22.10.1948
Efri deild: 5. fundur, 68. löggjafarþing.
Sjá dálk 304 í C-deild Alþingistíðinda. (3674)
19. mál, útsvör
Björn Ólafsson:
Herra forseti. Ég vildi gjarnan grennslast fyrir um það hjá hæstv. forsrh., þótt það í raun og veru heyri ekki undir hans ráðuneyti, hvað langt hann haldi, að sé komið áleiðis hið nýja frv. til l. um skattamálin, sem hann minntist á. Það er sýnilegt, að ef þetta frv. á að afgr. á þessu þingi; en jafnframt bíða eftir hinu frv., þá er að sjálfsögðu full nauðsyn á því, að það frv. geti komið fram sem allra fyrst. Ég hef heyrt, — að vísu skal ég ekki fullyrða um það, — að það væri ekki komið svo langt með samningu þessa frv., að nokkurt endanlegt samkomulag sé fundið í n.