26.04.1949
Neðri deild: 93. fundur, 68. löggjafarþing.
Sjá dálk 2124 í B-deild Alþingistíðinda. (3172)
Málshöfðunarleyfi gegn þingmanni
Finnur Jónsson:
Herra forseti. Síðast þegar ég sá mælendaskrána, stóð nafn mitt á eftir nafni hv. 2. þm. Reykv. á henni, en ef hann kýs að bíða, þá hef ég fyrir mitt leyti ekkert á móti því.
Þeim tilmælum hefur verið beint til okkar flm. að hinni rökstuddu dagskrá, að við tækjum hana aftur. Ég hef ekki haft tækifæri til þess að bera mig að fullu saman við 1. flm. till., hv. þm. Snæf., en er alveg reiðubúinn til þess að lýsa þeirri afstöðu minni í þessu máli, að ef hann óskar sérstaklega eftir því að hætta við að flytja dagskrána, þá mundi ég gera hið sama. Hins vegar mundi ég ekki breyta minni afstöðu um afgreiðslu þessa máls, sem er á þá lund, að ég er alveg ófáanlegur til að greiða atkvæði með því að gefa fimmmenningunum heimild Alþ. til málshöfðunar gegn þm. út af þessu máli. Ég tel, að ef inn á þá braut yrði farið, mundi verða ákaflega lítið öryggi í því fyrir alþm. að geta haft möguleika til að segja sína skoðun hér á Alþ., m. a. með tilliti til þess, að það kemur oft fyrir, að alþm. þurfa að láta í ljós skoðun sína á opinberum rekstri og þar með forstj. opinberra fyrirtækja. Og við vitum það allir þm., að meiðyrðalöggjöfin er þannig úr garði gerð, að það er ákaflega hæpið, að hægt sé að segja sannleikann um menn og málefni á opinberum vettvangi án þess að eiga á hættu að lenda í kasti við meiðyrðalöggjöfina. Ef farið yrði að opna þinghelgina á annað borð, þá segi ég það fyrir mitt leyti, að ég veit ekki, hvar mundi verða hægt að stöðva. Ég mundi þess vegna, þegar af þessum ástæðum, vera á móti því að veita þá umbeðnu málshöfðun, og það því fremur sem ekki er nein ástæða til þess, að flm. leiti lengur eftir því að rjúfa þinghelgina, önnur en einhvers konar fordild að vilja heldur höfða mál út af þessum ummælum, sem féllu hér í umr. á Alþ., heldur en ummælum, sem þm. hefur endurtekið í opinberu blaði. Ég verð að segja það, að eins og áheyrendur eru hér venjulega fáir, þá hlýtur að verða þyngri sekt fyrir ummæli, sem endurtekin eru í víðlesnasta blaði landsins, heldur en þó að þau séu sögð hér á Alþ. Skal ég svo ekki fara frekar út í þetta atriði málsins, en vildi hins vegar gera nokkuð grein fyrir minni afstöðu til þeirra ummæla, sem hér hafa verið höfð, þó að þau komi ef til vill ekki beinlínis hinni rökstuddu dagskrá við né heldur afstöðu minni til málshöfðunarbeiðninnar.
