07.12.1948
Efri deild: 26. fundur, 68. löggjafarþing.
Sjá dálk 196 í C-deild Alþingistíðinda. (3503)
47. mál, menntaskólar
Gísli Jónsson:
Herra forseti. Ég ætla ekki að ræða hina efnislegu hlið málsins, því að það var rætt ýtarlega á síðasta þingi, en vegna afgreiðslu frá n. vildi ég setja fram nokkrar fyrirspurnir til hv. frsm. — Hann gat þess fyrst í sinni ræðu, að hann kysi heldur harða baráttu á móti en að þm. þvældust fyrir í málinu, og geri ég ráð fyrir, að hann hafi átt við minni hl. n., en ekki d., og skilst mér þá, að meiri hl. hafl notað þá aðstöðu að setja fram nál., meðan þessir þm. eru fjarverandi, svo að þeir séu ekki að þvælast fyrir. En ég vildi benda á það, að það er ekki óeðlilegt, þó að hv. 1. þm. Reykv. vildi fá nokkurn frest til að kynna sér þetta mál, því að hann hefur ekki verið kunnugur málinu frá fyrri þingum, eins og hv. 2. þm. Árn., og vil ég fyrir hans hönd mótmæla því, að hann hafi þvælzt fyrir í málinu, nema af eðlilegum ástæðum að óska eftir hæfilegum tíma, og er ekki minni sómi að því heldur en að meiri hl. n. setur málið í gegn vitandi það, að þessi hv. þm. er fjarverandi, og notar síðan aðstöðuna til að knýja málið fram í n. En af tilefni nál. vil ég gera fyrirspurn til hv. frsm. um það, hvort n. hafi rætt þetta mál við hæstv. menntmrh., og þá, hvaða svör hann hefur gefið í málinu, og hvort n. hefur rætt við fræðslumálastjóra og mþn. í skólamálum, því að frá mþn. í skólamálum hefur komið ýtarlegt frv. um menntaskóla í landinu, sem síðar varð að l., og þar er byggt upp ákveðið skólakerfi og er ekki óeðlilegt að n. hafi sent málið til umsagnar til þeirrar n. eða rætt við hana. Eins væri gott að fá upplýsingar um, hvort n. hefur rætt þetta mál við viðkomandi héruð, því að mér er kunnugt um, að þessi héruð eiga nú hluta í þeim skólum, sem starfa sem gagnfræðaskólar. Ég sé, að hv. frsm. ætlast til, að það verði byggður nýr menntaskóli á Ísafirði og þar eigi þá áfram að starfa gagnfræðaskóli, þó að hann hugsi sér til bráðabirgða að auka við kennsluna og hún verði í gagnfræðaskólanum, og tekur hann þar upp till. frá mér frá í fyrra, sem hann þá var á móti. Ég benti þá á, að með samkomulagi við menntmrh. mætti bæta við einum bekk á Ísafirði, en honum þótti það fjarstæða, en ég sé, að hann er kominn inn á það nú. Ég vil einnig í sambandi við þetta benda á, hvað viðvíkur Vestfirðingafjórðungi, að það var haldinn stór fundur á Rafnseyri fyrir 4 árum, sem hv. þm. V-Ísf. gekkst fyrir að halda með ýmsum skólanefndum í Vestfirðingafjórðungi, og þá álitu allir sjálfsagt að koma upp menntaskóla á Rafnseyri í minningu um Jón Sigurðsson. Það er nú svo með þann stað, að hann er að fara í eyði og hefur verið prestlaus í mörg ár. Það vaknaði einu sinni áhugi fyrir þessum stað, og voru þá veittar 150 þús. kr. til að hressa hann við, og þá var a. m. k. hugsað af viðkomandi aðilum, m. a. þessum flokksbróður hv. frsm., að reyna að koma upp menntaskóla á þessum stað í minningu Jóns Sigurðssonar. Nú vildi ég gjarna heyra frá hv.. frsm., hvort hann hefur haft nokkra samvinnu um þetta við þessa aðila og hvort þeir séu sammála um, að í staðinn fyrir skóla á Rafnseyri vilji þeir styðja hugmynd um að setja skólann upp á Ísafirði. Ég sé, að til þingsins hefur komið áskorun varðandi þetta mál frá Norður-Ísfirðingum, en ekki Vestur-Ísfirðingum. Hins vegar furðar mig ekkert á því, þó að Ísfirðingar sæki það fast að fá menntaskóla á Ísafirði og vilji skaffa ókeypis lóð undir skólann, því að þetta getur verið stórkostlegt fjárhagslegt atriði fyrir bæinn, því að hann mundi taka á móti hærri upphæð í útsvörum í sambandi við vinnu við bygginguna heldur en sem svarar þeirri upphæð, sem lóðin kostar. Auk þess mundi hann fá góðar tekjur af þeim kennurum, sem yrðu á föstum launum við skólana, og er þess vegna ekki óeðlilegt, þó að Ísafjörður vilji fá skólann á staðinn. Þá vil ég benda á það, að það hafa komið fram mjög sterkar kröfur um það frá prestastéttinni, að menntaskóli verði byggður í Skálholti, og ég býst við, að biskup landsins standi þar framarlega til að halda uppi fornri minningu um Skálholtsstað, og væri fróðlegt að fá að vita, hvort hugsað er annars vegar að byggja tvo menntaskóla í Árnessýslu eða hvort fullt samkomulag er um að hafa skólann heldur á Laugarvatni, en í Skálholti. Nú var að heyra á hv. 2. þm. Árn., að þetta sé heldur litið áhugamál þar eystra, og kann það að stafa af því, að þeir hafi meiri áhuga á væntanlegum menntaskóla í Skálholti. En mér er kunnugt um, að þeir aðilar, sem hugsa sér að berjast fyrir endurreisn Skálholtsstaðar sem menningarseturs, hugsa sér að þar verði reistur menntaskóli.
