18.10.1948
Neðri deild: 5. fundur, 68. löggjafarþing.
Sjá dálk 416 í C-deild Alþingistíðinda. (3860)
6. mál, vegalagabreyting
Flm. (Sigurður Bjarnason):
Herra forseti. Frv. það, sem ég flyt hér um breyt. á vegalögum, fer fram á, að fimm nýir vegir við Ísafjarðardjúp verði teknir í tölu þjóðvega. Í grg. frv. eru færð rök að réttmæti þess, að þessir vegir verði teknir í þjóðvegatölu. Ég sé þess vegna ekki ástæðu til að fylgja því úr hlaði með langri ræðu, en ég vil aðeins segja það, að með þeirri breyt., sem lagt er til, að gerð verði á vegalögunum, er áformað að leggja grundvöllinn að því, að lagður verði þjóðvegur meðfram allri strandlengju Ísafjarðardjúps. Það er ekki nema tiltölulega lítill hluti héraðsins, sem samkv. núgildandi vegalögum á að leggja þjóðveg um, og mjög lítill hluti þess þjóðvegar hefur þegar verið lagður. Það hefur verið unnið að því undanfarin sumur að skapa akvegasamband milli þorpanna sunnan við Djúpið og höfuðstaðarins, og það eru líkur til, að því verði lokið á næsta sumri, en þá er merkum áfanga í vegamálum þessara byggðarlaga náð. Þá er algerlega eftir að snúa sér að því að leysa nauðsyn landbúnaðarhéraðanna í sýslunni fyrir samgöngur á landi. Það er nú þannig, að varla nokkur landbúnaðarsveit við Ísafjarðardjúp hefur akvegasamband. Það er aðeins innsti hluti sveitanna við Ísafjarðardjúp, sem hefur akvegasamband við meginakvegakerfið um Þorskafjarðarheiðarveginn, en hann var opnaður 1946. Þess vegna hef ég flutt þetta frv. hér, að ég tel ekki annað geta komið til mála en að þessir vegir, sem í frv. ræðir um, verði teknir í tölu þjóðvega. Auk þess sem byggðarlögunum er að þeim mikil samgöngubót, er gert ráð fyrir því, að einum stærsta kaupstað landsins, Ísafjarðarkaupstað, komi til með að skapast akvegasamband við akvegakerfi landsins með vegi, sem kemur til með að liggja eftir strandlengjunni við Djúpið sunnanvert. Það hefur verið rætt um að skapa akvegasamband öðruvísi með því að leggja veg af Þorskafjarðarheiði um Vestfjarðahálendið niður til Dýrafjarðar eða Arnarfjarðar. Hv. Alþ. samþ. till. um að láta fara fram rannsókn á þessari leið. Sú rannsókn hefur ekki farið fram enn þá, en allir, sem ég hef rætt við um þetta, telja mjög ólíklegt, að sá vegur verði opinn nema örstuttan tíma á sumri. Munu margir telja óráðlegt að ráðast í slíka vegagerð, þegar á það er litið, að háfjallavegur um Vestfjarðahálendið kæmi ekki byggðinni að gagni í þessum landshluta. nema helzt Ísafjarðarkaupstað. Þá verður að telja ráðlegt að hafa veginn um byggð og ná í senn akvegasambandi við einn stærsta kaupstað landsins og skapa héruðunum og byggðinni mikla samgöngubót. Í frv. er svo auk þess rætt um, að lagðir verði vegir meðfram Ísafjarðardjúpi að norðanverðu og vegurinn verði framlengdur sem næst á enda Snæfjallastrandar, enn fremur að vegurinn frá Sætúnsbryggju í Grunnavík um Grunnavíkurhrepp að Furufirði á Ströndum verði tekin í þjóðvegatölu. Þar hefur enginn vegarspotti verið unninn enn, en hreppurinn er mjög víðlendur og nær um sunnanverða Jökulfirði og norður um Hornstrandir. Það er ekki hægt að halda því fram, að þetta fólk hafi minni þörf eða rétt á slíkum samgöngubótum, en aðrir. Þó að nokkrir örðugleikar séu á þessari vegagerð, þá er þó önnur aðstaða nú, þegar fengnar eru stórvirkar vélar og tæki í stað haka og skóflu. — Ég tel ekki ástæðu til að fara fleiri orðum um frv., en leyfi mér að óska þess, að því verði vísað til 2. umr. og samgmn.