Hér hefur verið gerð að umtalsefni samstaða annarra flokka við kommúnistaflokkinn. Ég hef heyrt einn þingmann komast þannig að orði, að ef samstaðan við kommúnistaflokkinn í þessu máli væri til eflingar fyrir kommúnista, hversu miklu frekar mundi þá ekki hafa verið til eflingar fyrir hann samstaðan við þá í stj. landsins á árunum 1944–46. Ég vildi leyfa mér, að gefnu tilefni, að fara örfáum orðum um þetta. Eins og allir hv. þm. vita, var samstaða með andstæðingum nazismans og einræðisstefnanna í Evrópu og kommúnistum, þegar nokkuð var liðið á síðustu, heimsstyrjöld, og í rauninni var það þessi samstaða, sem varð þess valdandi, að niðurlögum Hitlers var ráðið miklu fyrr en ella hefði orðið. Þegar styrjöldinni var lokið, trúðu margir því, að kommúnistar hefðu tekið þátt í þessari baráttu á móti nazismanum af fullum hellindum. í tilefni af vígstöðunni í ófriðnum var svo víða gerð tilraun til að taka kommúnista með í lýðræðislegar stjórnir, enda töluðu þá ekki aðrir meira um lýðræði en kommúnistar. Þessar samstjórnir lýðræðissinna og kommúnista voru m. a. mjög víða þar, sem lýðræðisjafnaðarmenn hafa ráðið miklu hér í Evrópu. Það má þess vegna segja, að með stjórnarmynduninni 1944 hafi á Íslandi verið gerð af hálfu lýðræðisflokkanna heiðarleg tilraun til þess að hafa samvinnu við kommúnista um áframhaldandi úrlausnir þeirra vandamála, sem m. a. höfðu orðið enn erfiðari vegna ófriðarins. Ég þarf í rauninni ekki að rekja það hér, hvernig kommúnistar stóðust þetta próf. Víðast hvar fór það svo, að lýðræðisflokkarnir losuðu sig við þá innan til þess að gera ekki langs tíma, en í ýmsum löndum, þar sem lýðræðissinnar voru ekki nógu fljótir að losa sig við þá, hafa þeir brotizt til valda með ofbeldi og notað það traust og þá vináttu, sem þeir fengu í ófriðnum, til þess að rifa niður lýðræðisflokkana í mörgum löndum Evrópu og svíkja viðkomandi föðurland í hendur Rússa. Þetta er reynslan, sem lýðræðisfl. fengu af samstöðunni með kommúnistum að ófriðnum loknum. Hér á Íslandi var efnt til þessarar stjórnarsamvinnu í sama hug og víðast hvar annars staðar, og ég held, að samstaða Alþfl. sérstaklega með kommúnistafl. hafi verið byggð á því, að með þeirri samvinnu væri reynt að koma fram ýmsum aðkallandi áhugamálum Alþfl. Vil ég þar sérstaklega nefna endurbyggingu skipastólsins, togaraflotans og vélbátaflotans, byggingu ýmissa fyrirtækja í þágu sjávarútvegsins og svo endurskoðun launalaganna og samþykkt alþýðutryggingalaganna. Öll þessi mál voru bein stefnuskrármál Alþfl., þó að aðrir tækju þátt í að koma þeim fram. Samstaðan við stjórn kommúnista var að vísu samþ. með litlum meiri hl. í miðstjórn Alþfl., en þó með löglegum meiri hl., þannig að stjórnarsamvinna Alþfl. og kommúnistafl. á árunum 1944–46 var, eins og ég tók fram áðan, hreinlega gerð til þess að koma fram vissum stefnuskrár- og áhugamálum Alþfl. og gerð með löglegri samþ. miðstj. Alþfl. Ég hygg, að því verði ekki með neinum rökum neitað, að framkvæmd þessara mála hafi stórkostlega styrkt jafnaðarstefnuna á Íslandi, og fyrir Alþfl. sérstaklega vil ég ítreka það, að þessi samvinna var í fullu samræmi við hans stefnuskrá og í fullu samræmi við löglegar samþykktir stj. Alþfl.
