28.01.1949
Neðri deild: 54. fundur, 68. löggjafarþing.
Sjá dálk 269 í C-deild Alþingistíðinda. (3621)

44. mál, jeppabifreiðar

Sigurður Kristjánsson:

Herra forseti. Ef enginn úr hv. fjhn. sér ástæðu til að kveðja sér hljóðs í þessu máli, þá liggur næst, að ég mæli nokkur orð út af frv. — Er það fór til n. fyrir 12 vikum um það bil, var ég ekki viðstaddur og óskaði því eftir, að hæstv. forseti léti málið koma til umr. En ég sá enga ástæðu til að tefja það, enda fór frv. umræðulaust áleiðis. Vegna þess er enn meiri ástæða fyrir mig að segja nokkur orð um málið, áður en gengið er til atkv. En ég vænti þess, að ekki verði út á það sett, þó að ég fari í byrjun almennum orðum um frv. — auk aths. við einstakar gr. frv., sem eru fáar.

Það, sem ég vildi byrja á, er stofnun þjóðgarðsins. Að sumu leyti hef ég verið svo lánsamur að vera falin umsjón með honum meðal þriggja manna, en að öðru leyti hafa orðið ýmsir örðugleikar varðandi þetta starf. Þjóðgarðurinn á Þingvöllum var stofnaður rétt fyrir þúsund ára afmæli Alþingis. Þótti þá vel við eiga, úr því að þjóðin var svo heppin að geta haldið það hátíðlegt, að þess yrði minnzt með því að ákveða í l. sérstaka helgi á þessum stað. Þjóðfélagsstofnun hér á landi og jafnframt lýðveldi og fornbókmenntir vorar eru þeir hlutir, sem Ísland á að þakka virðingu annarra þjóða, — og án þeirra væri Ísland eigi sjálfstætt ríki í dag. Nú er það skylda vor að halda uppi heiðri hinnar þúsund ára gömlu þjóðfélagsstofnunar. Það er háttur flestra eða allra þjóða að eignast einhverja þjóðardýrgripi, eitthvað, sem alþjóð getur talið sameign sína. Þegar ákveðið var að gera Þingvelli að slíkum þjóðardýrgrip, var ekki um missýningu þar að ræða. En missætti nokkurt varð í upphafi, einkum vegna þess, að leggja varð tvær allgóðar jarðir til þjóðgarðsins. Aðrir töldu þetta tildur eitt. Menn eru yfirleitt seinir til að veita því viðurkenningu, er aðrir hafa fundið upp. Þessi krytur er þó horfinn nú. Eru nú sveitarmenn og almenningur sammála um, að Þingvöllur eigi að vera helgidómur þjóðarinnar. Ég hef setið lengi í Þingvallanefnd, og ég viðurkenni, að n. hefur ekki þorað að ganga nema skammt í því að framkvæma þá hluti, er æskilegir mega kallast og samboðnir helgi staðarins. En allar framkvæmdir eru fjárfrekar, og við nm. vildum ekki fara djúpt í vasa þjóðarinnar. Lengst af hefur þjóðgarðurinn fengið 10 þús. kr. fjárveitingu. En landið var friðað strax og kostað miklu til. Þriðja jörðin leggst nú brátt til hans, því að innan takmarka hans má ekki vera búfé. Jörð þessi er þó að hálfu leyti í ábúð og fær núverandi ábúandi að halda henni um sína daga. Má hann hafa kýr og nýtur veiðiréttinda í vatninu. Girðingin um þjóðgarðinn er um 20 km. löng, og hefur verið kostað allmiklu til hennar, enda er hún sérstaklega vönduð. Nú fór svo framan af varðandi friðunina, að Þingvallanefnd bakaði sér eins konar andúð sveitarinnar vegna þeirrar röskunar, er hún olli. Búfé, sem ekki má sjást innan þjóðgarðsins, veitti honum ágang, og var erfitt að koma við vörnum gegn þessu. Átti og umsjónarmaðurinn í erjum við sveitarmenn út af framkvæmdum n. En þetta hefur nú algerlega breytzt. Þykir sveitarmönnum orðið sómi að þeim og eru samhentir umsjónarmanninum, enda hefði tæplega verið hægt að hrinda málinu áleiðis án aðstoðar þeirra. Hefur umsjónarmaður nú aflað sér vinsælda í starfi sínu.

