03.03.1949
Neðri deild: 74. fundur, 68. löggjafarþing.
Sjá dálk 40 í C-deild Alþingistíðinda. (3300)

88. mál, húsaleiga

Sigurður Kristjánsson:

Herra forseti. Þann 6. des. s. l. ár var útbýtt hér í d. frv. til l. um húsaleigu. Fór málið til allshn. þann 9. des. 1948. Þann 18. f. m. var útbýtt hér í d. nál. frá minni hl. n., en síðan hefur ekkert til málsins spurzt. Nú eru liðnir 11 dagar frá því, að nál. minni hl. var útbýtt, og mér þykir það alveg vafalaust, að hinn hluti n., hvort sem það er meiri hl. eða tveir eða þrír minni hl., ætli ekki að skila neinu áliti. Það er óhugsandi um jafnvelgefna menn, að þeir væru ekki búnir að koma saman áliti á 11 dögum, ef þeir ætluðu sér að gera það. Af þessum ástæðum vil ég, fyrir hönd flm. frv., fara fram á það við hæstv. forseta, að hann taki þetta mál á dagskrá næsta fundar.