18.12.1948
Efri deild: 42. fundur, 68. löggjafarþing.
Sjá dálk 225 í B-deild Alþingistíðinda. (349)

107. mál, dýrtíðarráðstafanir vegna atvinnuveganna

Forseti (BSt):

Hv. þdm. vita, að ýmsum þm. liggur á að komast heim fyrir jólin. Síðasta skipsferð norður er á morgun, og er það eina örugga ferðin fyrir þá. Nú mundi samt sem áður ekki verða hægt að afgr. þetta mál í nótt nema með því móti, að hv. dm. bíði um stund og hv. fjhn. hafi mjög hraðar hendur um afgreiðslu þessa máls. Ég vil því prófa það að boða næsta fund kl. 2 nú í nótt. Það gæti farið svo, að þeim fundi yrði að slíta, vegna þess að ekki verði nægilegur undirbúningur undir hann af n. hálfu, og þá getur málinu ekki orðið lokið fyrr en á mánudag, en ég hef góða von um að þetta megi takast.