10.03.1949
Efri deild: 73. fundur, 68. löggjafarþing.
Sjá dálk 358 í C-deild Alþingistíðinda. (3755)

138. mál, eftirlit með rekstri ríkisins og ríkisstofnana

Frsm. (Þorsteinn Þorsteinsson):

Herra forseti. Það er búið að tala svo margt og mikið um þennan blessaða ráðsmann, sem á að koma, að það er að bera í bakkafullan lækinn fyrir mig að halda langa ræðu um málið. Ég vil leiðrétta það, sem hv. síðasti ræðumaður sagði, þar sem hann talaði um, að við hefðum gert það gegn samvizkunnar mótmælum að fylgja þessu máli, en slíkt var aldrei sagt, en hitt er rétt, að það var lítill áhugi fyrir málinu. Ég álít, að það sitji ekki vel á þeim mönnum, sem tala hvað mest um sparnað, að vera á móti frv. eins og þessu, sem ekki er hægt að segja annað um en að sé tilraun til sparnaðar. Það fer að vísu mikið eftir því, hvernig verkið verður unnið, hve mikil eftirtekja verður af því. Ég ætla ekki að öfunda þá, sem segja nei við þessu frv. um eftirlitsmann ríkisins. (HV: Þeir verða ekki öfundsverðari, sem segja já.) Það dæmum við um seinna. En hitt er það, að sumir menn vilja ekki taka þátt í neinni tilraun til að spara, þegar þeir halda, að það komi við þá sjálfa. Þá segja þeir, að ekki sé hægt að spara á neinu hjá þeim, en þeir þurfi heldur að fá hækkun launa. En þegar nú verður vart sparnaðarviðleitni hjá hæstv. stj., sýnist mér, að sumir hv. þm. svari henni með því að vilja knýja fram hærra kaup fyrir sjálfa sig. Ég er þar ekki að lasta neinn sérstakan flokk, en mér þykir þetta leiðinlegt mannanna vegna, að þeim skyldi detta þetta í hug, því að meðal þeirra manna, sem flytja það mál, eru prýðilegir menn.

Hv. þm. Str. sagði, að óþarft væri að setja þessi l., því að fjmrh. gæti sjálfur ráðið þessu öllu og gert allt þetta, sem frv. gerir ráð fyrir, upp á sitt eindæmi. Þá er því fyrst og fremst til að svara, að ef þetta er orðin venja án lagasetningar, því eru menn þá á móti því, að þetta verði lögfest, sem þegar er orðið í praxis? Þegar hv. þm. Str. var í stj. í þessu landi, þá þurfti fjvn. að semja við ýmsar stofnanir um að lækka laun, án þess að stj. skipti sér af því. Ég man eftir því, að undirmenn þáverandi dómsmrh. voru allra manna þrjózkastir hvað það snerti að fækka sínum undirmönnum eða lækka laun þeirra. Ég man eftir því, að lögmaðurinn og lögreglustjórinn hér í Reykjavík tóku sig út úr, þegar átti að lækka laun hjá starfsmönnum ríkisins, og hreyfði ekki fjmrh., og dómsmrh. þáverandi því siður, hönd né fót til þess að fá þessu kippt í lag. Ég álít, að þetta verk fjvn. hefði gengið betur, ef l. hefðu verið þá til fyrir þessu, því að menn líta svo á, að þeir þurfi ekki að beygja sig, þegar svona stendur á, ef l. eru ekki fyrir hendi, sem sanna það.

Hv. 1. þm. N-M. hélt því fram, að réttara væri, að ráðsmaðurinn væri settur en ekki skipaður í embætti sitt til að byrja með. Ég held, að þetta sé ekki rétt. Ég hygg, að honum verði síður sýnd hlýðni, ef hann er aðeins settur um stundarsakir, en er ekki fastur embættismaður. Ég vona því, að ráðsmaðurinn verði skipaður í embættið, en reki að því, að Alþ. geri aðra tilhögun um þessi efni, þá megi láta þennan embættismann fá aðra stöðu. Þó að slíkt yrði ofan á við framkvæmd þessara l., þá yrði hann aldrei ríkisómagi. Annars er það tvennt, sem þessi maður ætti sérstaklega að gera. Það er að líta eftir stofnunum og starfsmönnum ríkisins. Þessi maður eða einhverjir endurskoðendur úr stjórnarráðinu, — því að ég hef skilið þetta svo, að hinir gömlu endurskoðendur stjórnarráðsins ættu að endurskoða áfram undir hans eftirliti, — eiga ekki að koma í stofnanirnar rétt til að líta á hlutina, vera þar 2 eða 3 daga, heldur eiga þeir að segja: „Hér er ég kominn, en þú færð mánaðarfrí frá embætti. Nú tek ég við starfi þínu.“ Með því eina móti verður embættið athugað og vinnubrögð stofnunarinnar, svo að gagni komi. Framkvæmdastjóri stofnunarinnar fær þá nokkurs konar orlof, svo að hann má vera ánægður. Til þessa þarf nokkuð mikinn mannafla fyrst í stað. Annars er ekki sagt, að þetta skuli gert allt á einu ári, heldur mun þurfa til þess fleiri ár. Í öðru lagi hef ég haldið því fram, að þessi maður kynnist manna bezt allri aðstöðu í ríkisstofnunum og verði því prýðilegur aðstoðarmaður til þess að koma með ýmsar sparnaðartill., fyrir ríkisstj., m. a. — að breyttum ýmsum aðstæðum — um að leggja niður sum embætti. Það getur vel verið t. d., að það komi til með að ganga yfir mig, ef sýslumönnum verður fækkað, en um slíkt þýðir ekkert að sakast. Það er meginatriðið og ég treysti því, að verði hafizt einhuga handa um þetta mál, þá verði þessi maður ekki ómagi á landinu, heldur muni starf hans bera ávexti til bóta og sparnaðar, og við munum ekki þurfa að sjá eftir því að fylgja þessu máli. Ef enginn vilji er fyrir því hjá stj. og Alþ. að spara, þá verður lítið ágengt. Ég tel það meira en lítið viljaleysi hjá þeim mönnum, sem ekki vilja gefa jáatkvæði þeirri tilraun, sem hér er gerð. Þó að erfiðlega fari, þá er ekki hundrað í hættunni, en hins vegar allar líkur til þess, að mikið gagn verði að því að stofna þetta embætti.