07.04.1949
Neðri deild: 87. fundur, 68. löggjafarþing.
Sjá dálk 135 í C-deild Alþingistíðinda. (3393)
49. mál, dýrtíðarráðstafanir
Gylfi Þ. Gíslason:
Ég tel þá stefnu núverandi stjórnar Alþýðusambands Íslands og Bandalags starfsmanna ríkis og bæja réttmæta, að vilja vinna að því að bæta lágt launuðum launþegum á einhvern hátt þá kjaraskerðingu, sem þeir hafa orðið fyrir síðan dýrtíðarlögin voru sett.
Ég tel hins vegar ekki, að sú leið sé til þess heppilegust, að taka aftur að greiða mánaðarlega dýrtíðaruppbót á laun, var og tillaga þar að lútandi felld á síðasta alþýðusambandsþingi. Vegna þessa og í trausti þess, að tillit verði tekið til óska Alþýðusambandsins og B. S. R. B. um ráðstafanir til þess að bæta og samræma kjör verkalýðs og lágt launaðra launþega, segi ég nei.