18.03.1949
Neðri deild: 83. fundur, 68. löggjafarþing.
Sjá dálk 91 í C-deild Alþingistíðinda. (3336)
88. mál, húsaleiga
Frsm. 2. minni hl. (Finnur Jónsson):
Umræður um þetta mál hafa nú farið á við og dreif og jafnvel snúizt um húsnæðismál almennt og þó sérstaklega um leyfisveitingar fjárhagsráðs fyrir húsbyggingum á síðastliðnu ári. Ég vona, að hæstv. forseti sýni mér þolinmæði og afsaki, þótt ég fari dálítið út í húsbyggingar almennt, eins og aðrir hafa gert. Ég gat þess viðvíkjandi leyfisveitingum fjárhagsráðs, að leyfin hefðu yfirleitt verið veitt út á land, en dregið úr þeim til Reykjavíkur, en þar átti ég auðvitað við þær umsóknir, sem bárust fjárhagsráði fyrir tilsettan tíma og uppfylltu hin settu skilyrði. Ég veit ekki, hvort ég hef tekið þetta nógu skýrt fram. Hins vegar sé ég, að öll blöðin hafa haft þetta á annan veg en ég ætlaði að segja. Nú liggur hér fyrir skýrsla fjárhagsráðs frá því í sept. 1948 um fjárfestingu til bygginga, og þar er sundurliðað, hve mikið var veitt af leyfum til Reykjavíkur, til kaupstaða og kauptúna úti á landi og til sveitanna. Í skýrslunni kemur í ljós, að leyfisveitingum er skipt hlutfallslega rétt um landið eftir íbúafjölda. Af öllum leyfisveitingum fær því Reykjavík 35%. Þm. hafa nú skýrsluna og geta athugað hana, og ég hugsa, að ef þeir lesa hana, þá muni leiðréttast sá misskilningur, sem hefur komið fram í umr.
Hv. 2. þm. Reykv. vék að mér alllangri ræðu út af athugasemdum mínum við fyrri ræðu hans, og sagði hann, að afstaða mín til laga um útrýmingu heilsuspillandi íbúða hefði verið að fresta framkvæmd laganna og greiða síðan atkvæði gegn tillögu sósíalista um 1 millj. kr. framlag til útrýmingar heilsuspillandi íbúðum. Hv. þm. sagði í sömu ræðu, að það væri furða, hve hægt væri að ljúga frá Austurvelli til Austurstrætis, en ég vil segja, að það er furða, hve hægt er að snúa öllum málsatriðum á ekki lengri leið en er á milli sæta okkar hv. 2. þm. Reykv., og þessi ummæli hans eru því furðulegri, þegar þess er gætt einmitt, að ég lét semja þennan lagabálk og bar hann fram hér og samkvæmt þessum lögum hafa þegar verið greiddar 6 millj. kr., til útrýmingar heilsuspillandi íbúða. Ef 2. þm. Reykv. telur ástæðu til þess að hæla sér af þessari tillögu sinni um 1 millj. kr. framlag, þá ætti ég að geta hælt mér 6 sinnum meira. Ég hef þó ekki séð ástæðu til þess að benda á þetta nema að gefnu þessu tilefni frá 2. þm. Reykv., enda skipti um, eftir að þessi lög voru samþ., því að þá var byggt meira af verkamannabústöðum og samvinnubústöðum en nokkurn tíma fyrr. Það orkar því ekki tvímælis, að enda þótt lögum þessum væri nokkuð breytt í framkvæmd varðandi kaflann um heilsuspillandi íbúðir, þá hafa þau þó verið til mjög mikillar aðstoðar fyrir hina minni máttar við að koma sér upp þaki yfir höfuðið. Annars ætlast ég ekki til neinnar viðurkenningar af hv. 2. þm. Reykv., en ég sé ekki ástæðu til þess, að hann snúi svo málsatriðum sem hann hefur gert. Annars verð ég að segja það út af ræðu hans, að eins og svo oft áður, þá er mælska hans svo mikil, að það er