29.04.1949
Neðri deild: 95. fundur, 68. löggjafarþing.
Sjá dálk 227 í C-deild Alþingistíðinda. (3548)

159. mál, þingfararkaup alþingismanna

Frsm. meiri hl. (Jóhann Hafstein):

Herra forseti. Ég vil aðeins taka það fram, að þetta tal um að gera þm. óháða með því að borga þm. hærra kaup og að þeir tækju þá ekki laun fyrir nefndarstörf, er út í bláinn. Það er atriði út af fyrir sig, en það liggur bara alls ekki fyrir í þessu frv.