17.05.1949
Efri deild: 112. fundur, 68. löggjafarþing.
Sjá dálk 266 í C-deild Alþingistíðinda. (3610)

34. mál, fjárhagsráð

Forseti (BSt):

Hv. þm. Dal. og hv. 7. landsk. hljóta að sjá og skilja, að ekki er hægt að hafa sömu reglu á síðasta starfsdegi þingsins og fyrr á þinginu., (ÞÞ: Er þetta síðasti starfsdagur?) Það mun vera ákveðið að slíta þingi á morgun, og ég geri því ráð fyrir, að þetta sé síðasti starfsdagur þessarar hv. d. Hefði þessi ósk komið fram fyrr, hefði ég að sjálfsögðu orðið við slíkum tilmælum. Annars má benda á, að í Nd. mun aldrei hafa komið nál. nema frá minni hl. (ÞÞ: Því meiri nauðsyn.) Frv. er samþ. í Nd. og þannig möguleiki tímans vegna að gera það að l., ef hv. d. vill. Ég tel því ekki forsvaranlegt að hindra, að atkv. gangi um málið. Hins vegar skal ég fresta umr. til klukkan fimm, ef n, telur sig hafa gagn af því: Er þá málinu frestað til klukkan fimm, enda hafa hv. nm. engan annan tíma: (GÍG: Við höfum ekki einu sinni þann tíma.)