Aftur á móti gegnir talsvert öðru máli um samstöðuna við kommúnista nú. Þeir hafa, eins og öllum er kunnugt, bókstaflega brugðizt öllum þeim vonum og öllu því trausti, sem lýðræðisfl. báru til þeirra í stríðslok. Þeir hafa, eins og ég sagði áðan, notað sér það, að þeir fengu valdaaðstöðu gegnum trúnaðarstöður, sem skipaðar voru í ófriðnum, og hafa notað þá valdaaðstöðu til þess að svíkja mörg lönd hér í álfu í hendur Rússum. Þeir hafa notað hana til þess að svíkja lýðræðisstefnuna og allt það, sem við hér á landi höfum kallað heilög mannréttindi, og til að koma á einræðisskipulagi í þessum löndum, sem er enn svívirðilegra heldur en það, sem verst var í Þýzkalandi nazismans. Nú er það svo, að hvert spor, sem lýðræðisfl. stíga til þess að efla kommúnista, leiðir aðeins í eina átt, og hún er sú, að afnema lýðræðið í heiminum og innleiða einræði og kúgun, hinn svokallaða kommúnisma, sem er í rauninni ekki lengur neinn kommúnismi, en ekkert annað en einræði og hatursfull þjóðarrembingsstefna Rússa. Vegna þeirra vonbrigða, sem menn urðu fyrir af kommúnistum, sem ég nú hef lýst, tóku lýðræðisþjóðirnar sig saman, eins og þegar er vitað, og stofnuðu Atlantshafsbandalagið og vegna þess, að sýnt var, að ef þessi ríki héldu áfram að vinna hvert út af fyrir sig, þá mundu Rússar éta þau, eitt og eitt í einu, þangað til þeir væru búnir að gleypa alla Vesturálfuna. Atlantshafsbandalagið er, eins og allir vita, ekkert annað en nauðvörn lýðræðisríkjanna í Vestur-Evrópu gegn kommúnistum. Þetta hefur komið svo greinilega í ljós á undanförnum árum, að hér þarf enginn um að villast. Menn geta deilt um það, hvort það sé heppilegra skipulag að hneppa allar þjóðir í Evrópu í einræðisfjötra Rússa eða að halda við lýðræðisskipulaginu, en hitt geta menn ekki deilt um lengur, að ef lýðræðisþjóðirnar ekki hefðu myndað samtök með tilstyrk Bandaríkja Norður-Ameríku, væri nú svo komið, að enn fleiri þjóðir væru komnar í gin kommúnismans. Það er þess vegna alveg augljóst, að öll samstaða, sem miðar að því að efla framgang einræðisstefnu Rússa og draga úr samtökum lýðræðisþjóðanna gegn þessari helstefnu kommúnista, miðar beinlínis að því að efla einræðið í heiminum, og sú samstaða, sem við nú kynnum að taka með kommúnistum í þessu aðalbaráttumáli Evrópu, er í raun og veru ekkert annað en að efla kommúnismann, hvað svo sem menn vilja kalla það. Nú hefur það átt sér stað, að einstakir menn utan kommúnistafl. hafa haldið fram svokölluðu þjóðvarnarfélagi, sem var stofnað í sambandi við Keflavíkursamninginn. Þessir menn hafa í sinni baráttu haldið mjög á lofti lýðræðistali og sannleikstali og ýmislegu þess háttar tali, en þrátt fyrir allt þetta tal sitt hafa þeir gert sig seka um það, ásamt kommúnistum, að segja algerlega rangt frá samningnum um Atlantshafsbandalagið. Látum það vera, að þeir hafi gert sér hugmyndir um það, áður en samningurinn var birtur, að hann væri öðruvísi en hann er. Það mætti mannlegt heita, en hitt er í rauninni alveg ófyrirgefanlegt, að þegar búið er að birta samninginn, skuli þessir menn, sem hafa reynt að gera sig að sjálfskipuðum vörðum lýðræðis og frelsis fyrir Íslendinga, halda áfram að ljúga til um innihald samningsins og það með þeim árangri, sem varð hér 30. marz. Ég segi fyrir mitt leyti, að ég get á engan hátt losað þá menn, sem standa að Þjóðvarnarfélaginu og blaðinu Þjóðvörn, undan ábyrgðinni af þeim atburðum, sem gerðust hér 30. marz s. l. við þinghúsið. Auk þess sem ég tel það gersamlega óhæfilegt að vera að opna þinghelgina út af þessum ummælum, sem hér um ræðir, mundi ég fyrir mitt leyti telja það óhæfu af þeim ástæðum, að a. m. k. sumir af þeim mönnum, sem óska málshöfðunar nú, þeir bera, eftir því sem ég álit og fjöldi landsmanna, ábyrgð á atburðunum, sem gerðust hér við alþingishúsið hinn 30. marz s. l.
