22.04.1949
Efri deild: 86. fundur, 68. löggjafarþing.
Sjá dálk 382 í C-deild Alþingistíðinda. (3781)
138. mál, eftirlit með rekstri ríkisins og ríkisstofnana
Forseti (BSt) :
Ef þetta mál væri hér til 3. umr. í fyrsta sinn, þá hefði ég að sjálfsögðu orðið við þeim óskum, sem fram hafa komið um að fresta því. En það er nú síður en svo, að það sé á dagskrá hér í fyrsta sinn til 3. umr. 5. apríl var það á dagskrá hér í hv. d. og sömuleiðis 7. apríl og 19. apríl, og í öll skiptin hefur þetta mál verið tekið af dagskrá. Ég verð því að líta þannig á, að það hafi gefizt nægilegur tími til þess fyrir þá menn, sem áhuga hafa á að bera fram brtt., að gera það, og að það sé ekki rétt að hafa slíkan tíma sem hér hefur verið fyrir hendi til þess að bera fram brtt. og biðja svo um frestun málsins, þegar málið er tekið til umr. Töluvert öðru máli gegnir um dagskrártill. hv. 3. landsk. þm., þar sem hann er hér ekki viðstaddur af allt öðrum ástæðum en aðrir hv. þm. En í því skeyti, sem hv. 3. landsk. sendi mér nú, þar sem hann tilkynnti þessa fjarveru sína til helgarinnar, var ekkert nefnt um það, að hann óskaði, að afgreiðsla þessa máls biði. — Nú hef ég yfirleitt haft þá reglu um stjfrv. að fara mjög eftir því, sem hæstv. ráðherrar óska um, að þau séu tekin fyrir, og mér finnst það réttmætt, einkum þegar mjög liður á þingtímann. Og að ég tek þetta mál nú fyrir, er sumpart vegna þess, að hæstv. fjmrh. óskaði eftir því, að þriðja málið biði. Hæstv. atvmrh. sé ég ekki hér, þó hér sé á dagskránni mál sem heyrir undir hann. — Þó mun ég gera miðlun á þessu, sem mér finnst, að ætti að geta nægt hv. 1. landsk. þm., og hún er sú að fresta þessu máli um stund, en ég geri ráð fyrir, að fundur verði þá áfram seinna í dag. Hugsanlegt er þó, að framhaldsfundur geti ekki orðið fyrr en eftir kvöldmat.