eins og tveir eða þrír menn séu að tala saman og séu sinn á hvorri skoðun. Annars var það áberandi hjá hv. þm., að hann taldi fjárhagsráði margt til foráttu og meðal annars það, að það hafi gert áætlun og neiti svo um sjálfsögð leyfi, en í sömu andránni kvartar hann yfir því, að till., sem áttu að veita fjárhagsráði algert einokunarvald í leyfaveitingum og alræði yfir lánsfjárstarfsemi bankanna, skuli hafa verið felldar. Þetta sýnir betur en nokkuð annað, að hv. 2. þm. Reykv. er eins og tveir menn, sem deila innbyrðis. Hvernig dettur manninum í hug að láta þetta auma vald hafa alræðisvald yfir útlánastarfsemi bankanna? — Nú, í ræðu sinni um daginn við 1. umr. málsins hélt 2. þm. Reykv. því fram, að fjárhagsráð hefði ekki gefið út nógu há leyfi til bygginga, og lét þau orð falla, að óhætt hefði verið að gefa út meiri leyfi, og færði hann þau rök fyrir máli sínu, að fátæktin mundi ráða því, hvað framkvæmt yrði og hverjir mundu ekki hagnýta leyfi sín. Nú hafði fjárhagsráð hagað störfum sínum svo, að það leit fyrst og fremst til þeirra umsókna, þar sem í hlut áttu menn með stórar fjölskyldur, er vildu byggja litlar íbúðir fyrir sig og fjölskyldur sínar. Það var því fyrst og fremst reynt að úthluta leyfunum þangað, sem það var vitað mál, að þau væru notuð til afnota fyrir fjölskyldur, sem mundu hagnýta húsnæði sitt sjálfar, en ekki til þeirra manna, sem hafa lifað á því á undanförnum árum að byggja íbúðarhús og selja til þess að græða á því stórfé, en slíkt hefur verið algengt á undanförnum árum. En það er eftirtektarvert, að eftir kenningum hv. 2. þm. Reykv. þá á fyrst og fremst að veita byggingarefni til þessara manna, en láta þá fátæku sitja á hakanum. Ég drep nú á þetta svona til gamans til þess að varpa ljósi á sleggjudóma þá, sem hv. þm. hefur haft hér í frammi. Hann hefur ekki kynnt sér þessi mál, en slegið fram fullyrðingum sínum í sínum mikla mælskuflaumi og án þess, að hann meini það, sem hann er að segja, eða viti, hvað hann er að fara. Nú var mér þetta ljóst þegar við 1. umr. málsins, er ég ræddi nokkuð skýrslu þá, sem fjárhagsráð hafði látið gera varðandi fjárfestinguna. Í álitsgerð þessari er sagt frá störfum fjárhagsráðs og störf þess gagnrýnd, en það má finna að verkum þess eins og öðrum mannlegum verkum. En einmitt þess vegna, að álitsgerð þessi er að nokkru athugasemd um störf fjárhagsráðs, þá sá ráðið, að eðlilegt væri að senda m. a. alþm. álitsgerðina, til þess að þeir gætu kynnt sér störf stofnunarinnar. En eftirtektarverðast við þessa álitsgerð er það, að skýrslan sýnir, að fjárhagsráð hefur gefið út of há fjárfestingarleyfi, en ekki of lág, eins og hv. 2. þm.. Reykv. talaði svo mjög um í ræðu sinni. Þeim ber því mikið í milli hv. þm. og hagfræðingi Sósfl., Jónasi Haralz, sem var einn þeirra hagfræðinga, sem sömdu þessa álitsgerð. Ég held, að það hefði verið ráðlegra fyrir hv. þm. að ráðfæra sig við hagfræðing kommúnista, áður en hann fór út á þessar vandlætingabrautir: Ef hv. 2. þm. Reykv. hefði gefið sér tíma til að lesa álitsgerðina, þá hefði það e. t. v. forðað honum