28.01.1949
Neðri deild: 54. fundur, 68. löggjafarþing.
Sjá dálk 276 í C-deild Alþingistíðinda. (3628)

44. mál, jeppabifreiðar

Sigurður Kristjánsson:

Viðvíkjandi sumarbústöðum eru skiptar skoðanir. Við höfum fengið allmiklar aðfinnslur fyrir að hafa ekki leyft að byggja nægilega mikið af sumarbústöðum, eða eins marga og sótt hefur verið um. Við höfum ekki viljað taka svæðið milli Öxarár og Hrafnagjár undir sumarbústaði, og þá er ekki um annan stað að ræða en þennan. Ég skal taka fram út af því, sem hv. 6. þm. Reykv. sagði, að Þingvallan. hefur tekið umsóknir algerlega eftir röð, og þegar umsóknirnar eru fleiri en hægt er að taka til greina, þá er eingöngu farið eftir því, hvort maðurinn hefur stærri eða minni fjölskyldu, en ekki hvort hann hefur efni á að byggja eða ekki. (SigfS: Það eru samt sem áður auðmennirnir, sem hafa byggt þá.) Þeir hafa orðið fyrri til að byggja þarna.

Viðvíkjandi skóginum, þá skal ég geta þess, að ráðunautur í þessu efni er skógræktarstjóri ríkisins. Og þó að þarna sé hugmyndin að koma upp belti af barrtrjám, þá er víðáttan þarna. geysimikil, og ég skal taka fram til huggunar hv. þm., að við erum allir sammála um það í Þingvallan., að það eigi að leggja megináherzlu á birkirækt í þjóðgarðinum.