24.02.1949
Neðri deild: 70. fundur, 68. löggjafarþing.
Sjá dálk 17 í C-deild Alþingistíðinda. (3277)

65. mál, landshöfn í Höfn í Hornafirði

Frsm. meiri hl. (Finnur Jónsson) :

Herra forseti. Það hafa nú tveir menn talað um þetta nál. meiri hl., hv. 2. þm. N-M. og hv. þm. A-Sk. Ég þarf nú ekki að svara þeim mörgum orðum; ræða hv. þm. A-Sk. var nú með því marki brennd, að hann virtist einungis tala til að tala, en ekki af því, að hann byggist við, að það yrði tekið tillit til þess, sem hann var að segja.

Í þessu máli liggja fyrir umsagnir frá vitamálaskrifstofunni og Farmanna- og fiskimannasambandi Íslands. Hv. þm. komst þannig að orði, að það lægi fyrir umsögn vitamálastjóra, og varð ekki annað skilið en hann teldi, að vitamálastjóri hefði mælt með landshöfn í Hornafirði. Ég held, að hann hefði nú átt að athuga dálítið betur umsögn vitamálastjóra. Með leyfi hæstv. forseta skal ég lesa það, sem hann segir um þetta: „Því, í hvaða röð ég telji, að landshafnir eigi að koma, vil ég því til svara, að ég set númer eitt Höfn í Hornafirði, annaðhvort sem landshöfn eða þá að séð verði um með öðrum hætti, að fiskútflutningshöfn geti vaxið þar fljótlega upp.“ — Það er nú einmitt það, sem um getur í síðari lið þessarar yfirlýsingar, sem ég veit ekki betur en sé óðum að komast í framkvæmd í Höfn í Hornafirði og búið sé að vinna þar fyrir 1 millj. og 200 þús. kr. Minni strandferðaskip, eins og Skjaldbreið, fljóta þar alveg inn undir bryggju og enginn vandi fyrir allt upp undir 50 smálesta báta að stunda þar fiskveiðar, segja kunnugir menn. Það er búið að kaupa timbur í bryggju, sem á að verða til á þessu ári, án þess að nokkurri landshöfn sé komið þar upp. Út af þeirri umsögn frá vitamálastjóra, að hann telji Rif á Snæfellsnesi eiga að koma næst, bæði vegna þess, að þar sé mikil útgerð, og til að tryggja hag nærliggjandi sveita, mætti álykta, að rétt væri, að Rif kæmi fyrst, vegna þess að þaðan eru stundaðar miklar veiðar en miklir erfiðleikar á þeim vegna hafnleysis. Á Hornafirði eru fáir heimabátar, en aðallega aðkomubátar, sem stunda þaðan veiðar, og því ekki nauðsynlegt vegna héraðsins að koma þar upp fiskútflutningshöfn, en eftir dómi vitamálastjóra má ætla, að það sé nauðsynlegt á Rifi, þar sem annars er í hættu, að byggð eyðist þar. Nú er verið að gera hafnarbætur á Hornafirði, án þess að vitað sé, að þar liggi fyrir meira framlag frá ríkissjóði, en til annarra hafna. Það er viðurkennd sú nauðsyn að nota miðin við Hornafjörð, en með þeim aðstæðum, sem myndast við þær aðgerðir, sem er verið að gera þar nú, skapast möguleikar til að nota miðin jafnvel fyrir fleiri báta en nú sækja til Hornafjarðar. Nú eru þar 11 bátar, 14 eða 15 í fyrra og munu flestir hafa verið 30. Ég vil ekki fullyrða, að góð aðstaða sé þar fyrir 30 báta, en a. m. k. fyrir mun fleiri báta en leggja þar upp nú. Austfjarðabátarnir leggja annaðhvort upp heima sjá sér eða þeir leita til annarra staða, sem þeir telja aflavænlegri en Hornafjörð. Nú er það svo, að jafnvel þótt æskilegt hefði verið að koma þarna upp fiskihöfn, sem aldrei gæti þó orðið stór útflutningshöfn, því að innsiglingin er þannig, að ekki er talið gerlegt að setja þar upp útskipunaraðstöðu fyrir stór skip, þá hafa ýmsir staðir lagt jafnhart að sér í þessum efnum og Höfn og samt ekki krafizt landshafnar, og mætti þar t. d. nefna Hofsós og Dalvík. Á báðum þessum stöðum hefur verið lagt í talsvert meiri framkvæmdir, en nauðsynlegar eru í Höfn til að skapa aðstöðu fyrir 30–50 tonna báta, en engar kröfur hafa komið þaðan um landshöfn, þó að íbúarnir hafi orðið að leggja hart að sér til að koma þessu í framkvæmd. Það er sagt af kunnugum mönnum, að 1½ millj., muni nægja til að gera sæmilega aðstöðu fyrir þá báta, sem vilja leggja upp í Höfn, og ef ríkissjóður leggur fram 600 þús., þá mun vera hægt að fá hitt að láni með ábyrgð ríkissjóðs. Ég óttast, ef samþ. verður að koma upp landshöfn þarna, að það muni ýta öðrum stöðum af stað til að gera sams konar kröfur um landshöfn, og mundi ríkissjóður ekki eiga hægt með að koma slíku fram eins og fjárhagurinn nú er.

Mér heyrðist á hv. form. minni hl., að hann gerði ekki mikið úr því, að ekki væri búið að ljúka gerð landshafnarinnar í Njarðvík, en mér finnst óvarlegt að prjóna upp á fleiri landshöfnum, áður en lokið er við þessa, og niðurstaðan verður sú, að hvergi verður lokið verulega við verkið. Það er því mjög óvarlegt að dreifa fjárframlagi ríkisins, svo að framkvæmdir komi ekki fljótt að gagni, en svo færi, ef ríkið legði í margar landshafnir í einu án þess að ljúka hinum, sem eru nú í undirbúningi. Þær upplýsingar, sem ég hef fengið, benda á það, að nú sem stendur sé aðstaða fyrir fleiri skip í Höfn, en leita þangað, og þó að ekki sé lokið landshöfninni í Njarðvík, þá er samt aðstaða í Vogum, Keflavík og Njarðvíkum fyrir fleiri skip, en stunda þaðan veiðar nú, og þegar svo er, virðast engir erfiðleikar á því, að hægt verði að sjá fyrir þeim bátum, sem þangað kunna að leita. Þá hafa Austfirðingar komið sér upp hraðfrystihúsum nema í Höfn. Og er það ástæðan til, að þeir vilja heldur leggja upp á heimahöfnunum. Á Fáskrúðsfirði eru t. d. 2 hraðfrystihús, og geta bátar þaðan hæglega veitt á Hornafjarðarmiðum og flutt aflann heim. — Ég fjölyrði ekki frekar um þetta, en tel, að rökstudda dagskráin eigi fullan rétt á sér.