frá því að lenda úti á þeim villigötum, sem hann hefur komizt á með allri meðferð sinni og mælgi í þessu máli. Í skýrslunni er m. a. bent á, að draga verði stórlega úr veitingum til nýrra íbúðarhúsbygginga til þess að geta lokið þeim, sem þegar hefur verið byrjað á. Fjárhagsráð hefur þegar veitt það mikil leyfi til bygginga, að erfitt mun reynast að fullgera þau hús, sem þegar eru langt komin. Hitt er svo annað mál og annar þáttur þess, að fjárhagsráð tók við byggingarmálum þjóðarinnar í hinu mesta öngþveiti eftir störf nýbyggingarráðs. Var svo komið, að erfitt var að finna grundvöll til að fóta sig á og vinna eftir á minna en 1½–2 ára tíma. Hv. hagfræðingur kommúnista kemst svo að orði á bls. 45 í álitsgerðinni, með leyfi forseta: „Í öðru lagi má fullyrða, að ekki sé nú með neinni fjárfestingu eða neinum tæknilegum framförum á skömmum tíma hægt að ná eins mikilli afkastaaukningu í þjóðfélaginu og hægt væri með því að draga úr hinni gífurlegu almennu ofþenslu í atvinnu- og viðskiptalífinu“. Og svo heldur hagfræðingur kommúnista áfram: „Ráðið til úrbóta á þessu sviði er því ekki fólgið í að auka veitingu fjárfestingarleyfa, heldur þvert á móti að draga úr henni“. Eins og þm. heyra, þá er þetta álit hagfræðings kommúnista, sem hv. 2. þm. Reykv. hefur miklar mætur á. Svo kemur hv. 2. þm. Reykv. hér og heimtar, að fjárhagsráð gefi út leyfi í belg og biðu, þó að því sé yfir lýst, að fjárhagsráð hafi gengið of langt í leyfisveitingum, en ekki of skammt. Um fjárfestinguna 1949 segja hagfræðingarnir m. a., með leyfi hæstv. forseta: „Með tilliti til þess, sem að framan hefur verið sagt, ætti það þó að vera auðskilið mál, að jafnmiklar leyfisveitingar og 1948 gætu ekki að öðrum ástæðum óbreyttum aukið raunverulega fjárfestingu, heldur aðeins valdið auknum glundroða.“ Með öðrum orðum, hvar sem er slegið upp í álitsgerð hagfræðinganna, ber að sama brunni. Hagfræðingarnir hafa algerlega gagnstæðar skoðanir við hv. 2. þm. Reykv. Hv. þm. vill, að gefin séu út leyfi í belg og biðu, án þess að séð sé fyrir, að nægur innflutningur sé tryggður, til þess að fullnægja megi leyfum þeim, sem út eru gefin. Ef ég væri í sporum hv. þm., þá mundi ég byrja á því að reyna að gera mér grein fyrir, hver aðferðin væri réttari, og kynna mér alla málavexti, áður en ég stæði upp og talaði, eða að öðrum kosti láta það vera. En hv. þm. hefur aðra aðferð, og það hefur margt einkennilegt upp úr honum komið, eins og t. d. þegar hann sagði eitthvað á þessa leið: Við höfum meiri getu en aðrar þjóðir til að byggja yfir íbúa lands vors og eigum ekki að stoppa, meðan við getum eytt 30 millj. kr. til bílanna. — Með öðrum orðum, meðan gegndarlaust er eytt til bifreiðakaupa, þá á að vera hægt að byggja hvað mest. Það er álit 2. þm. Reykv., en maður hefði nú haldið, að það væri raunhæfara að skera eitthvað niður innflutning bíla, en hagnýta heldur þann gjaldeyri, sem til þess færi, til kaupa á byggingarvörum og þar með aukinna framkvæmda í byggingarmálum. Það er von menn undrist þau rök, sem þessi hv. þm. lætur sér af vörum falla.
