08.11.1948
Neðri deild: 11. fundur, 68. löggjafarþing.
Sjá dálk 421 í C-deild Alþingistíðinda. (3876)
38. mál, útrýming minka
Atvmrh. (Bjarni Ásgeirsson):
Ég verð að viðurkenna, að þetta frv. er á margan hátt aðgengilegra en það frv., sem lá fyrir síðasta þingi, með öllum þeim myndbreytingum, sem það tók í meðferð þingsins. Get ég sagt það nú þegar, að ég tel kaflann um útrýmingu villiminka vera mjög vel undirbúinn grundvöll undir löggjöf um það efni og frv. þar að lútandi. En ég verð að líta þannig á, að fyrstu gr. frv. sé ofaukið, því að ég tel, að leggja verði aðaláherzluna á að útrýma villiminknum, því að það er af honum, sem þjóðinni stafar hætta, en ekki, eins og hér hefur verið tekið fram áður, frá þeim minkum, sem eru í búrum. — Skal ég geta þess í sambandi við þetta mál, að haldið hefur verið áfram á vegum landbrn. að útrýma villiminknum, eftir því sem föng eru á, og einnig hefur verið haldið áfram á sama grundvelli og áður að verðlauna þá menn; sem drepa minkinn. Auk þess hefur ráðuneytið fengið sérstaklega veiðivanan mann frá Noregi hingað til lands til þess að ferðast nokkuð um landið og starfa að veiðum og kenna að veiða í gildrur, sem virðist gefast vel. Ég get ekki sagt með vissu, hvað mikið hefur verið starfað í sumar eða hve mikill árangur hefur orðið, en af þeim gögnum, sem komin eru til rn., sést að það hefur á þennan hátt verið útrýmt 1.000 villiminkum, og er þó vitað, að enn eru ókomin gögn þessu viðvíkjandi af landinu, þannig að sýnilegt er, að náðst hefur á ekki mjög löngum tíma næsta mikill árangur um útrýmingu villiminka. En það tekur tíma ekki aðeins eitt eða tvö ár, heldur mörg ár — að uppræta þetta dýr, eins og mikið er orðið til af því, og ég tel, að fyrst um sinn megi láta nægja að setja þann kraft, sem við höfum, í það að útrýma villiminknum og sjá hvað setur með þann mink, sem í búrum er. En ef menn, mót von, verða þess varir, að minkar sleppi úr búrum, þá er hægt að stíga skrefið að fullu og banna þetta minkaeldi einnig, en sem stendur virðist ekki ástæða til að gera slíkar ráðstafanir. Ég tel vel fyrir þessu máli séð meðlöggjöf, ef frv. þetta verður að lögum, og að með því sé fenginn öruggur grundvöllur undir útrýmingu villiminkanna.