10.03.1949
Efri deild: 73. fundur, 68. löggjafarþing.
Sjá dálk 374 í C-deild Alþingistíðinda. (3764)
138. mál, eftirlit með rekstri ríkisins og ríkisstofnana
Páll Zóphóníasson:
Herra forseti. Ég vil aðeins minna hv. 1. landsk. og hæstv. fjmrh. á þetta: Þegar frv. til launalaga var lagt fyrir Alþ., þá var í því kafli um réttindi og skyldur embættismanna. Þá lögðust þeir á móti því, að sá kafli væri samþ., hæstv. forsrh. og hv. þm. Snæf. sérstaklega og nokkrir aðrir hv. þm. með þeim. Og þessi kafli var tekinn út úr frv. vegna loforða hæstv. forsrh. um, að það skyldi koma fram frv. um þetta mál. Forsrh. skipaði svo Gunnar Thoroddsen í það starf að undirbúa þetta frv. Nú segir hæstv. fjmrh., að þetta heyri undir dómsmrh., en síðan, að forsrh. hafi yfir því að segja. Hins vegar sagði hann, að reglugerðin, sem kennd er við Pétur Magnússon og stytti vinnutíma embættismanna og hækkaði því laun þeirra, hefði verið sett af fjmrh., en hann hélt því fram, að það hefði verið samkomulag um efni reglugerðarinnar milli starfsmanna ríkisins og ráðh. Og hv. 1. landsk. þm. hélt fram, að ekki væri hægt að breyta reglugerð þessari, nema með lagabreyt. (SÁÓ: Þetta er samningur.) Reglugerð má breyta með reglugerð. Hitt er annað mál, hverju lofað var embættismönnum ríkisins, þegar lögin voru sett. Því var lofað, að mjög fljótt skyldu koma lög um réttindi og skyldur embættismanna, sem tækju þetta fram. Öðru var ekki lofað. En þau lög eru ekki komin enn, en ráðh. setur bara reglugerð um þetta eftir sinu höfði, og þá hefur þarna ekkert gerzt annað en það, að hæstv. ráðh. hefur verið að reyna að kaupa sér frið með því, í stað þess að koma með þau lög, sem lofað var, þegar launalögin voru sett.
Ég hef fengið það svar hjá hæstv. fjmrh., að hann vilji ekki setja mann í þessa stöðu, sem í frv. er gert ráð fyrir, til að byrja með, heldur skipa hann. Hann vill ekki reyna, hvernig sá maður reynist í starfi sínu, heldur vill hann skipa hann strax. Það veltur mikið á, hvernig maður þessi væri gerður. En sá munur er á þessu tvennu, að setja manninn fyrst til reynslu annars vegar og hins vegar að skipa hann strax frá byrjun, að meðan maður er settur í stöðu og veit ekki, hvort hann fær stöðuna eða ekki, leggur hann sig betur fram en ella. Þessi munur er hér á, ef nokkur munur er á þessu tvennu. Og þetta ætti að vera nóg til þess, að þessi maður ætti ekki að vera nema settur til að byrja með. — Það kom líka fram hjá hæstv. ráðh., að hann vill breyta reglugerðinni um vinnutíma embættismanna, en þorir ekki þorir ekki.