Nú, þá var hv. þm. að tala um það, að fjárhagsráð hefði ekki eftirlit með því, hverjir fengu leyfi fyrir gjaldeyri til vörukaupa.: Er mjög furðulegt, að þm. skuli ekki vita betur um þetta. Fjárhagsráð gerir aðeins áætlanir um fjárfestinguna og ákveður, hvað mikið magn skuli flytjast inn í hverjum vöruflokki. Það tilkynnir síðan viðskiptanefndinni þær ákvarðanir með fyrirmælum um að veita leyfi samkv. því, en viðskiptanefndin sér síðan um úthlutun leyfa á milli aðila. Þetta finnst mér nú, að hv. þm. ætti að vita. En þetta er raunar í samræmi við alla framkomu hv. þm., að hann er í endalausum ágreiningi við sjálfan sig. Hv. þm. hefur t. d. oft kvartað um skömmtunarfarganið, en í síðustu ræðu sinni leggur hann orð í belg, hvort ekki sé rétt að skammta allt byggingarefni. En á sama tíma snýr hann blaðinu við og hefur uppi mikla mælgi og stór orð, að allt verði að gefa frjálst og ekkert megi skammta, — fátæktin muni verða hinn mikli takmarkari og vöruskiptari. Ég vildi sannarlega stuðla að því að afnema skömmtun á sem flestum sviðum, og vonandi eru takmarkanir sem skömmtunin stundarfyrirbrigði. Hún er framkvæmd til þess að komast hjá vandræðum, en allir þeir, sem nokkuð þekkja til, hafa svipaðar hvatir og óska þess, að höftin verði ekki aukin enn frá því, sem nú er. En vitaskuld fer það eftir því, hvernig okkur mun vegna gjaldeyrislega.
Ég get svo látið útrætt við hv. 2. þm. Reykv. Mér finnst hann eins geta deilt við hagfræðing flokks síns; Jónas Haralz, eins og halda uppi mælgi hér í hv. þd. Ég vil ítreka það, sem ég hef áður sagt, að þó að ég sé ekki nema í vissum tilfellum sammála Jónasi Haralz, þá hefur hann svo mikla kunnáttu á þessum málum, að ég býst við, að hv. 2. þm. Reykv. hefði gott af að fara í skóla hjá honum, áður en hann talar mikið um þessi mál hér á Alþingi.
Hv. þm. Snæf. talaði hér — og það af nokkurri þykkju — um leyfisveitingar fjárhagsráðs til Reykjavíkurbæjar á síðasta ári. Hv. þm. hafði varla átyllu til þess, og var ég hvergi að gagnrýna framkvæmdir bæjarins í ræðu minni um daginn: Ég benti hins vegar á það, að bærinn hefði fengið nokkuð rífleg leyfi, sem hann hagnýtti ekki af einhverjum ástæðum. En þegar slíkt kemur fyrir, þá mun það leiða af sér, að það kemur niður á öðrum aðilum, sem annars hefði verið úthlutað því magni byggingarefnis, sem gert var ráð fyrir, að Reykjavíkurbær mundi hagnýta á árinu. Reykjavíkurbær fékk leyfi til byggingar á skóla í Langholti. Áætluð sementsþörf var 500 smálestir. Þá fékk bærinn leyfi til að byrja að byggja 40 íbúðarhús. Sementsþörf var áætluð ca. 200 smálestir. Alls hefur því bærinn fengið leyfi fyrir 700 smálestum af sementi, sem hann hagnýtti ekki. Ef reiknað er með venjulegum íbúðum og áætluð sementsþörf ca. 20 smálestir, þá lætur nærri, að hægt hefði verið að veita öðrum aðilum leyfi fyrir 35 íbúðum, en það eru fjölda margir aðrir, sem hefðu hagnýtt þetta. Það er því að taka frá öðrum, þegar ekki er byggt fyrir það, sem sótt er um og veitt er út á. Mér finnst ástæða til þess að benda á þetta, því að hv. þm., Snæf. talaði