru háðir þeim. Hvernig heldur hv. 4. þm. Reykv., að hann standi gagnvart þeirri staðreynd, að yfirleitt allur hinn menntaði heimur er í þessu bandalagi, sem nauðsyn hefur þótt að mynda vegna framkomu Rússa og til varnar gegn yfirgangi þeirra. Kommúnistarnir hér leyna því ekki, að flokkur þeirra sé á vegum Rússa. En um þjóðvarnarmenn er það að segja, að þeir þykjast ekki vera af þessu sauðahúsi, en eru það samt. Hv. 4. þm. Reykv. hefur eins og kommúnistarnir svívirt þetta mál, en það hefur fellt dóm yfir honum, og hann stendur miklu lægra en kommúnistarnir, sem köstuðu grjótinu; þeir þora þó að koma hreint fram og viðurkenna, að þeir séu handbendi Rússa. En hv. 4. þm. Reykv. sver fyrir það. En eftir að hann kom á þing, hefur hann skrifað greinar í kommúnistablaðið og staðið með þeim alltaf, bæði í flugvallarmálinu og núna. Þess vegna er það, að ég álit, að þd. verði að gæta að því að láta ekki þessa menn rjúfa þá helgi þingsins, sem sett hefur verið með fullum rétti og rökum viturra manna. Við höfum á Alþ. rétt til að gera þessa menn ábyrga fyrir hverjum steini, sem kastað hefur verið hér inn. Og það er því frekja á hæsta stigi hjá hv. 4. þm. Reykv. og hans nótum að vilja auðmýkja Alþ. enn meir og svívirða; því að ómögulegt er að líta á ósk hans öðruvísi en sem hliðstæða við steinkastið. Það á að opna Alþ. fyrir hinum mestu óbótamönnum, sem komið hafa fram gagnvart Alþ., því að aldrei hafa brigzlin um föðurlandssvik verið eins almenn og stöðug eins og nú af þessum mönnum og kommúnistum. Ég ræði þetta mál eingöngu frá sjónarmiði Alþ. sem alþm. Og ég tel algerlega rangt að slaka nokkuð á klónni gegn ofbeldinu, eins og hér er farið fram á, og mun því greiða atkvæði á móti þessu.

Hv. 4. þm. Reykv. vildi leiða rök að því, að þeir þjóðvarnarmenn stæðu ekki frekar í tengslum við kommúnista vegna sömu afstöðu til þessa máls heldur en ég, þar sem ég var með þeim í skilnaðarmálinu við Dani. Um þetta er nú það að segja, að kommúnistar höfðu þetta ekki að neinu höfuðmáli. Það var búið að vinna að þessu máli í heila öld af öðrum, þegar kommúnistar komust á Alþ., og það vorum við hv. þm. G-K., sem tókum síðan merkið upp í fullri alvöru og reyndum að gera okkar ýtrasta til þess að leysa málið. Þegar kommúnistar komu þarna inn, réðu þeir því sjálfir, það var þeirra mál, en þeir komu ekki fram sem neinir leiðandi menn. Hins vegar bar á því, að nokkrir leiðandi menn í Alþfl. voru linir í málinu, og kommúnistar höfðu gaman af að láta þá leiða skömm yfir flokkinn. — Annars er rétt í þessu sambandi að segja hér svolitla gamansögu. Pólitískur andstæðingur minn, Björn Kristjánsson, kom úr framboðsferð og hafði haldið fundi í 16 hreppum. Hann sagði þá þetta: „Ég hef sagt á 16 fundum, að Jónas Jónsson væri kommúnisti, og hann er kommúnisti.“ Þegar beitt er slíkum furðurökum, er nú ekki vandi að komast að niðurstöðum. Svo var það, að þegar ég hafði starfað nokkur ár að stjórnmálum og verið einn vetur á þingi, þá var ungur lærdómsmaður í Alþfl., Jón heitinn Thoroddsen, sem skrifaði nafnlausa grein um mig í Alþýðublaðið og sagði, að ég hefði gerzt svikari við verkalýðssamtökin og hefði nú tekið að mér að svíkja bændurna. Þetta gaf mér kærkomið tækifæri til að svara þessu í blaðagrein í eitt skipti fyrir öll, og ég komst þar m. a. svo að orði árið 1923: „Ég vil vinna með verkamönnum, ef þeir hlýða lögum og reglum, en ef þeir standa með byltingarstefnum, ætla ég að leyfa mér að standa við hlið Ólafs Thors.“ Þessi yfirlýsing mín um það, að ég mundi, ef í það færi, standa með svartasta íhaldinu, sem þá var í landinu, var gerð til þess að gera alveg hreint fyrir mínum dyrum. Svo var það 1936, þegar „þriggja mánaða víxillinn“ var á döfinni og heimtað var af okkur að ganga inn á byltingarprógramm, að þá sagði ég og við allir, að þetta vildum við ekki. Það gengur þannig heimsku næst að bera saman afstöðu mína og svo aftur þjóðvarnarmanna til kommúnista. Ég hef markað glöggt afstöðu mína til þeirra. Og þó að mér þyki hv. 2. þm. Reykv. og félagar hans mjög þóknanlegir menn að tala við, þá er það lífsviðhorfið, sem okkur skilur.

