17.05.1949
Neðri deild: 113. fundur, 68. löggjafarþing.
Sjá dálk 2173 í B-deild Alþingistíðinda. (3238)
Starfslok deilda
forseti (BG):
Nú við lok síðasta fundar deildarinnar að þessu sinni vil ég nota tækifærið til þess að þakka hv. þingdeildarmönnum fyrir ágætt samstarf og hið mikla umburðarlyndi þeirra gagnvart mér sem deildarforseta. Ég óska þeim hv. þingdeildarmönnum, sem eiga heima utan höfuðborgarinnar, góðrar ferðar og gleðiríkrar heimkomu og öllum þingdeildarmönnum heilla og velfarnaðar í framtíðinni.