26.04.1949
Neðri deild: 93. fundur, 68. löggjafarþing.
Sjá dálk 2128 í B-deild Alþingistíðinda. (3173)
Málshöfðunarleyfi gegn þingmanni
Forsrh. (Stefán Jóh. Stefánsson):
Ég hef alltaf ætlað mér, áður en þessu máli lyki, að segja um það nokkur orð, því að mér finnst vera hér á ferðinni atriði, sem sé vert umhugsunar. Eins og alþm. allir vita, eru þau ákvæði að finna í stjskr. Íslands, 49. gr., að þm. verði ekki látnir bera ábyrgð fyrir dómstólunum á orðum þeim, er þeir fella á Alþ., nema sú deild, sem á í hlut, samþykki það. Í raun og veru er þetta einn þátturinn í því, að alþm, á hverjum tíma geti hiklaust látið í ljós skoðanir sínar og rætt um þær á Alþ. án þess að eiga von á því, að hver og einn vaði að þeim fyrir ummæli þeirra og höfði mál á þá fyrir það. Meðan þessu ákvæði er haldið, sem ég tel mjög eðlilegt, er það mjög aðgæzluvert, ef slíkt ber að höndum, að óskað er eftir, að einhver hv. þm. sé framseldur, hvort slíkt eigi að leyfa. Ég tel, að það ætti að vera alger undantekning, ef slíkt leyfi væri veitt. Ef farið væri inn á að veita slíkt leyfi, er óvandur eftirleikur annarra að sækja um slíkt, og mætti þá búast við, að meiðyrðamál gegn alþm. gætu hafizt í stórum stíl. Mér finnst, að þetta ætti ekki að eiga sér stað nema undir alveg sérstökum kringumstæðum og þætti helzt geta komið til greina að veita slíkt leyfi, ef að ástæðulausu væri ráðizt á menn utan þings, sérstaklega opinbera starfsmenn og trúnaðarmenn, sem ekki hafa sig í frammi í stjórnmálum og standa yfirleitt ekki í dægurbaráttunni. Ef sveigt væri harkalega að þeim, gæti að mínu áliti komið til greina að veita leyfi til málshöfðunar. En ég tel það fjarri lagi að veita leyfi til málshöfðunar, er í hlut eiga menn, sem sjálfir hafa haslað sér völl í stjórnmálunum með mikilli baráttu og ádeilum á alþm. og aðra, og þannig liggur málið fyrir. Þrír þessara umsækjenda bera ábyrgð bæði siðferðilega og lagalega á hverju einasta orði, sem ritað er í blaðið Þjóðvörn. Þetta blað hefur verið blaða óvægnast, stóryrtast og illyrtast í íslenzkum blaðaheimi, jafnvel ekki að kommúnistablaðinu. undanteknu. Þessir 3 menn, sem biðja um leyfið, hafa sýnt það að fyrra bragði, án þess að við þeim væri blakað, að þeir töldu rétt af sinni hálfu að ráðast heiftarlega með stóryrðum og þungum dómum að Alþingi og einstökum flokkum og mönnum á Alþingi yfirleitt. Þessir menn hafa valið sér þetta hlutskipti, og væri þá nokkuð undarlegt, þó að á Alþingi Íslendinga væri nokkuð minnzt á þessa herra, sem sjálfir hafa valið sér það hlutverk að koma fram á vettvangi opinberra mála með ekki minni hógværð, en þeir hafa gert? Til viðbótar má geta þess, eins og fram hefur komið hér á umr., að einn umsækjandinn, hv. 4. þm. Reykv., á sæti hér á Alþ. og getur þar staðið í stríðinu af sinni hálfu og hefur sjálfur lýst yfir, að hann þurfi ekki að rétta hlut sinn gegn ummælum alþm. með slíku leyfi sem hér er um að ræða, heldur treysti hann sér vel til að standa sjálfur fyrir máli sínu, ef sveigt væri sérstaklega að stjórnmálaskoðunum hans, og stóryrðum, sem fram kynnu að koma. Það er þá aðeins einn maður af þeim, sem hér er um að ræða, sem spurning gæti verið um, en það er Einar Ól. Sveinsson, því að hann ber ekki ábyrgð á því formlega, sem í Þjóðvörn stendur, og hefur ekki haft sig mjög í frammi, þó að hann hafi gert það nokkuð. Það væri þá hann einn, sem gæti komið til álita um, hvort rétt væri að víkja frá höfuðreglum stjskr. og leyfa málshöfðun honum einum til handa. Ég fyrir mitt leyti sé enga ástæðu til þess, því að það hefur ekki verið sveigt að honum fyrir hans borgaralegu störf, heldur fyrir afskipti hans af opinberum málum og þeim sérstaklega, sem Þjóðvarnarfélagið hefur látið til sin taka. Ofan á þetta allt bætist, að hv. þm. G-K. hefur þegar og rétt eftir að hann felldi umrædd ummæli á Alþingi látið birta þau orðrétt í víðlesnasta blaðinu hér í borginni, svo að þeir, sem vildu, gætu sótt hann til ábyrgðar út af þessum orðum hans. Þegar þetta er athugað, fyndist mér það ganga næst skrípaleik að veita þetta leyfi og kasta litlum virðingarblæ á Alþingi, auk þess sem það gæti skapað mjög hættulegt fordæmi. Þeir menn, eins og Þjóðvarnarmenn, sem hafa valið sér það hlutverk að vera manna stórorðastir, þurfa ekki og eiga ekki að kveinka sér eða hrópa upp og láta ósæmilega þó að að þeim sé beint nokkrum alvarlegum orðum eingöngu í tilefni af framkomu þeirra í þessu máli, sem þeir hafa barizt gegn á undanförnum tímum.
Niðurstaða mín með þessum orðum er í samræmi við þá niðurstöðu, sem komið hefur fram í þingflokki Alþfl., að við teljum alveg ástæðulaust að koma með svona mál inn í þingið, þegar eins stendur á og um þetta mál. Ég mun því, ef dagskrártill. gengur til atkvæða, hiklaust greiða atkvæði með henni. En verði hún dregin til baka, mun ég með tilvísun til þessara orða minna greiða atkvæði gegn því, að d. samþ. þetta leyfi.