06.05.1949
Neðri deild: 102. fundur, 68. löggjafarþing.
Sjá dálk 232 í C-deild Alþingistíðinda. (3561)

166. mál, utanríkisráðuneytið og fulltrúar þess erlendis

Frsm. meiri hl. (Finnur Jónsson):

Herra forseti. Allshn. hefur athugað þetta frv. og ekki orðið sammála. Minni hl. n., hv. 1. þm. Árn. og hv. þm. Siglf., leggur til, að málið nái fram að ganga, en meiri hl. leggur til, að málið verði afgr. með rökst. dagskrá, sem er á þskj. 599. Svo sem kunnugt er, voru lög sett um utanríkisráðuneyti Íslands og fulltrúa þess erlendis 1941. Samkvæmt þeim ákveður stj., á hvaða stöðum skuli vera sendiráð. Þar er líka ákveðið, að forstöðumanni sendiráðs sé heimilt að veita forstöðu sendiráðum í fleiri löndum, ef stj. telur það rétt. Samkvæmt l. hefur verið stofnað eitt sendiherraembætti í Vesturálfu heims, bæði fyrir Bandaríkin og Kanada, og getur það ekki talizt ofrausn, þar sem ekki hafa verið gerðar ráðstafanir til þess að koma á fót sendiráðsskrifstofu í Suður-Ameríku, þó að segja megi, að nauðsynlegt sé að hafa þar sendiráð af viðskiptaástæðum. Á öðrum stöðum í Vesturálfu veit ég ekki til, að séu launaðir sendimenn, heldur hefur stj. farið þá leið að skipa nokkra ræðismenn. Ég veit ekki, hvaða gagn þeir gera, en hæpið er, að af því séu full not þar, sem líkur eru á verulegum viðskiptum. Ég þarf ekki að taka það fram, að í Ástralíu, Afríku og Asíu höfum við enga sendiherra. Í Norðurálfu höfum við þrjá sendiherra á Norðurlöndum, einn í Frakklandi og einn í Bretlandi. Ekkert sendiráð er í Rússlandi. Þar var á sínum tíma sendiráð, en sendiherrann, sem þar var, var kvaddur til annarra starfa. Ég held, að ekki leiki á tveim tungum, að nauðsynlegt sé að hafa sendiráð á sem allra flestum stöðum, þar sem líkur eru fyrir viðskiptum, sérstaklega þar, sem veruleg von er um útflutningsviðskipti. Sú heimild, sem er í l. um, að sendimenn annist forstöðu sendiráða í fleiri löndum en einu, hefur sérstaklega verið notuð í sambandi við sendiherrann í Frakklandi. Ég hygg, að hann sé nú sendiherra í svo mörgum löndum, að ekki verði meira á bætt. Hins vegar veita þeir sendiherrar, sem nú eru í Bretlandi og á Norðurlöndum, ekki forstöðu nema einu sendiráði, nema sendiherrann í Kaupmannahöfn, sem líka er sendiherra í Finnlandi. Hér mætti gera breyt. á og hafa t. d. bara einn sendiherra fyrir öll Norðurlönd, eða fela þeim nokkru umfangsmeiri störf. Þrátt fyrir þetta telur þó meiri hl. n. tæplega rétt að fastbinda þetta nú með l., eins og gert er í frv. Viðskipti í Evrópu eru langt frá því að vera komin í eðlilegt horf, heldur má segja, að þau taki mánaðarlega breytingum. Meðan svo er, er tæplega rétt að ákveða tölu sendiherra og sendifulltrúa með l. Það getur ætíð komið fyrir, að nauðsynlegt sé og rétt að setja upp sendiherraskrifstofu, og þá er óheppilegt að þurfa að fara með það til Alþ. í hvert sinn. Meiri hl. n. leggur því til, í því trausti, að ríkisstj. gæti hins fyllsta sparnaðar og hagsýni viðvíkjandi kostnaði við sendifulltrúa erlendis, að frv. verði afgr. með rökst. dagskrá.