19.12.1948
Efri deild: 43. fundur, 68. löggjafarþing.
Sjá dálk 237 í B-deild Alþingistíðinda. (358)
107. mál, dýrtíðarráðstafanir vegna atvinnuveganna
Gísli Jónsson:
Herra forseti. Ég skal vera mjög stuttorður. Ég þakka hæstv. fjmrh. fyrir þær yfirlýsingar, sem hann hefur gefið hér í sambandi við mínar fyrirspurnir. Ég átti von á því, að hann sýndi þessu máli þann skilning, sem kom fram í hans svörum, og er mér miklu ljúfara, eftir að hafa heyrt hans svör, að fylgja þessu frv. heldur en áður. Þess var að vænta, að sá djúpi skilningur, sem hann hefur jafnan haft á sjávarútvegsmálum, réði mestu um svör hans. Og ég þakka honum fyrir hans afstöðu í þessu máli.
Út af öðrum þeim orðum, sem féllu í ræðu hæstv. ráðh. og gátu snert nokkuð það, sem ég hafði sagt í minni fyrri ræðu, vil ég taka fram, eins og í upphafi míns máls, að þó að núverandi hæstv. ríkisstj. hafi ekki upphaflega farið þessa leið, þ.e. byrjað að fara þá leið, að ríkissjóður tæki á sig ábyrgð á fiskverði, heldur hafi núverandi hæstv. ríkisstj. tekið við sem arfi frá fyrrv. ríkisstj. um 20 millj. kr. skuld vegna ábyrgða, sem í þessum efnum höfðu verið veittar, þá er ljóst, að sú ábyrgð, sem áður var tekin á fiskverðinu, var þannig, að það var ekki ætlazt til þess, að greiðslur vegna þeirra ábyrgða kæmu beint úr ríkissjóði, en það var annar samþykkjandi á þeim víxli, sem brást fyrir sérstök óhöpp, og fyrir það fékk ríkissjóður þennan skell. Þetta hefði sannarlega átt að vera nægileg viðvörun — og er ekki í þessu nein ásökun til hæstv. ríkisstj. - til þess, að stungið væri við fæti, því að eins og kom fram bæði í minni ræðu og ræðu hv. þm. Str., þá var þar ekki um ríkisábyrgð að ræða í venjulegum skilningi, þegar fyrst var tekin ábyrgð á fiskverðinu, heldur verðjöfnun milli tveggja atvinnugreina innan útvegsins sjálfs. Skal ég svo láta úttalað um þetta.
En út af ummælum, sem hv. þm. Dal., frsm. meiri hl. fjhn., hafði um þetta mál, vil ég segja aðeins nokkur orð. Hann lauk máli sínu með því að segja, að hann tryði því ekki, að útvegurinn gerði alvöru úr því að fara í verkfall, eftir að þetta frv. yrði samþ. Nú vildi ég mega spyrja þennan hv. frsm.: Mundi hann telja það verkfall, ef hann, hv. þm. Dal., sendi þjón sinna erinda yfir fjallveg með lítið veganesti og sá þjónn yrði svo óheppinn að fá hríð á leiðinni og yrði svo örmagna af matarleysi og hvíldarleysi og hann gæfist upp á miðri leið? Mundi hv. frsm., ef þessi þjónn væri að fara þessa ferð fyrir hann, hv. þm. Dal., telja, að þarna væri um verkfall að ræða? En þetta væri hliðstætt þeim kjörum, sem hæstv. Alþ. hefur skapað útveginum, sem hefur verið dyggasti þjónninn við öflun fjár í ríkissjóðinn. — Nei, útvegurinn er ekki hér að gera verkfall, ég mótmæli því. Útvegurinn stöðvast ekki, nema því aðeins að hann komist í þrot fyrir aðgerðir Alþ. Og það á ekkert skylt við neitt verkfall.
Ég vil í sambandi við till., sem komið hefur fram frá hv. 4. landsk. þm., benda á, að það er óþarft að samþ., að einn fjórði af þar nefndum gjaldeyri fari til þessara manna til þess að kaupa nauðsynjar til útgerðarinnar, því að þessi útvegur hefur alltaf fengið allan þann gjaldeyri með því verði, sem hann er skráður á Íslandi, sem hann hefur þurft til þess að kaupa nauðsynjar til útgerðarinnar. Honum hefur aldrei verið neitað um það. Og þar kom einnig fram hugsunarvilla hjá hv. þm. Str., sem mér þykir rétt að leiðrétta hér. Hann sagði, að ef bátaútvegurinn gæti fengið gjaldeyri líkt og togarar fengju, væri honum borgið. Togararnir hafa aldrei fengið annan gjaldeyri en þann, sem þeir hafa þurft til sinnar útgerðar, og aldrei neinn hluta af gjaldeyri, sem þeir hafa aflað, til þess að selja á svörtum markaði fyrir hærra verð, en skráð hefur verið á honum. Og bátaútvegurinn hefur fengið allan þann gjaldeyri, sem hann hefur þurft til sinna nauðsynja. Hitt er annað atriði, að hann hefur fengið sínar nauðsynjar gegnum aðra innflytjendur. En það á ekkert skylt við þetta mál.
Í sambandi við fyrirspurn, sem kom fram frá hv. 1. þm. N-M. og var að nokkru leyti svarað af hæstv. ráðh., vildi ég aðeins leyfa mér að benda á til frekari skýringar, af því að ég var við, þegar gengið var frá ákvæðunum í 5. gr. frv. á þskj. 270 um þær 5 millj. kr., sem bætt var við, sem verja á til þess að lækka kostnað við framleiðslu sjávarafurða, að svo var til ætlazt, þó að það sé ekki sagt berum orðum í frv., að þær eigi að vera greiddar úr dýrtíðarsjóði, og sést það bezt á 30. gr. frv. á þskj. 270 með samanburði við 29. gr. á þskj. eins og þetta frv. var lagt fram fyrst, því að bætt var inn í þessa gr. tveim nýjum tekjuliðum, sem eru undir stafi. d og e, og var það gert bókstaflega með það fyrir augum, að þær auknu tekjur væru notaðar til þess að standa undir þeim kostnaði, sem 5. gr. frv. á þskj. 270 heiði í för með sér, þ.e.a.s. að leggja fram 5 millj. í áðurgreindu skyni. Og þetta er bezta sönnunin fyrir því, að þetta 5 millj. kr. framlag á að greiðast úr dýrtíðarsjóði, að þessum tveimur tekjuliðum hefur verið bætt inn í núverandi 30. gr. frv.
Ég sé svo ekki ástæðu til að ræða þetta mál frekar og vil enn leyfa mér að endurtaka þakklæti mitt til hæstv. ráðh. fyrir hans yfirlýsingar í málinu.