25.11.1948
Neðri deild: 22. fundur, 68. löggjafarþing.
Sjá dálk 255 í B-deild Alþingistíðinda. (385)

2. mál, síldarbræðsluskip

Jóhann Hafstein:

Herra forseti. Ég lét þau orð falla áðan, að ræða hv. þm. Siglf. hefði verið furðuleg. Hv. þm. hefur nú haldið aðra ræðu enn þá furðulegri. Hann er seigur þessi hv. þm. Ég benti hv. þm. á, að hann hefði verið með ósmekklegar dylgjur um Jón Gunnarsson, og hann fann, að þetta var rétt, en þá er hv. þm. ekkert nema sakleysið og segir: Hvað sagði ég ljótt um Jón Gunnarsson? Ég hef aldrei efazt um, að Jón Gunnarsson væri heiðarlegur maður. — Ja, það var gott, að það sljákkaði ögn í hv. þm. varðandi Jón Gunnarsson. En þá snýr hann blaðinu við, og nú er það ekki lengur Jón Gunnarsson, sem dylgjað er um, heldur stjórn Hærings, af því að hún hafi haft Jón Gunnarsson sem fulltrúa við kaupin á Hæringi. En Jón Gunnarsson hafði ekkert með kaupin að gera, heldur var það sérstakur fulltrúi, Ólafur Sigurðsson, eins og margsinnis er upplýst. Þá vildi hv. þm. Siglf. staðhæfa, að ég hefði vænt hæstv. viðskmrh. um rangan vitnisburð. Þetta er hrein fjarstæða. Hæstv. viðskmrh. skýrði alve8 rétt frá því, að beiðni hefði ekki komið til hans fyrr en kaupin voru gerð, en það breytir ekki þeirri staðreynd, að áður en kaupin voru gerð, var málið lagt fyrir fjárhagsráð og ríkisstj. Svo heldur hv. þm. Siglf. áfram að segja sögur. Hann heldur því fram, að Ólafur Sigurðsson hafi aðeins skoðað þau skip, sem Jón Gunnarsson hafði á hendinni. En Ólafur Sigurðsson skoðaði annað skip, sem var á austurströnd Bandaríkjanna og var byggt til herflutninga á stríðsárunum. Svo segir hv. þm., að engir sérfræðingar eða vélfræðingar hafi komið nálægt verkinu. Hann sagði áðan hv. þm., að vélsmiðjan Héðinn smíðaði betri vélar en California Press, en það voru einmitt menn frá Héðni, sem settu vélar í Hæring hér heima, og heldur hv. þm., að enginn sé þar með viti lengur? Vélarnar voru settar niður af Héðni og Landssmiðjunni undir yfirstjórn Sveins Guðmundssonar og Ólafs Sigurðssonar, og amerískir vélfræðingar unnu að niðursetningu þeirra véla, sem settar voru í skipið vestra, og svo heldur hv. þm. því fram, að engir vélfræðingar hafi komið nálægt verkinu. Þá þótti mér það næsta broslegt, þegar hv. þm. talaði um það, að það hefði átt að kjósa í stjórn Hærings með hlutfallskosningu. Annað hefur nú verið upp á teningnum en það, að þessi hv. þm. berðist fyrir hlutfallskosningum. En því var því miður ekki til að dreifa í þessu tilfelli, að hlutfallskosning gæti fram farið, því að einn er skipaður af stjórn S. R., einn er frá bæjarstjórn Reykjavíkur, en útvegsmenn kjósa oddamann. En varðandi þann þátt ræðu hv. þm., sem fjallaði um pólitík í þessu máli, þá er það nú fyrst, sem málið er gert pólitískt og það af hv. þm. sjálfum. Allir flokkar voru sammála um málið í bæjarstjórn og flokksbræður hv. þm. gerðu enga athugasemd við skipakaupin. Þeir höfðu fulla aðstöðu til þess, ef þeir hefðu haldið, að allt væri eins ófullkomið og þessi hv. þm. vill vera láta, að gera sínar athugasemdir, og þar sem þeir líka áttu að gæta hagsmuna bæjarins, sem er eigandi að 1/4 hluta. Þetta hefur ekki verið pólitískt mál og ekkert ágreiningsmál. Allir bæjarfulltrúarnir hafa haft aðstöðu til þess að fylgjast með því, og sérstaklega bæjarráðsmennirnir, sem tóku frá upphafi virkan þátt í ákvörðunum um þetta mál, og sömuleiðis menn innan síldariðnaðarins hér, sem bærinn er við riðinn, svo að í bæjarstjórninni hefur þetta mál hvorki verið pólitískt né valdið ágreiningi, og það er enn jafnóskiljanlegt, hvað þetta herhlaup hv. þm. Siglf. á að þýða, þessi tilraun hans til þess að gera það pólitískt eða að gera málið ómögulegt af pólitískum ástæðum, af því að pólitískir andstæðingar hans hafa staðið fyrir ýmsum framkvæmdum í þessu máli. Ég nenni ekki að endurtaka það, sem ég hef áður sagt viðvíkjandi Óskari Halldórssyni. Það voru fleiri, sem vildu komast í kramið, og það lágu fyrir till. frá mörgum öðrum.