22.04.1949
Efri deild: 86. fundur, 68. löggjafarþing.
Sjá dálk 376 í C-deild Alþingistíðinda. (3775)

138. mál, eftirlit með rekstri ríkisins og ríkisstofnana

Páll Zóphóníasson:

Herra forseti. Ég hef nú áður talað í þessu máli og látið álit mitt í ljós, en fengið lítinn byr með mínar sérskoðanir í málinu. Nú er ég með brtt. á þskj. 482 og skal vera stuttorður um þær. 1. brtt. er við 2. gr. frv. Ég hef litið svo á, að svo mikið væri komið undir því, hvernig sá maður reyndist í starfi sínu, sem í þessa stöðu færi, sem hér er um að ræða, að ekki ætti að koma til mála að skipa hann strax í byrjun, er hann tæki við þessu starfi, heldur þyrfti að reyna hann fyrst árlangt, þangað til hægt væri að sjá, hvernig hann reyndist. Enn fremur hef ég orðið var við það annars staðar, m. a. hjá embættismönnum, sem koma til með að heyra undir eftirlitsstarf þessa manns, að þeir óttast, að hann geti orðið að einhverju leyti hlutdrægur, sem þeir kalla, og þá sérstaklega pólitískt. Ég er sjálfur ekki svo mikið hræddur um það. Ef maðurinn væri settur í stöðuna fyrst og hann reyndist svo vel í henni, þá er ég ekki í vafa um, hvernig sem ríkisstj. væri samsett, að hún mundi láta hann fá veitingu fyrir stöðunni, ef hann reyndist vel eitt ár í henni. Þessi 1. brtt. mín miðar að því að slá því föstu, að þessum embættismanni verði ekki veitt starfið í byrjun, heldur verði hann settur í það til að byrja með, og í öðru lagi miðast brtt. við það, að þegar reynsla væri komin á þennan mann og hann reyndist vel þetta ár, þá yrði hann skipaður í stöðuna, ef allir ráðherrar eru sammála um, að svo verði gert. Ég legg mikið upp úr þessari brtt., af því að það er svo með þessa stöðu, frekar heldur en nokkra aðra stöðu, sem ég get munað eftir, að svo mikið er undir manninum komið, sem í stöðunni er, hvernig hann stendur í stöðunni. Og að maður sé skipaður í þessa stöðu, án þess að það sé búið að reyna hann, tel ég ekki varlegt, og það vil ég ekki gera.

Þá er 2. brtt. mín, ný 3. gr. Hún miðar að því að gefa ráðsmanninum meira vald en hann hefur eftir frv. og fyrirmæli um það, hvað gera eigi, þegar hann finnur eitthvað athugavert við störf embættismanna eða starfsmanna, sem eftirlit hans tekur til. Og ég ætlast til þess, að þessi ráðsmaður gefi í því tilfelli viðkomandi starfsmanni áminningu og taki um leið fram, hvað að starfi hans er fundið, og gildi þetta jafnt um þá starfsmenn, sem eru skrifstofustjórar, sem um undirmenn eða undirtyllur. Og ef ráðsmaður hefur þrisvar sinnum á tveim mánuðum áminnt þannig annan mann, skal hann, eftir minni brtt., tilkynna það fjmrh. og hvað hann finni að starfi mannsins, og skal þá ráðh. hlutast til um, að málið verði rætt á ráðherrafundi, og má þá segja manninum upp stöðu sinni, og hefur hann þá ekki rétt til eftirlauna. Þetta þykir kannske nokkuð hart. En ég held, að það þurfi að taka þó nokkuð hart á þessum málum, eins og málin liggja nú fyrir, eftir því sem ég hef kynnzt bezt, og að það dugi ekki nein vettlingatök þar við. — Þessi brtt. er mér þó ekki neitt svipað því eins mikið kappsmál eins og 1. brtt. mín, því að afdrif 1. brtt. minnar marka að miklu leyti mína afstöðu gagnvart frv., hvað meðferð 2. brtt. ekki gerir.

