05.04.1949
Neðri deild: 86. fundur, 68. löggjafarþing.
Sjá dálk 134 í C-deild Alþingistíðinda. (3388)

49. mál, dýrtíðarráðstafanir

Áki Jakobsson:

Ég vil benda á ósamræmið í ræðu hæstv. forsrh., sem engum kemur á óvart, sem til þekkir. Hann sagði, að opinberir starfsmenn væru ekki á móti vísitölubindingunni út af fyrir sig, en þeir heimtuðu bara 36% launahækkun. Þetta eru nú rök. Auðvitað kæmi ekki þessi krafa fram, ef vísitalan væri rétt, en vegna þess að hún er bundin og fölsuð, er þessi krafa til. Og þegar athuguð er afstaða og aðstaða opinberra starfsmanna til leiðréttingar á kjörum þeirra, sér maður, hve þeir eru miklu verr settir, en verkalýðssamtökin, jafnvel þótt stjórn Alþýðusambandsins hafi gott samstarf við ríkisstj. um að halda kaupi verkamanna niðri, því að þrátt fyrir þessa forustu í Alþýðusambandinu hafa verkamenn borið fram kröfur um kauphækkun í samræmi við þá hækkun, sem orðið hefur á vísitölunni síðan 1947.

Verkalýðssamtökin eru heldur ekki á móti vísitölubindingunni, segir hæstv. ráðh., þau vilja bara fá hækkun, sem nemur hækkun vísitölunnar frá því, að hún var 319 stig. En það stendur þó óhaggað, að Alþýðusambandið lætur í veðri vaka, að það hvetji til verkfalla til að fá þessa leiðréttingu fram, á sama tíma og alþýðuflokksmenn hér á Alþ. standa á móti leiðréttingu á vísitölunni. Þetta er í hæsta máta undarlegt, og býst ég við, að af hálfu forustumanna þessa flokks sé um það eitt að ræða í raun og veru, að flokkurinn sé allur staðráðinn í að halda niðri kaupi verkafólks og launþega í landinu, en flagga með verkföllum annað veifið í blekkingarskyni.