22.04.1949
Neðri deild: 90. fundur, 68. löggjafarþing.
Sjá dálk 221 í C-deild Alþingistíðinda. (3534)
47. mál, menntaskólar
Finnur Jónsson:
Herra forseti. Ég vil í tilefni af hinni rökstuddu dagskrártillögu menntamn., um ástæður fyrir því, að menntaskóli sé ekki stofnaður í sveit, spyrja, hvort ekki er veitt menntaskólakennsla að Laugarvatni, og ef svo er, þá virðist mér eftir dagskrártill., að sá skóli sé stofnaður án nokkurrar lagaheimildar. — Mér er kunnugt um það, að á Ísafirði er mikill áhugi fyrir því, að hægt verði að fá þar einhverja menntaskólakennslu, þótt það jafnvel yrði ekki nema að litlu leyti. Ég vil því spyrja: Ef hægt er að stofna slíkan skóla á Laugarvatni, er þá ekki hægt að gera það sama á Ísafirði?