29.04.1949
Neðri deild: 95. fundur, 68. löggjafarþing.
Sjá dálk 225 í C-deild Alþingistíðinda. (3546)
159. mál, þingfararkaup alþingismanna
Frsm. meiri hl. (Jóhann Hafstein):
Herra forseti. Eins og nál. á þskj. 584 ber með sér, þá hefur meiri hl. allshn. ekki getað fallizt á, að þetta frv. næði nú fram að ganga, en þó, eins og nál. einnig ber með sér, eru ýmis sjónarmið, sem gætu réttlætt ýmislegt, sem í frv. stendur og annað varðandi þingfararkaup alþingismanna. Það er orðið nokkuð langt síðan þetta frv. varð til, því að í byrjun þings sendi hæstv. forsrh. það til þingflokkanna, til þess að þeir segðu álit sitt um það, hvort flytja bæri frv. Síðan leið langt fram á þing, án þess að frv. væri flutt, og virtist þá ekki mikill áhugi fyrir því, og þegar það var lagt fram, þá virtist heldur ekki mikill hugur fylgja máli af hendi þeirra, sem það höfðu tekið til flutnings. Höfuðástæðan fyrir því, að við getum ekki mælt með samþykkt þessa frv. nú, þrátt fyrir það að við teljum ýmislegt í því réttlætanlegt, er sú, að vegna núverandi aðstæðna, þá þarf sem mest að halda niðri öllum kostnaði við rekstur hins opinbera, og ef þingmenn fara að gefa sjálfum sér kjarabætur, þá mætti segja, að þeir gæfu þar með fordæmi fyrir aðrar launastéttir að krefjast kauphækkana. Við leggjum því til, að frv. verði afgreitt með rökstuddri dagskrá, enda þótt það væri fullkomið réttlæti að bæta kjör þingmanna, ef borið er saman við aðra, því að það er staðreynd, að þeir, sem þurfa að fá menn fyrir sig til að sinna sínum störfum, á meðan þeir sitja á þingi, þeir geta ekki borið kostnaðinn af þeirri vinnu, sem þeir þurfa að kaupa, með þingfararkaupi sínu, og þótt þeir þm., sem búa hér í Reykjavík og nágrenninu, geti að mestu sinnt sínum störfum á meðan þing stendur, þá þurfa þeir þó oft vegna setu sinnar á Alþingi að kaupa nokkra aukavinnu, og sést því, að hvort sem þm. búa utan eða innan Reykjavíkur, að þá eru þeir ekkert ofhaldnir af núverandi launum sínum. Ég skal svo ekki fara um þetta fleiri orðum að sinni, en við leggjum til, að frv. verði vísað frá af þeim ástæðum, sem ég hef nú greint og fram koma í hinni rökstuddu dagskrá á þskj. 584.