28.01.1949
Neðri deild: 54. fundur, 68. löggjafarþing.
Sjá dálk 278 í C-deild Alþingistíðinda. (3632)

44. mál, jeppabifreiðar

Skúli Guðmundsson:

Þetta mál var tekið fyrir í fjhn., og mig minnir, að afgreiðsla þess væri þannig, að lagt var til, að málinu yrði vísað frá með rökstuddri dagskrá, og þá var valinn frsm. af hálfu n. Nú skilst mér, að nál. hafi ekki komið fram enn. Þar af leiðandi liggur ekki þessi dagskrá fyrir. Úr því að svo er ástatt, get ég fallizt á þessa till. frá hv. þm. V-Ísf., sem er formaður n., og segi því já.