17.05.1949
Efri deild: 112. fundur, 68. löggjafarþing.
Sjá dálk 264 í C-deild Alþingistíðinda. (3607)

34. mál, fjárhagsráð

Guðmundur Í. Guðmundsson:

Herra forseti. Þetta frv. kom til fjhn. fyrir nokkrum dögum og hefur einu sinni verið tekið fyrir í n. Ég óskaði þess þá, að afgreiðslu málsins yrði frestað, og rökstuddi þá ósk með því, að í Nd. væri á ferðinni frv. um skipun þessara mála og ég vildi kynna mér, hvernig málið stæði í Nd. og hver yrði afgreiðsla n. þar, áður en við afgr. þetta mál í fjhn. hér og tækjum afstöðu til þess. Tveir hv. nm. gátu ekki fallizt á þetta og hafa gefið út sérstakt nál., en meiri hl. n. hefur ekki afgr. málið, og það er í athugun hjá einstökum nm. Ég verð eindregið að óska þess, að hæstv. forseti taki ekki málið á dagskrá, heldur gefi meiri hl. n. tækifæri til að athuga það betur, ef við þrír skyldum geta komið okkur saman.