19.12.1948
Efri deild: 44. fundur, 68. löggjafarþing.
Sjá dálk 242 í B-deild Alþingistíðinda. (369)
107. mál, dýrtíðarráðstafanir vegna atvinnuveganna
Hannibal Valdimarsson:
Ég tel verulega hjálp við bátaútveginn í ákvæðum frv., en er hins vegar sérstaklega óánægður með eina tekjuöflunarleið frv., sem er söluskatturinn, og geri mér ljóst, að þess má vænta, að verkalýður landsins verði fyrir kjaraskerðingu við samþykkt frv. En þar sem ég tel, að verkalýðssamtökin hafi á ótvíræðan hátt varað við öllum ráðstöfunum, sem leiða til aukinnar verðhækkunar og dýrtíðar í landinu, og tel þau hafa áskilið sér fullan rétt til þess að verja sinn hag, tel ég mér fært að greiða frv. atkv., til þess að í ljós komi, hvort frv. felur ekki í sér lausn á vandkvæðum bátaútvegsins, og segi því já.