Ég get þess vegna á engan hátt, hvað sem verður um þessa dagskrá, orðið við þeim tilmælum hv. þm. G-K. að greiða atkv. með málshöfðunarbeiðninni, heldur mun ég greiða atkv. á móti henni. Ég vil ítreka það, að ég veit ekki, hvert það mundi leiða, ef nú væri farið að opna þinghelgina til málshöfðunar. Ég mundi telja það ákaflega misráðið, nema því aðeins að þinghelgin væri með öllu afnumin, því að þinghelgi, sem væri verið að opna fyrir ekki meiri atburði en hér hefur gerzt, virðist ekki eiga nokkurn rétt á sér, og væri þá réttara að afnema hana með öllu. Ég vil í þessu sambandi taka það fram, að ég hef lent í margri orðasennu og hef orðið fyrir ýmsum ómildum dómum og einnig oft verið ómildur í dómum við andstæðinga mína þann tíma, sem ég hef átt í þjóðmálabaráttunni, bæði hér á Alþ. og utan Alþ., en slíkan munnsöfnuð sem andstæðingar Atlantshafsbandalagsins, bæði Þjóðviljinn og Þjóðvörn, hafa haft í frammi um andstæðinga sína, hef ég aldrei séð fyrr á ævinni. Og ég er hissa á langlundargeði hæstv. ríkisstj., að hún skuli ekki fyrir löngu fyrir hönd okkar alþm., sem höfum tekið hér þátt í löglegum þingstörfum og sinnt verki okkar á þann hátt, sem við teljum bezt fyrir land okkar og þjóð, vera búin að hefja opinbera málssókn á þessi sorpblöð, Þjóðvörn og Þjóðviljann, og láta þau svara til saka frammi fyrir dómstólum landsins. Í báðum þessum blöðum hefur verið reynt að koma því inn hjá almenningi, að við, sem stóðum að þessari samþykkt, værum landráðamenn og óþokkar, og með slíku orðbragði, að við værum réttdræpir, hvar sem við næðumst. Sem betur fer er nú þjóðin farin að þekkja orðbragð þessara manna og tekur ekki mikið mark á þeim. Þó sýndi það sig 30. marz, að nokkrir voru orðnir svo æstir af orðbragði þessara blaða, að þeir gættu þess ekki, hvað þeir gerðu, og réðust á Alþingi með grjótkasti, sem vel hefði getað valdið manndrápum. Ég sit hér í þriðja sæti frá þessum glugga, og hér flaug steinn yfir höfuð þeirra tveggja þm., sem sitja næst glugganum, yfir höfuð mitt, með þeim afleiðingum, að glerbrot lenti í auganu á hv. 11. landsk. Það var ekki þeim, sem kastaði steininum, að þakka, að ekki varð úr þessu meira slys. Ég veit ekkert, hver kastaði þessum steini, en veit vel, að það orðbragð, sem Þjóðviljinn og Þjóðvörn hafa haft í frammi, hefur orðið til þess að æsa menn upp til slíkra óhæfuverka eins og þessara. Ég mundi þess vegna, jafnvel þótt ekki væri þinghelgin annars vegar, ekki treysta mér til að greiða atkvæði með beiðni þessara manna. Einn þeirra, hv. 4. þm. Reykv., hefur lýst yfir fyrir sitt leyti, að hann mundi ekki kæra sig um málshöfðun, þar sem hann mundi geta svarað fyrir sig hér, eins og hann er vanur að gera. Hann hefur líka lýst því yfir, að hann sé ekki í stjórn Þjóðvarnarfélagsins og ekki í stjórn Þjóðvarnar og ekki heldur í Þjóðvarnarfélaginu. Og ef hann er hvorki í stjórn Þjóðvarnarfélagsins né í Þjóðvarnarfélaginu, má segja, að hann beri ekki ábyrgð á þeim atburðum, sem hér gerðust. Hins vegar eru þrír þessara umsækjenda í ritnefnd Þjóðvarnar, og meðan þeir standa þar, bera þeir siðferðilega og lagalega ábyrgð á því, sem í þessu blaði birtist. Það má vera, að einn umsækjandinn hafi nokkra sérstöðu, sem ætti þá að birta, ef sakleysi hans væri svo mikið í þessu máli, að rjúfa ætti fyrir það þinghelgina.