En eins og hv. 4. þm. Reykv. getur ekki hreinsað sig af þjóðvarnarmönnum, eins geta þeir ekki hreinsað sig af kommúnistum. Hv. þm. man e. t. v., að kommúnistaflokkurinn sendi þá Sigurð Þórarinsson jarðfræðing og Jónas Haralz hagfræðing til þess að koma þjóðvarnarhreyfingunni af stað, og þegar það var búið, var hún látin halda áfram. Þjóðvörn var sköpuð af kommúnistum til að bæla Framsfl. fyrst og fremst. Það sést bezt á því, að eftir atburðina 30. marz ræðst blaðið ekki á Sjálfstfl. eða Alþfl., heldur á framsókn og menntmrh. fyrst og fremst, af því að sá flokkur hafði seinna tekið afstöðu, og gremja þeirra var því meiri sem þeir vonuðust eftir því um tíma, að þeir gætu afvegaleitt flokkinn. Þetta hlýtur hv. 4. þm. Reykv. að vita allt saman, og ég vona, að hann fari ekki svo í sæng í kvöld, að honum verði ekki ljóst, að hann verður aldrei hreinn í þessu máli.

Þá vil ég benda á eitt atriði, sem sýnir glöggt, hve langt hefur verið gengið í ofstækinu í málflutningi. Seinni daginn, sem hið fræga grjótkast stóð yfir, var forsrh. að ganga út úr þinghúsinu og heim til sín, og þá stendur þar ung stúlka, 15 ára gömul, fyrir utan þinghúsdyrnar, reiðubúin til að berja hann, og gerir það af ráðnum hug. Mér er sagt, að þetta sé greindasta stúlka, hversdagsprúð, og stendur að henni ágætt fólk, sem mér er kunnugt. Hvernig halda menn nú að þetta geti komið fyrir, að 15 ára stúlka af góðu heimili komi þannig fyrir fram ákveðin í að berja og svívirða æðsta mann ríkisstj., sem forustu hafði haft í þessu máli? Sýnir þetta ekki hvað bezt eðli hinna eitruðu æsingaskrifa? — Og hvað gerist svo? Á sjálfu Alþ. og í blöðunum eru tekin hin fegurstu dæmi til að fegra þennan verknað og stúlkunni líkt við hina frægustu kvenskörunga. Af Þjóðviljamönnum og þjóðvarnarmönnum er reynt að sýna henni mjög mörg virðingarteikn, sem hún hefði átt skilið fyrir allt annað en þennan glæp. — Og hvað verður svo upp á teningnum, þegar hún kemur í skólann? Hún er í Gagnfræðaskóla Vesturbæjar, en þar eru, að því er mér er talið, margir kommúnistar í kennaraliðinu, og þegar hún kemur í skólann, er henni sýndur þar opinber sómi og hátíðlega tekið á móti henni í sumum bekkjunum fyrir það að hún hefur svívirt forsætisráðherra landsins. Mér finnst nokkuð skorta á skörungsskap hjá hæstv. menntmrh. að hann skuli ekki hafa látið athuga þetta. Án þess að ég vilji gera nokkurn samanburð á mér og honum, þá minnist ég þess, að þegar ég var menntmrh. og það kom fyrir í einum skóla landsins, að einn kennaranna misþyrmdi börnunum líkamlega, þá setti ég hann af. En þessu hefur sem sagt hinn eitraði undirróður komið til vegar. Karlmennirnir leggja til grjót og skít, og svo kemur 15 ára stúlka og leggur þennan krans að hálsi forsrh. af hálfu kvenþjóðarinnar. Okkar þjóðfélag er nú sem sagt ekki sterkara en þetta. En þeir uppalendur æskunnar, sem gerast samsekir um svona atferli, ættu að hverfa til annarra starfa.

