07.04.1949
Efri deild: 83. fundur, 68. löggjafarþing.
Sjá dálk 310 í C-deild Alþingistíðinda. (3704)
110. mál, ræktunarlönd og byggingarlóðir í kaupstöðum
Frsm. (Brynjólfur Bjarnason):
Herra forseti. Þetta frv. er búið að vera nokkuð lengi hjá n. Saga þessa máls er sú, að 1943 var skipuð n. af fjmrn. til þess að undirbúa frv. um þetta efni samkvæmt þáltill., sem samþ. var á Alþingi og hljóðar svo, með leyfi hæstv. forseta:
„Alþingi ályktar að skora á ríkisstj. að láta athuga með nefndarskipun eða á annan hátt, hvernig megi veita kaupstöðum, kauptúnum og sjávarþorpum eignar- eða umráðarétt yfir nauðsynlegum löndum og lóðum með sanngjörnum kjörum, án þess að gengið verði of nærri hagsmunum nágrannasveita þeirra, hvernig komið verði í veg fyrir óréttmæta verðhækkun á þessum löndum og afnotarétti þeirra og hvernig tryggja megi, að verðhækkun á löndum og lóðum, sem verða kann á fyrrnefndum stöðum vegna meiri háttar opinberra framkvæmda, verði almenningseign.“
N. samdi svo frv. og sendi það ríkisstj. Þetta frv. n. var miðað við þann tilgang, sem í þáltill. felst, þ. e. a. s. að gera bæjarfélögum og kauptúnum kleift að fá umráðarétt yfir lóðum og löndum með sanngjörnu verði og koma í veg fyrir óeðlilega verðhækkun. Í því skyni var það ákvæði sett inn í frv., að matsverð mætti ekki vera hærra en tvöfalt fasteignamat, og sömuleiðis var sett inn í frv. ákvæði um verðhækkunarskatt. Á s. l. ári, á síðasta þingi, lagði svo ríkisstj. frv. fyrir Alþ., en með þeim breyt., að þetta hvort tveggja, sem ég nefndi, var fellt niður, bæði ákvæðið um hámarksmatsverð og einnig kaflinn um verðhækkunarskatt. Ríkisstj. bar það fyrir sig, að ákvæðin um hámarksmatsverð brytu í bága við stjórnarskrána eða a. m. k. að það orkaði tvímælis, að það væri heimilt samkv. stjórnarskránni að setja slíkt ákvæði í l., og til samræmis við það, að þetta ákvæði er fellt niður úr frv., er verðhækkunarskatturinn einnig niður felldur, því að hann nái ekki tilgangi sínum, ef ákvæðin um hámarksmatsverð eru felld niður. Ég tel raunar, að það sé rangt, að þetta ákvæði brjóti í bága við stjórnarskrána, enda var það álit mþn., og í henni voru lögfræðingar, og hún hafði auk þess sér til aðstoðar lögfræðilega ráðunauta, sem allir voru á einu máli um það, að ekkert væri því til fyrirstöðu að setja slík ákvæði í l. vegna stjórnarskrárinnar, enda hefur ríkisstj. ekki fengið neina umsögn frá háskólanum í þá átt. Í grg. frá ríkisstj. segir aðeins, að hún telji það orka tvímælis skv. lögfræðilegum upplýsingum, sem hún hafi fengið, hvort frv. sé ekki brot á stjórnarskránni, en eins og frv. kom frá hæstv. ríkisstj., þá tel ég og allir nm. í allshn., sem um málið fjölluðu, að þá næði frv. ekki tilgangi þeim, sem mþn. var falið að ná með þáltill. N. var því sammála um að fara aðra leið til þess að ná sama tilgangi, og þess vegna leggur hún til, að frv. verði samþ. með þeirri breyt., sem um getur á þskj. 487, þ. e., að komi ný gr. í upphafi VI. kafla, þar sem sagt er, að ef seld eru „ræktunarlönd eða byggingarlóðir, sem lög þessi ná til, og skal þá seljandi greiða söluskatt af löndum þessum og lóðum, er nemi 50% af þeim hluta söluverðsins, sem er umfram þrefalt fasteignamat landsins eða lóðarinnar, og allt að ferföldu fasteignamati, en 75% af því, sem þar er fram yfir.“ Þetta er hliðstætt við bílaskattinn, og með þessari till. er að verulegu leyti náð tilganginum, sem Alþ. fól mþn. að ná. Ég skal svo taka það fram, að þetta er samkomulagstill. Ég vildi láta ganga lengra, en n. stendur óskipt um till., en nm. hafa að öðru leyti frjálsar hendur um að fylgja öðrum brtt., en ég vænti þess, að samkomulag verði í hv. d. eins og í n. um að fylgja till. eins og hún er.