Þegar þjóðgarðurinn var stofnaður voru nokkur hús innan takmarka hans, milli Öxarár og Hrafnagjár. Þau hafa nú öll verið numin burt nema Þingvallabærinn, er byggður hefur verið upp. Síðan eru liðin 20 ár. En hvorugu hefur verið haldið við, og þolir það nú eigi öllu lengri bið. Girðingunni hefur verið haldið við af umsjónarmanninum án kaupa á efni. Mun nú komið fram endurbótum á þessu. — Þegar þjóðgarðurinn var settur með l., reis sú alda hér á landi, að menn eignuðust sumarbústaði á þeim slóðum. Hylltust sérstaklega margir íbúar Reykjavíkur til þess. N. lenti nú strax í þeim vanda, hvort bústaðir þessir skyldu leyfðir. En hún sá brátt, að ætlunin var eigi að banna þjóðinni garðinn. Væri sjálfsagt, að almenningur fengi að njóta gleði og ánægju á þessum stað. Síðan var heimilað að reisa þessa bústaði, — en ekki milli Öxarár og Hrafnagjár. Eru sumarbústaðirnir nú allir í hliðinni út frá Valhöll, þar sem hún var fyrir flutninginn. Þessi hús eru yfirleitt vel byggð og fallega, og hafa þau verið reist undir umsjón skipulagsstjórans og húsameistara ríkisins, er haft hafa eftirlit með því, að engar byggingar yrðu reistar þarna, nema þær, sem sómi yrði að.

Landsmenn sækja eins og pílagrimar til þessa staðar. Minningarnar um hið forna þing valda því. Auk þess á hið opinbera hægast með að fara þangað með erlenda gesti. Þingvallanefnd hefur ævinlega haft nokkur herbergi til umráða í bænum og boðið þangað útlendum gestum, sem landið vill heiðra sérstaklega með dvöl á hinum fornhelga stað. Af þessum sökum er Þingvöllur sá staður, er útlendingar sjá bezt, og verður því að gera allt til þess, að hann megi verða sem lýtaminnstur. Hefur n. lagt áherzlu á þetta og sömuleiðis alla umgengni gesta þarna. Henni fannst nauðsynlegt, að mönnum gæfist kostur á að fara ferða sinna um nágrennið án þess að traðka niður gróðurinn. En þessum reit er haldið við til að halda náttúru hans óníddri, en hún er sérkennileg fyrir sakir hraunmyndana ýmiss konar, jurtaríkis síns og dýraríkis, þar sem er vatnið. Þótti nauðsynlegt að leggja bæði akvegi og gangstigi um hraunið og vellina. Þessu er ekki langt komið, og hafa fjárveitingarnar frá Alþ. gengið til vegalagninga og skógræktar. En svo hefur reynzt, þó að augljóst sé, að þjóðgarðurinn stendur nú í meiri blóma en fyrr, að gamli trjástofninn vill eigi vaxa eins og vonir manna stóðu til, enda fékk hann áfall fyrir nokkrum árum af flugnavargi. En n. hefur ákveðið að gera garðinn allan skógi vaxinn í tíð sinni.

Umsjónarmaður er á Þingvöllum. Hefur hann bæinn og túnið og nýtur lítilfjörlegra launa að auki, 3.500 kr. Er hann sérstaklega vel fallinn til starfsins, en nú roskinn að aldri. Hann er húsasmiður og trjáræktarmaður og lagði stund á þetta í Ameríku. Hefur hann nú þegar sett niður allmargar plöntur, en þær hafa ekki viljað hafa frið. Hver einasta planta hans hefur þó lifað, og er eins og allt, sem hann snertir á, sé lífinu vígt. Hann hefur sett niður um 10–20 þús. plöntur, en vanhöld hafa þó orðið á hinu opna svæði. Þetta stafar frá ýmiss konar gálausum og óskynsömum lýð, er grandar jurtunum af einu saman „briaríi“.: Þessi tamningarskortur á mönnum hefur orðið okkur til baga, en við höfum tekið það ráð að hefja ræktun á afskekktari stöðum. Skógræktarstjóri hefur verið okkur hjálplegur og sýnt fram á, að jarðvegurinn er þar góður. Ákveðið var að setja niður 25 þús. plöntur af barrviði og 5 þús. af öðrum tegundum. Ég hef farið austur og litið á þetta, og virðist það hafa tekizt ágætlega. — N. hefur gert minna, en þurft hefði til að vernda hið fagra vatn, sem þjóðgarðurinn hefur ráð yfir að miklu leyti. Við höfum í því efni leitað til fiskifræðinga, og hefur Árni Friðriksson vísað okkur til ferskvatnsfræðings. Eðlilegt er, að ábúendur þeirra jarða, sem lönd eiga að vatninu, hafi gengið á fiskistofninn, en hann verður að vernda á því svæði, sem liggur innan takmarka þjóðgarðsins, enda höfum við undirbúið ráðstafanir til að vernda fiskistofninn.

