29.11.1948
Efri deild: 19. fundur, 68. löggjafarþing.
Sjá dálk 160 í C-deild Alþingistíðinda. (3439)
76. mál, jeppabifreiðar
Flm. (Páll Zóphóníasson):
Herra forseti. Ég vil vænta þess, að ef hv. þm. Barð. reynir að hressa svolítið upp á minnið, þá viti hann í fyrsta lagi, að það er bannaður innflutningur á jeppabifreiðum, og í öðru lagi, þegar þeir komu síðast, var ákveðið, að Búnaðarfélag Íslands úthlutaði þeim ekki. Og ef jeppabifreiðar koma hér á eftir, þá er ekkert ákveðið um það, hverjir úthluti þeim. Þetta veit hv. þm., en honum er bara svo tamt að tala gegn því, sem hann veit bezt, ef hann heldur, að hann geti fengið einhvern til þess að trúa sér, þegar hann ófrægir menn eða stofnanir. Það er alveg óákveðið nú, hvort nokkrir jeppar verða fluttir inn eða hverjir úthluti þeim, og það er þess vegna, að ég flyt þetta frv., og einnig vegna hinnar miklu nauðsynjar á jeppum fyrir nautgriparæktarfélögin í landinu. Ég veit vel, að þetta er vandræðaástand. Og þetta frv. á engan rétt á sér, ef vissa væri fyrir því, að jeppar yrðu fluttir inn í landið á annað borð. Ég gæti hugsað mér tvenns konar afgreiðslu á þessu máli, að frv. yrði samþ., þótt segja megi, að það sé varasöm braut, en ég gæti einnig hugsað mér, að málið yrði afgr. með rökst, dagskrá, að í trausti þess, að inn í landið verði fluttir jeppabílar og þeim verði úthlutað réttlátlega og þar sem þörfin væri mest knýjandi, hvaða aðilar sem það gerðu, þá tæki deildin fyrir næsta mál. Ég sagði, að ég hugsaði mér ekki neina sérstaka afgreiðslu á þessu máli öðrum fremur, heldur aðeins að þeim tilgangi verði náð, að nautgriparæktarfélögin geti eignazt þessi nauðsynlegu tæki.
Ég ætla ekki að fara að tala um innflutning bifreiða almennt. En hæstv. ráðh. fór ekki með sannar fregnir áðan, að ekki hefðu verið fluttar inn bifreiðar nema út á gömul leyfi. Það eru ekki nema nokkrir dagar síðan sendur var listi upp í viðskiptanefnd yfir 6 bifreiðar, sem átti að flytja inn, án þess að áður hefðu nokkur leyfi verið gefin fyrir þeim eða búið að borga þær, nema kannske eina þeirra. En hver borgar þá? Það er eftir að vita. Eins og hv. 5. þm. Reykv. minntist á í sambandi við annað frv., um innflutning á jeppabifreið, á þskj. 56, þá hafa samkvæmt upplýsingum hagstofunnar verið fluttar inn 272 bifreiðar á 9 mánuðum, og það er vissa fyrir því, að þær hafa ekki nema sumar komið inn á þann hátt, sem hæstv. ráðh. talar um. Það er ekki nema svona 31 mánuður síðan maður bauð bifreið í kassa nýkomna til landsins á 85 þús. kr. Og þegar hann var spurður að því, hvernig stæði á því, að hann gæti á þessum tímum náð í svona bifreið, svaraði hann: „Ég lá bara yfir þeim dag eftir dag, og þá gekk það á endanum.“ Og þessi maður seldi bifreiðina fyrir 85 þús. kr. og tók hana aldrei upp úr kassanum sjálfur. Og þótt hæstv. ráðh. segi, að allar þær bifreiðar, sem fluttar séu inn nú, séu út á gömul leyfi og borgaðar fyrir ári síðan, þá er það ekki það sanna í málinu.