22.02.1949
Neðri deild: 69. fundur, 68. löggjafarþing.
Sjá dálk 11 í C-deild Alþingistíðinda. (3273)
65. mál, landshöfn í Höfn í Hornafirði
Frsm. meiri hl. (Finnur Jónsson) :
Herra forseti. Sjútvn. hefur ekki getað orðið samferða í þessu máli. Meiri hl. n. leggur til, að málið verði afgr. með rökst. dagskrá, sem er á þskj. 359. En minni hl. n., hv. 2. þm., N.-M. og hv. þm. Siglf., leggur til, að frv. verði samþ. óbreytt.
Það hefur talsvert verið — og var sérstaklega í milliþn. í sjávarútvegsmálum — rætt um landshafnir á seinni tímum, og komu þá til greina nokkrir staðir, sem milliþn. í sjávarútvegsmálum óskaði eftir, að yrðu nánar rannsakaðir. Niðurstaðan af starfi n. í landshafnamálinu varð svo sú, að sett voru sérstök lög um landshöfn í Keflavík og Njarðvík, þar sem ríkinu er uppálagt að búa til höfn hér við sunnanverðan Faxaflóa. — Eftir öðrum rannsóknum, sem fram hafa farið, og eftir till., að mestu frá milliþn. og hæstv. Alþ., mun Rif á Snæfellsnesi vera talið sem líklegur staður fyrir landshöfn. Rannsókn á þeim stað fór fram í sumar, og hygg ég, að hún hafi sýnt, að þar væri mjög álitlegt að búa til höfn við einhver auðugustu fiskimið við Vesturlandið. En þó hefur hæstv. ríkisstj. ekki talið ástæðu til — sennilegast vegna fjárhagsvandræða — að leggja neitt frv. um þetta fyrir Alþ. — Nú er það að sjálfsögðu fyllilega viðurkennt, að það sé nauðsyn á því að hafa góða fiskveiðahöfn fyrir Austurlandið í grennd við Hornafjarðarmiðin. En hitt mun þó vera álit flestra, sem á þetta hafa litið, að ekki sé unnt að búa til neina stórskipahöfn í Hornafirði, heldur að það muni vera slíkir verkfræðilegir örðugleikar á því vegna brima og sjávarfalla, að slíkt sé í raun og veru óframkvæmanlegt. Meiri hl. n. lítur svo á, að þar sem Höfn í Hornafirði nýtur nú þegar þeirrar aðstoðar frá ríkinu, sem fyrir er mælt í hinum almennu hafnarlögum, eða 40% styrks og ríkisábyrgðar fyrir allt að 60% af kostnaði við hafnargerð, þá sé vorkunnarlaust að framkvæma þar þær hafnarframkvæmdir, sem líklegt er, að þurfi vegna svipaðrar sjósóknar og þar hefur verið að undanförnu og jafnvel bæta að auki aðstöðuna að verulegu leyti. Ekki lítur út fyrir, að af ríkisins hálfu sé hægt að leggja stórfé í landshafnargerð í Hornafirði jafnhliða þeim skuldbindingum, sem ríkið hefur gagnvart öðrum höfnum. Landshöfnin í Njarðvík er ekki nema hálfgerð, en þó hefur orðið að stöðva vinnu og framkvæmdir þar vegna fjárskorts ríkisins. Meðan þannig er ástatt, að ekki er hægt að halda landshafnargerðinni í Njarðvík betur áfram en raun er á, taldi meiri hl. sjútvn., að aðrir staðir, eins og t. d. Höfn í Hornafirði, yrðu að sjá um sig sjálfir með þeirri aðstoð, sem ríkið veitir samkvæmt hinum almennu hafnarlögum, og meiri hl. taldi því ekki hægt að samþykkja þetta frv. Þar að auki er áskilinni heildarathugun um landshafnir langt frá því að vera lokið. Að vísu liggja hér fyrir meðmæli frá vitamálastjóra varðandi landshöfn í Hornafirði, en ég hygg, að álit hans fari a. m. k. að nokkru leyti í bága við álit hæstv. samgmrh., sem er allra manna kunnugastur hafnarmálum landsins og hefur haft allra manna mest með þau að gera. Enn fremur er langt frá því, að lokið sé þeirri athugun, sem mþn. gerði ráð fyrir um landshafnir. Meiri hl. n. taldi því rétt að vísa þessu máli frá að svo stöddu.