02.11.1948
Neðri deild: 9. fundur, 68. löggjafarþing.
Sjá dálk 418 í C-deild Alþingistíðinda. (3868)

31. mál, þjóðhátíðardagurinn 17. júní og frídagur 1. maí

Flm. (Hermann Guðmundsson) :

Herra forseti. Þetta frv., sem hér liggur fyrir, er nú flutt í nokkuð breyttri mynd frá því, sem það var fyrst flutt hér á Alþingi árið 1946. Um þetta frv. er það að segja í meginatriðum, að þar er gert ráð fyrir í fyrsta lagi, að 17. júní skuli vera þjóðhátíðardagur Íslendinga og 1. maí almennur frídagur. Þetta er í sjálfu sér ekki svo mikill munur eða breyt. frá því, sem nú er hjá okkur. 17. júní hefur frá lýðveldisstofnuninni 1944 verið þjóðhátíðardagur Íslendinga. Hann var áður hátíðardagur íþróttahreyfingarinnar. En síðan 1944 hefur þessi dagur verið hátíðlegur haldinn um land allt. Virðist því ekkert eðlilegra en að þessu sé slegið föstu með lögum. 1. maí hefur verið baráttudagur verkalýðsins og mun svo verða að líkindum á komandi árum. Nú hafa flest verkalýðsfélög í landinu náð samningum við flesta atvinnurekendur um að fá daginn viðurkenndan sem almennan frídag. Hins vegar, er það krafa verkalýðshreyfingarinnar að fá daginn lögleiddan sem almennan frídag. Og þess vegna er gert ráð fyrir því hér.

Um. 2. gr. þessa frv. er það að segja, að hún er meginbreyt. Þar er gert ráð fyrir, að atvinnurekendur greiði full daglaun fyrir þjóðhátíðardaginn, 17. júní, og almenna frídaginn, 1. maí, þeim launþegum, sem starfað hafa hjá þeim, svo sem nánar er til tekið í frv., og að launþegar, sem af óhjákvæmilegum ástæðum verða að vinna nefnda daga, skuli fá greitt, auk venjulegra daglauna, sem svarar helgidagakaupi hlutaðeigandi atvinnugreinar. Og svo er til tekið, að ráðh. setji reglugerð um það, hvernig þetta er framkvæmt.

Frá því, er þetta frv. var fyrst flutt, og þar til nú hefur það skeð, sem ég geri ráð fyrir, að flestum hv. þm. sé kunnugt, að frændþjóð vor, Norðmenn, hafa samþ. lög, sem í meginatriðum eru mjög lík því, sem hér er um að ræða, þar sem 17. maí er ákveðinn þjóðhátíðardagur lögum samkv. og 1. maí almennur frídagur. Í þessum l. er því líka slegið föstu, að atvinnurekendur greiði full laun starfsfólki sínu fyrir þessa daga, að vísu eftir öðruvísi reglum en hér er gert ráð fyrir, og þá samkv. l., sem gilda í sambandi við ýmsar vinnustéttir þar í landi.

Sé ég ekki ástæðu til að fara fleiri orðum um frv. nú. Ég vænti, að það mæti góðum skilningi og velvilja hjá hv. þm. Og ég geri að till. minni, að því verði vísað til hv. heilbr.- og félmn. að lokinni þessari umr.