24.01.1949
Efri deild: 45. fundur, 68. löggjafarþing.
Sjá dálk 309 í C-deild Alþingistíðinda. (3697)

109. mál, manntal

Björn Ólafsson:

Herra forseti. Ég vil fyrir mitt leyti lýsa ánægju minni yfir því, að þetta frv. skuli vera komið fram í þessu formi, og ætti það að ráða bót á manntali á öllu landinu, en mikið hefur vantað á, að nógu nákvæmar nafnaskrár og meðfylgjandi upplýsingar væru jafnan fyrir hendi. Ég bendi á eitt atriði í því sambandi, sem er í mikilli niðurlægingu hjá okkur, en það eru atvinnuskýrslur í landinu. Að vísu eru einhvers staðar til lög um söfnun atvinnuskýrslna, sem hagstofunni er falið að mestu að annast, en þetta er hreint kák, og hagstofan hefur ekki gengið eftir þessu sem henni hefur borið, og skýrslur um þetta eru því ekki til. En það er ljóst, að ef farið væri út í þá sálma að halda uppi skipulagðri atvinnu í landinu, er fyrsta skilyrðið, að slíkar atvinnuskýrslur séu fyrir hendi, og mér kemur í hug, hvort ekki sé hægt að safna þeim a. m. k. einu sinni á ári, ef það væri nóg. Það væri þó a. m. k. mikil framför að fá nákvæmar atvinnuskýrslur einu sinni á ári, ef unnið væri fljótlega úr þeim, En að sjálfsögðu væru skýrslurnar ekki mikils virði, ef ekki væri strax unninn úr þeim allur fróðleikur um atvinnuhættina í landinu, sem af þeim mætti ráða yfirleitt og í einstökum atriðum. Að mínu áliti þyrftu að vera fyrir hendi mánaðarlegar atvinnuskýrslur, og fyrr en málið er komið í það horf höfum við oft ekki hugmynd um, hvernig atvinnunni er háttað í landinu í ýmsum greinum.

Ég vildi aðeins benda á þetta og vænti þess, að hv. allshn., sem mun fá þetta mál til meðferðar, taki einnig athugasemdir mínar til athugunar.