Nú upplýstist það nýlega í Sþ., að hæstv. menntmrh. hefur á s.l. ári látið starfrækja menntaskóla á Laugarvatni, að vísu í óleyfi, hann hefur tekið í óleyfi úr ríkissjóði 40.000 kr., og sé ég þá ekki ástæðu til að verðlauna það alveg sérstaklega með því að ákveða með l., að menntaskóli skuli þar vera, og hafi hann fengið syndakvittun frá þinginu í sambandi við þetta fjárnám, þá syndgar hann kannske upp á náðina aftur og heldur menntaskóla á Laugarvatni næsta vetur án þess að fá lagafyrirmæli um það hér. En ekki hefði verið óeðlilegt, að Alþ. hefði fengið að vita um það, hvort þetta mál hefur verið rætt við hann, ekki sízt vegna fortíðar hans í þessu máli.
Hv. frsm. gat þess, að það væri og mikil fórn fyrir Vestfirðingafjórðung að senda sína nemendur til Reykjavikur, og er ég honum sammála um það, að það er ekki lítill kostnaður fyrir þá nemendur, sem eiga heima á Ísafirði; að fara annaðhvort til Reykjavíkur eða Akureyrar til náms í 4–6 ár. En því er heldur ekki að neita, að það er sami kostnaður fyrir aðra nemendur, sem þurfa að fara til Ísafjarðar, og þetta kemur því ekki til góðs fyrir aðra en þá, sem búsettir eru á Ísafirði. Það er hins vegar rétt, sem hv. 2. þm. Árn. tók fram, að það er ákaflega mikið atriði fyrir alla þessa nemendur og landið í heild, að heimavist sé gerð bæði ódýr og hentug. Verða skólarnir aldrei til sparnaðar fyrir aðra en þá, er í heimavist eru. Hér er aðeins verið á byrjunarstigi. Heimavistin á Akureyri er ekki komin upp sakir fjárskorts. Ef það á að koma þrem menntaskólum á fót, er þar með íþyngt þeim, sem fengið gætu ódýrara uppihald. En hið eina, er mildað gæti kostnaðinn, er ódýr og hagkvæm heimavist.
Þá vil ég spyrja, hvernig n. hefur gert sér grein fyrir kostnaðarhliðinni. Er óeðlilegt, þegar borin eru fram frv., að hv. þm. geri sér enga hugmynd um kostnaðinn. Þótt segja megi, að eigi hafi svo mjög verið hugsað um þetta undanfarið, þá er hagur ríkissjóðs nú engan veginn svo, að ástæðulaust sé að gefa þessu gaum. Ég minnist þess um önnur mál, að fjarstæða þótti að minna á þetta og ræða um kostnaðinn, m. a. í fyrra.
Ég brosti, þegar getið var um 60 forustumenn á Ísafirði, einvörðungu í menntamálum, hvað þá öðrum. (HV: Ég vil vísa hv. þm. inn á lestrarsal.) Já, en þetta nær engri átt í einum kaupstað. Ef öll röksemdafærsla hv. þm. er á sömu lund, þá virðist mér hún hálffúin.
Að lokum vil ég benda á, að frá Ísafirði hefur komið krafa um sjómannaskóla, og var sótt mjög fast að fá fé veitt til hans. M. a. voru þau rök færð, að mikill kostnaður væri því samfara að senda menn til Reykjavíkur og auk þess væri réttlætanlegt að gera þetta, af því að fyrsti sjómannaskóli landsins hefði einmitt verið á Ísafirði. En að mjög athuguðu máli þótti það nú ekki hagkvæmt. Jafnvel Ísfirðingar sjálfir hurfu að þeirri skoðun, að betra væri að hlúa að eina stóra sjómannaskólanum í Reykjavík. (HV: Allir skólar eiga að vera í Reykjavík.) Ég bendi á, að öll rök hníga á þá leið, að réttara væri að hlynna að skólanum í Reykjavík og gera þessum mönnum kleift að sækja þangað ódýra skólavist.
Ég þykist vita, að hv. frsm. lítur eigi á þessi orð mín þannig, að þau lýsi andúð minni á þessu máli. Ég vil, að sem flestir fái að njóta námshæfileika sinna, þeir er þess æskja. Hér er aðeins um það að ræða, að menn vilja fara mismunandi leiðir. Hallast ég að þeirri skoðun, að búa beri vel að þeim skólum, sem fyrir eru í landinu, eða a. m. k. sé komið í veg fyrir, að heimavistir og skólastofur þurfi að standa hálftómar, vegna þess að þær eru ófullgerðar. En það stafar aftur af því, að byrjað er á of mörgu í einu. T. d. er mjög vanráðið um framkvæmdirnar að Laugarvatni, og er betra að ljúka við hálfgerðan hlut, en byrja á öðrum. Mér skilst, að hæstv. ráðh. og ýmsir aðrir séu fastráðnir í því að koma upp menntaskóla að Laugarvatni, enda tekur hæstv. ráðh. heimildarfé til þess.
Ég geri ráð fyrir, að hæstv. forseti muni fresta þessari umr. Hins vegar mælist ég ekki undan atkvgr., þó að ég vildi gjarna fá atkv. sem flestra hv. þdm.