með nokkurri þykkju um málið. Nú hygg ég, að ég geti nú nokkuð lesið í eyðurnar varðandi framkomu bæjarins, að hann skyldi ekki sjá sér fært að byrja að byggja kjallara þessa 40 íbúða húss, en stöðvun framkvæmda af bæjarins hálfu hafi ekki verið sökum þess, að ekki fékkst að fullgera íbúðirnar. Ég held, að það sé frekar sú ástæða, að eftir þá reynslu, sem fékkst af byggingu Lönguhlíðarhúsanna svonefndu, þá hafi forráðamenn bæjarins verið í nokkrum efa og ekki talið heppilegt að byggja áfram í þeirri mynd og þess vegna hætt við þau byggingaráform, enda gat ekki slíkt farið saman, að efna loforð um byggingu ódýrra og hentugra íbúða og halda þeirri stefnu áfram, sem var við Lönguhlíð, því að það eru of dýr hús. Nú segir hv. þm. Snæf., að byggingarframkvæmdum hafi verið skotið á frest sökum þess, að l. um heilsuspillandi húsnæði hafi verið breytt af Alþingi. Ég skal ekki rengja hv. þm., en þetta finnst mér mjög ósennileg skýring. Bráðabirgðabreyt á l. var samþ. á Alþ. hinn 24. marz 1948, en fjárfestingarleyfið til bæjarins var dags. 5. maí 1948, og hefur þannig 1½ mánuður liðið frá því, að l. var breytt, þar til fjárfestingarleyfi fyrir íbúðarhúsunum er gefið út. Ég leyfi mér því að álykta, að ef breyt. l. hafi haft nokkuð að segja, þá hefði bærinn hætt við framkvæmdir þessar. Borgarstjóranum var því innan handar að sjá svo um, að ekki þyrfti að gefa leyfið út, þar eð l. hefði verið breytt. Mér finnst það vera ábyrgðarhluti, er sótt er eftir byggingarefni, sem lítið er af, og ekki hagnýtt.
Hv. 5. þm. Reykv. var að minna á loforð um, að húsaleigulögin væru afnumin. Ég veit ekki, hver hefur gefið þau loforð. Ég hef aldrei heyrt minnzt á slík loforð. Hann sagði einnig, að það væri ekki svo mikið húsnæði lengur, sem heyrði undir þessi lög. En ég vil upplýsa, að húsaleigun. telur það ekki vera rétt, að létta l. af, því að það er enn mikið húsnæði, sem l. þessi ná til, og mundi það því valda miklum glundroða, ef þau yrðu afnumin. Löggjöfin veldur ýmsum órétti, það skal viðurkennt, en hitt er ég hræddur um, að sá ójöfnuður, sem hv. 5. þm. Reykv. talar svo mikið um og aðrir, sem frv. fylgja, verði meiri, ef frv. þetta nær fram að ganga. Nú hefur verið á það bent, m. a. af hv. 1. þm. Árn., að húsaleiga sé afar misjöfn í bænum, og á það hafa flm. frv. líka bent og það mjög réttilega. Er því hyggilegt að varast hækkanir frá því, sem nú er, en reyna hins vegar að koma hér á jöfnuði, og vil ég minna hv. þm. á, að Alþfl. hefur lýst yfir vilja sínum til að breyta þessari löggjöf í þá átt, að húsaleiga verði samræmd og réttur leigutakanna sé tryggður engu að síður en leigjenda. Ef til vill er þetta sú leið, sem færust er út úr ógöngunum, og ef vilji er fyrir hendi að breyta til, þá verður að byrja á því að afnema ójöfnuðinn og rétta hlut þeirra leigjenda, sem búa við ósanngjörn kjör. Mér er ljóst, að ekkert nema gott vakir fyrir flm. þessa frv., en þeir eru á rangri leið, en það er enginn vafi, að það má finna aðra færa leið til að jafna agnúana á húsaleigulögunum, aðra en að hleypa öllu í öngþveiti.: