29.04.1949
Neðri deild: 95. fundur, 68. löggjafarþing.
Sjá dálk 227 í C-deild Alþingistíðinda. (3549)
159. mál, þingfararkaup alþingismanna
Frsm. minni hl. (Áki Jakobsson) :
Herra forseti. Það er rétt, að þetta er ekki beinlínis tekið fram í frv.; en ég hef í nál. áskilið mér rétt til að flytja brtt. og fylgja, og um þetta atriði hefur einmitt oft verið rætt í sambandi við kaup þm. Þetta kemur harðast niður á þm. utan Rvíkur, það getur enginn maður með fjölskyldu lifað af þingfararkaupi sínu í Rvík. Ef hann finnur ekki náð fyrir augum ríkisstj. og hann er ekki settur í launaða nefnd, verður hann að borga fleiri þúsundir með sér. Allir þm. utan af landi, a. m. k. þeir, sem hafa fyrir fjölskyldu að sjá, geta staðfest, að þetta er rétt. Með 73 kr. dagkaupi er ómögulegt að halda sjálfum sér uppi í Rvík og fjölskyldu úti á landi.
En þetta mál er ekki eingöngu um kauphækkun, þetta er spursmál um aðstöðu þm. til að geta gegnt skyldustörfum sínum, og er þannig um að ræða undirstöðu okkar þingræðis. Með þessu er valdagjörnum klíkum gert óhægra um vik að kaupa fylgi þingmanna og kúga þá. Sá leikur er alkunnur víða, og var t. d. leikinn í Englandi, þar sem þingmenn fengu ekkert kaup, og það voru því auðmenn einir, sem gáfu sig í það að gerast þingmenn. Hér er því um að ræða stórt skref áfram á braut þingræðis, og það er sannarlega ekkert hégómamál, hvort þingmenn þurfa að vera betlandi á ríkisstj. eða ekki, til þess að geta setið á þingi. Þetta er því lýðréttindamál og spursmál um viðhald þingræðisins. Yfir lýðræði okkar vofir nú háski, meiri en nokkru sinni fyrr, og gerir það þetta mál enn brýnna. Ég veit vel, að valdaklíkurnar, sem undanfarið hafa ekki gert hér eina einustu þýðingarmikla samþykkt nema til bölvunar almenningi í landinu, vilja hafa þingmenn sem háðasta sér og munu spyrna á móti því, að þetta mál nái fram að ganga. Menn, sem hafa kapitalísk fyrirtæki gangandi, geta setið á þingi hvort sem þingfararkaup er hærra eða lægra, einkum ef þeir hafa nú búsetu í Rvík og þykjast ekki þurfa að mæta á þingi, nema þegar þeim sýnist. Hinir, sem standa einir uppi og eiga e. t. v. auk þess heima utan Rvíkur, eru verr settir. Hvenær sem kallið kemur, verða þeir að mæta á þingi, og þegar því er lokið hefur ríkið engar frekari skyldur við þá. Oft hefur verið það ástand hér, að þeir hafa ekki getað gripið til atvinnu á stundinni að þingi loknu. Og þeir þingmenn t. d., sem hafa gegnt kennarastörfum, hafa átt allt aðra aðstöðu en þeir, sem sitja í ríkisembættum. Þeir hafa ekki getað sameinað hvort tveggja. Einu mennirnir, sem örugglega geta setið á þingi, eru þeir, sem hafa fyrirtæki gangandi eða sitja í ríkisembættum.
Ég vildi ekki láta þetta mál svo fara hjá, að hv. þm. gerðu sér ekki ljóst, að þetta er ekki fyrst og fremst kjarabótamál, heldur lýðréttindamál og frumskilyrði þess, að þingmenn geti jafnan tekið afstöðu til mála eftir sannfæringu sinni einni.