01.03.1949
Neðri deild: 73. fundur, 68. löggjafarþing.
Sjá dálk 34 í C-deild Alþingistíðinda. (3292)

65. mál, landshöfn í Höfn í Hornafirði

Jónas Jónsson:

Fyrir nokkrum árum var ég við atkvgr. hér, þegar lögtekið var að ábyrgjast verð fyrir aðalútflutningsvörur landsins, með þeim afleiðingum, sem það hefur haft. Nú skilst mér, að ríkissjóð vanti 30 millj. til þess að geta staðið við þær greiðslur, sem á fjárlagafrv. eru til teknar. Mig furðar á ýmsum lagasetningum, sem hér eru gerðar, og frv. ýmsum, svo sem því að vilja leggja 70 millj. kr. í Sogsvirkjun og margar millj., kr. í ýmis önnur fyrirtæki — mig furðar á þeirri löggjöf, sem nú er sett þannig á margan hátt, án þess að nokkur lifandi maður hafi hugmynd um, hvernig þetta muni ganga í framkvæmd. — Að gera hafnarbætur í Hornafirði er sjálfsagt gott. En nú er það svo, að það er ekkert gert í því að byggja landshöfnina í Keflavik og Njarðvík. Og ég álít það rétt að segja það einu sinni enn, og með atkvgr., að þau eru til minnkunar þessi pappírslög, sem eru bara skrautfjaðrir til að benda á við framboð, en ekkert er meint annað með. Ef ég verð á þingi, þegar eitthvað er hægt að gera fyrir Hornafjörð, þá mun ég verða með því. En nú segi ég nei.