08.11.1948
Neðri deild: 11. fundur, 68. löggjafarþing.
Sjá dálk 422 í C-deild Alþingistíðinda. (3877)
38. mál, útrýming minka
Flm. (Jörundur Brynjólfsson):
Herra forseti. Mér þykir mikið miður, að hæstv. landbrh. skuli halda því fram, að ekki sé kominn tími til að útrýma aliminkum, því að á meðan svo er, að þeir eru geymdir í búrum, er stöðug hætta á því, að þeir sleppi út. Það er að vísu rétt, að það stafar engin hætta af minkunum innan fjögurra veggja; — en hvaðan eru þeir villiminkar komnir, sem nú eru dansandi um allar jarðir til stórskaða og ekkert ræðst við? Voru þeir ekki í búrum áður? Ég veit ekki til, að þeir hafi orðið sú plága, sem raun er á; með öðrum hætti en þeim, að þeir sluppu úr búrum. Og það er tilgangslaust að vona, að þeir sleppi ekki út; þeir halda áfram að sleppa og án þess að uppvíst verði, því að þeir, sem missa þá, eru svo sem ekki að hrópa upp um það, að þeir hafi misst mink. Og mig furðar á því og þykir miður, að hæstv. landbrh. skuli vilja stuðla að því að leggja þá kvöð á menn úti um sveitir að eiga í þrotlausu stríði árum saman við þennan vágest og eiga það jafnframt yfir höfði sér, að allt sé unnið fyrir gýg. Það er þó búið að sjá, hvert stefnir með tilkomu þessa dýrs úti í hinni villtu náttúru. Og það er sannarlega nóg að gert, sem komið er, þótt ekki séu gerðar gyllingar til þess, að sama sagan endurtaki sig. Það þarf að útrýma villiminkunum sem fljótast og jafnframt að tryggja það, að minkahættunni sé þar með að fullu afstýrt.
Ég vildi því mega vænta þess, að hæstv. landbrh. endurskoði afstöðu sína. Og ég er sannfærður um það; að ef minkaeldi verður liðið öllu lengur, þá neyðast menn til að taka til sinna ráða. Svo geta valdhafarnir reynt á langlundargeð manna — og þess eigum við dæmi úr okkar eigin sögu, sem við megum vera minnugir —, að menn missi þolinmæðina og hirði þá ekki um að fara nákvæmlega eftir lagastafnum. Og það eitt væri þá maklegt, ef hæstv. Alþ. skellir lengur skolleyrunum við þessu máli.