Af þessu getur nú hv. 4. þm. Reykv. séð, hverju hann og hans félagar hafa komið til vegar. En nú held ég það væri ekkert á móti því að minna hann á, hvernig hann stóð í skilnaðarmálinu við Danmörku ásamt allmörgum öðrum þjóðvarnarmönnum og mjög mörgum háskólamönnum yfirleitt. Þeir voru einhverjir alóþörfustu menn í skilnaðarmálinu og gerðu allt til að hindra framgang þess með lúalegum hætti. Þeir skrifuðu undir hvert skjalið eftir annað, einu sinni 62, í annað skipti 270 og enn einu sinni 14. Það er nú bezt, að hv. 4. þm. Reykv. viti, að fyrir þetta munu þessir menn fá sinn dóm. Þeir höfðu flestir verið í Danmörku og fengið matarást á henni og höfðu gleymt sínu eigin landi. Það var svipað um þá að segja og hina konungkjörnu þm. Hv. 4. þm. Reykv. veit, hverjir þeir voru, það voru menn af sama tagi og hv. 4. þm. Reykv. sjálfur, menn, sem Jón Sigurðsson hafði tekið að sér suma úti í Danmörku, en héldu, að þeim bæri að ganga erinda dönsku stjórnarinnar, undir eins og þeir voru látnir skipa hinn virðulega sess sem konungkjörnir þm. Það eru aðeins tveir af þessum lærðu mönnum, sem aldrei dignuðu, en það voru þeir Bjarni frá Vogi og Benedikt Sveinsson. Þessir tveir menn stóðu sig alltaf vel, en það eru líka þeir einu af þeim lærðu. Frá 1908, þegar Theodóra Thoroddsen kom í veg fyrir, að illa færi, hafa lærðu mennirnir gert sitt til að koma í veg fyrir, að sjálfstæðismálið næði í höfn. Og það er nærtækt dæmi um, hvernig þeir brugðust 1944, þegar jafnvel kommarnir stóðu sig sæmilega. En hvað veldur svikum lærðu mannanna við íslenzkan málstað? Það er ekki það, að þeir séu ekki nægilega lærðir, heldur hin pólitíska skammsýni, sem leiðir þá af réttri leið. Það er ekki séð fyrir þær afleiðingar, sem leitt gat af stefnu þessara manna 1944, en ef marka má af því, hvernig samningar við Dani hafa gengið síðan, þá værum við illa staddir nú, ef fylgt hefði verið stefnu þeirra. Í því sambandi má líka minna á, hvað þeir sögðu Stauning, þegar hann var hér á ferð fyrir styrjöldina. Þá sýndu þeir hug sinn, því að Stauning sagði, eftir að hafa dvalið með þeim, að það væri aðeins einn maður á Íslandi, sem vildi „fuld frihed“. Og á sama hátt hefur öll barátta þeirra verið, þó að hún hafi komið greinilegast fram í þeim þremur stórmálum, sem undanfarið hafa verið þýðingarmest fyrir þjóðina, en þar á ég við sambandsmálið, Keflavíkursamninginn og svo núna Atlantshafssamninginn. Ég tel vel farið, að 4. þm. Reykv. hefur hreyft þessu máli, því að það hefur gefið tækifæri til að meta afbrot þessara manna og algera vöntun á þeirra pólitísku framsýni.