07.03.1949
Efri deild: 71. fundur, 68. löggjafarþing.
Sjá dálk 327 í C-deild Alþingistíðinda. (3741)
138. mál, eftirlit með rekstri ríkisins og ríkisstofnana
Gísli Jónsson:
Herra forseti. Ég hygg, að afgreiðsla þessa máls eigi sér lítt fordæmi í þingsögunni. Það hefur verið borið fram frv. af hæstv. ríkisstj. eftir till. frá n., sem hefur verið skipuð til að gera till. um sparnað á rekstri ríkisins. Þegar málið kemur í n., þá geta þrír hv. nm. ekki komið sér saman um að mynda sér nokkra skoðun um afgreiðslu málsins og hafa ekki gefið sér tíma til að taka afstöðu til þess. Ég held, að þetta sé einhver einstakasta afgreiðsla á máli, þó að minna væri en þetta mál.
Hv. þm. Str. er þess utan formaður annars stærsta þingflokksins, sem styður ríkisstj., og flokkur hans hefur alltaf verið að gera kröfur um, að stórkostlegum sparnaði yrði komið á í ríkisrekstrinum. M. a. veit ég, að fulltrúar þessa flokks í fjvn. hafa gert ítrekaðar kröfur um, að aflað sé allra upplýsinga um launaskrá o. s. frv., svo að hægt sé að sjá, hvernig fé ríkissjóðs er varið til launagreiðslna og hvað fæst fyrir það fé. Svo getur formaður þessa flokks ekki fengið sig til að taka afstöðu til þessa máls. Annaðhvort ber þetta vott um, að hann sé einangraður í flokknum, eða hann sinnir ekki þingstörfunum eins mikið og hann ætlast til af öðrum. Er það ekki í samræmi við þau ummæli, sem hann hefur áður haft hér í þinginu, að svona ættu störf þingsins ekki að vera. Ég hefði getað skilið, að þessir hv. þm. hefðu skrifað undir nál með fyrirvara um að koma síðar með brtt., þegar þeir gætu gert þetta upp við sig, en í nál. á þskj. 424 eru 3 þm. ekki viðbúnir að taka afstöðu til málsins, og tveir af þeim eru stuðningsmenn stj.
Um hitt er ég sammála hv. þm. Str., að ráðh. hefði ekki þurft að leita til þingsins til að skipa starfsmann til þessara hluta, þótt hann hinsvegar vilji fara þá leið, vegna þess að það hafi fjárútlát í för með sér. En það er rétt, sem hv. þm. Str. segir, að hæstv. fjmrh., sem gegnir einnig öðru ráðherraembætti, hefði sjálfur getað skipað mann til þess að gera þessi verk, því að það er ekki hægt að búast við, að ráðh., sem er önnum kafinn, geti rækt þetta starf eins og þörf er að gera.
Ég er viss um, að ef hv. þm. kynntu sér launaskrána, eins og hún liggur fyrir, þá mundu þeir áreiðanlega sannfærast um, að það er þörf að vinna þetta starf, hvort sem ráðh. ákveður það sjálfur eða þingið samþ. l. um það. Sú skýrsla ber með sér, að það er ekki vanþörf á að taka ýmislegt til athugunar í rekstri ríkisins sjálfs. Það kann að vera, að eitthvað af því verði opinberað. Það hefði verið hollt fyrir fjhn. að fá að sjá þetta ritverk, áður en hún gaf út sitt einstaka nál., til að kynna sér innihald þess. Það eru ekki fáir opinberir starfsmenn, sem hafa hálf önnur, tvenn og jafnvel þrenn laun í þjónustu ríkisins. Mér er m. a. kunnugt um, að einn maður hefur 14 þús. kr. grunnlaun og var tekinn úr því starfi og látinn í önnur tvö, þar sem hann hefur tvenn laun. Ég segi ekki, hver hann er. En hvenær vinnur hann svo sitt starf, sem hann er ráðinn til upp á lífstíð. Hann gerir það víst á kvöldin eða nóttunni. Það er hópur til af slíkum dæmum.
Í sambandi við frv. sjálft vil ég mega benda á, að ég tel vafasamt, að 5. gr. geti staðizt óbreytt. Í henni stendur, að engin ríkisstofnun né starfsmaður ríkisins megi ráða starfsfólk til starfa við skrifstofuvinnu, iðnað, iðju, afgreiðslustörf eða önnur skyld verk án þess að hafa áður fengið samþykki ráðsmanns til ráðningarinnar. Mér skilst, að eftir því megi ekki bankarnir, síldarverksmiðjur ríkisins eða landssmiðjan og ýmsar aðrar slíkar ríkisstofnanir ráða neinn mann nema með samþykki þessa ráðsmanns. Spurningin er, hvort hægt er að ætlazt til, að slíkur maður ætti að ráða allt starfsfólk við slíkar stofnanir. Einnig skilst mér, að eitthvað þyrfti að breyta orðalagi 8. gr. Þar stendur, að fjmrh. geti, að fengnum till. ráðsmanns, með reglugerð eða öðrum fyrirmælum kveðið nánar á um starfssvið og önnur atriði. Mér skilst, að það ætti að vera sá ráðh., sem stofnunin heyrir undir. Í þriðja lagi tel ég rétt, að 9. gr. breytist þannig, að l. þessi öðlist þegar gildi.
Ég mun ekki gera till. um þetta á þessu stigi málsins, en ef frv. verður samþ. til 3. umr. og n. hefur ekki í hyggju að gera þessar breyt., mun ég bera fram brtt. við þessar þrjár greinar við 3. umr.
Ég sé ekki ástæðu til að ræða málið nánar, en mér þykir einkennilegt, að það skuli ekki vera betur tekið undir þá fyrstu tilraun til niðurskurðar á ríkisrekstrinum, sem hér er verið að reyna, en raun ber vitni um, að gert hefur verið í fjhn.