En þetta eru nú aukaatriði í málinu. Þótti mér þó rétt að taka þetta fram, vegna þess að ég hef aldrei vakið athygli hv. þm. á þjóðgarðinum á Þingvöllum. Hefur verið gengið út frá því, að Alþ. léti sér annt um hann, og hefðum við nm. frekar getað búizt við aðfinnslum af hálfu þess. Mundi ég fúslega viðurkenna ýmsa galla á framkvæmdunum, en n. hefur þó lagt sig í framkróka til að koma í veg fyrir þá.

Í þessu sambandi vil ég geta þess, að sumarbústaðaeigendur þar eystra hafa gert mikið til að prýða umhverfis bústaði sína með trjágróðri og auk þess hafa þeir lagt fé til vegagerðar. Þá hafa ýmsar stofnanir og félagasamtök fengið svæði til að rækta og prýða með trjám og blómum í nafni síns félags. Um leið og ég segi þetta finnst mér verðugt og rétt að minnast á, að umgengni um þjóðgarðinn hefur farið hraðbatnandi, þó að vitanlega sé misjafn sauður í öllum þeim fjölda, sem sækir þjóðgarðinn heim, og þar af leiðandi nauðsyn á nákvæmri gæzlu. Einkum er mikil eldhætta síðari hluta sumars, þegar hinn þunni mosajarðvegur fer að þorna í sumarhitunum, og þarf þá oft ekki annað en að sígarettu sé kastað í gáleysi, til að eldur fuðri upp. Við höfðum góða hjálp til að kveða niður elda, sem þannig kviknuðu, á meðan setuliðið var hér, því að setuliðsmennirnir höfðu stöð þarna rétt hjá og aðstoðuðu umsjónarmanninn oft.

Eitt, sem gæta þarf, er veiðin í vatninu, en í sambandi við hana eru menn mjög ágengir og seilast oft í þá staði, þar sem klakstöðvar eru nú, og kem ég þá að því, hversu erfitt það er fyrir umsjónarmanninn að hafa ekki bíl til að elta slíka veiðiþjófa, því að fótgangandi hefur hann ekki möguleika til að hafa hendur í hári þeirra. — Auk þessa starfs hefur umsjónarmaðurinn mörg önnur. Hann á að vísa gestum á tjaldstæði og sjá um, að ekki sé tjaldað annars staðar, en á ákveðnum svæðum, sem til þess eru ætluð, og hann á að gæta þess, að búfé komist ekki í þjóðgarðinn, en það er oft mjög erfitt, því að fénaðurinn sækir í skóginn. Þessi gæzlustörf eru öll mjög erfið og krefjast þess, að sá, sem þau á að vinna, sé fljótur í ferðum, ef þau eiga að vera vel af hendi leyst, og þar af leiðandi næstum ómögulegt annað en að gæzlumaðurinn hafi gott farartæki. Þjóðgarðsnefnd hefur því gert allt, sem mögulegt er, til þess að umsjónarmaðurinn fái jeppabifreið, það er ekki hægt að koma við fínni bifreið. En þessi útvegun hefur ekki tekizt, þrátt fyrir það að í n. eiga sæti bæði núverandi og fyrrverandi forsrh. Þingvallanefnd sá sér því ekki annað fært en áfrýja til Alþingis. Ég hef að vísu heyrt, að sumum þm. þætti þetta lítilmótlegt mál; en ég vil bara benda þm. á, að á bak við þetta litla mál er verndun þjóðgarðsins, og svo veit ég nú ekki betur en að fyrir Alþ. liggi ýmis mál; sem ekki eru á nokkurn hátt merkari en þetta, eins og t. d. frv. um heimild til að selja einhverja landsspildu upp á kannske 5–6 hundruð kr. Ég sé því ekki, að Alþ. sé á nokkurn hátt lítilsvirt með þessu máli, enda er það líka æðsti réttur í málum þjóðgarðsins. — Ég vænti svo að þm. líti á þetta með velvild og skilningi.