Þriðja brtt. mín (2. b) er sú, sem ég kem með í frvgr.-formi, og er hún um nýja 4. gr. frv., sem er afleiðing af þeim undirtektum, sem ég hef fengið hjá hæstv. ríkisstj. Þegar byrjað var að tala um þetta í hinni svokölluðu sparnaðarnefnd, — sem gleymdist hjá hæstv. ráðh., þegar hann las upp lista yfir nefndir frá því í ágúst í sumar, — þá var tekið vel í þetta yfirleitt, og okkur var falið að tala við hæstv. ríkisstj. til að reyna að fá fram löggjöf um þetta efni. Við fengum það svar, að frv. um þau lög mundi koma frá ríkisstj., því að Gunnari Thoroddsen hefði verið falið af Ólafi Thors, fyrrv. forsrh., að semja þessi lög. Þegar þetta svar var komið, óskuðum við að fá að sjá það frv. til þess að athuga, hvort við vildum taka eitthvað úr því í frv. til l. um ráðsmanninn. Þessu var lofað. Svo kom það bara ekki. Nokkru fyrir áramót spurði ég um þetta, og hér í þinginu spurði ég hæstv. fjmrh. um þetta. Hann hefur sagt, að málið kæmi sér ekki við, hann hefði ekkert um þetta að segja, það hefði verið forsrh., sem hefði beðið hv. þm. Snæf. á sínum tíma að semja þessi lög, og frv. kæmi til hans. Ég hef beðið um, að þetta frv. kæmi fram núna á þessu þingi, og það er ókomið enn. Þegar ég fékk þessar undirtektir og þegar ég þóttist sjá, að ríkisstj. væri ekkert kappsmál að fá þetta frv. fram, þá spurði ég hæstv. fjmrh., hvort hann vildi breyta reglugerð Péturs Magnússonar og lengja vinnutíma starfsmanna ríkisins, svo að hægt væri að spara þær upphæðir, sem bættust við í launum, þegar sú reglugerð var sett. Ég hef ekkert svar fengið við því, hvort hæstv. ráðh. vildi gera þetta eða ekki. Og ég hef ekkert svar fengið við því, hvort hæstv. ráðh. vilji ýta á borgarstjórann, hv. þm. Snæf., með þetta, sem mun hafa að vísu mikið að gera og sést hér fáa daga í þingsölum. En ég hef ekkert fengið að vita um það, hvort , nokkuð hafi verið ýtt á hann í þessu efni að skila frv. því til ráðh., sem honum var falið að undirbúa. Og þess vegna, af því að þetta allt er eins og ég hef fram tekið, kem ég nú með þessa brtt. um, að hver starfsmaður ríkis og ríkisstofnana sé skyldur að starfa að verki sínu 40 klukkustundir í hverri viku. Ég fór ekki hærra en þetta, því að ég vildi ekki koma með neitt, sem hægt væri að kalla fráleitt. Það er unnið við þá vinnu þannig, að 40 klst. á viku verður að teljast sanngjarnt í alla staði, og er reyndar ekki ágreiningur um það. — Afstaða mín til frv. kemur til með að markast alveg af því tvennu, í fyrsta lagi, hvernig fer um mína fyrstu brtt. og í öðru lagi, hvernig fer um b-lið minnar brtt. undir tölul. 2 á þskj. 482. En ef ég allt í einu fengi að heyra það af munni hæstv. fjmrh., að hann mundi breyta reglugerðinni, sem nú ákveður vinnutíma opinberra starfsmanna, eða af munni hæstv. forsrh., að hann mundi sjá um það, að frv. um réttindi og skyldur opinberra starfsmanna kæmi nú frá hv. þm. Snæf., Gunnari Thoroddsen, og yrði lagt fyrir þingið næstu daga, — ef annaðhvort af þessu tvennu lægi fyrir, þá væri mér sama um afdrif b-liðar undir tölul. 2. í brtt. minni, því að þá þarf hann ekki að vera hér í þessu frv.

Ég skal svo ekki orðlengja frekar um þetta. En mér þykir náttúrlega skrýtið, að það skuli vera búið að vera með þetta mál á döfinni, síðan síðasta umr. um það fór fram, í margar vikur, ef á svo að afgr. það frá hv. d., þegar einn hv. þm., sem á brtt. við málið, hefur fjarvistarleyfi. Þetta þykir mér ekki viðkunnanlegt, þó að ég hafi engar óskir fram að færa frá hans hálfu.