04.11.1948
Neðri deild: 10. fundur, 68. löggjafarþing.
Sjá dálk 429 í C-deild Alþingistíðinda. (3890)
39. mál, stéttarfélög og vinnudeilur
Gylfi Þ. Gíslason:
Herra forseti. Ég vil ekki láta hjá liða við 1. umr. þessa máls að láta þess getið, að ég er andvígur því. Ég tel, að afskipti löggjafans af frjálsum félagsskap í landinu eigi ekki að vera meiri en nauðsyn krefur. Og sú hefur líka verið stefnan fram til þessa, sbr. lög um stéttarfélög og vinnudeilur og lögin um samvinnufélög. Þar kemur fram sú stefna að hafa afskipti löggjafarvaldsins af málefnum félagssamtakanna ekki meiri, en brýna nauðsyn ber til. Með þessu frv. er aftur á móti lagt til, að löggjafarvaldið fari beinlínis að skipta sér af skipulagningu verkalýðsfélaganna, þar sem miklum minni hluta á að vera heimilt að krefjast hlutfallskosninga, en það eru meiri afskipti en ég fellst á, að séu réttmæt eða æskileg. Þó læt ég þess getið, að e. t. v. væri ástæða til að breyta eitthvað gildandi lögum um stéttarfélög og vinnudeilur og samvinnufélagalögunum, en um leið tek ég það skýrt fram, að ég álít, að það eigi ekki frekar við fyrri lögin, en þau síðari. Reynslan hefur sýnt, að í sambandi við kosningar í slíkum félögum hefur oft orðið vart nokkurs misskilnings og þar hafa orðið mistök. Það hefur t. d. komið í ljós í ákveðnum félögum, að ekki hefur verið fylgt til hins ýtrasta kosningareglum, og hefur þá í skjóli ónákvæmra lagaákvæða ýmislegt vafasamt verið framkvæmt, t. d. eins og að bæta kjósendum á kjörskrá eftir að kosning var hafin. Þá hafa kosningar einnig farið fram með handauppréttingum og lauslega taldar niðurstöður látnar gilda, enda þótt véfengdar hafi verið og krafa hafi komið um skriflega kosningu.
Ég hygg, að allir geti verið sammála um það, að æskilegt sé, að ekki þyrfti að rísa ágreiningur innan félaga um kosningafyrirkomulag og komið væri t. d. í veg fyrir, að mögulegt sé að bæta mönnum inn á kjörskrá eftir að kosning er hafin. Sömuleiðis ættu allir að geta orðið sammála um, að fundarsköpin í heild væru þannig, að ekki þyrftu að verða deilur út af fyrirkomulagi funda í t. d. verkalýðsfélögum og samvinnufélögum. Og þær breytingar, sem ég tel, að geti komið til mála að gera í þessu sambandi, eru, að ný löggjöf væri sett og þá um leið nákvæmari fyrirmæli um það, hvernig fundarsköp í slíkum félögum skuli vera, og enn fremur nokkrar almennar reglur um það, hvernig kosningar í þeim skuli fara fram. Um þetta ættu allir að geta verið sammála. En þetta er allt annað en að fyrirskipa kosningaaðferð og tryggja minni hlutanum rétt til þess að ákveða, að slík kosningaaðferð sé tekin upp. Og ef gengið er svo langt í afskiptum af hinum ýmsu frjálsu félögum og félagssamtökum eins og hér er lagt til, þá gæti verið ástæða til þess að fara að athuga, hvort ekki væri rétt að setja fyrirmæli um kosningar og fundarsköp í ýmsum öðrum félagssamtökum, sem eru ekki miklu þýðingarminni en verkalýðsfélögin, þ. e. a. s. stjórnmálaflokkunum. Nú gilda engin lagaákvæði um starfsemi stjórnmálafl. og heldur ekki um innra skipulag þeirra. Stjórnmálafl. geta hagað skipulagi sínu og kosningum og allri starfsemi sinni eins og þeim sýnist. Þó eru stjórnmálafl. í raun og veru eitt sterkasta valdið í þessu þjóðfélagi. En nú vita allir, að skipulag stjórnmálafl. er ákaflega mismunandi.
Ég hygg, að sá flokkur, sem stendur að þessu frv. og vill nú ganga mjög langt í því að setja reglur um frjálsan félagsskap í landinu, hafi allra lélegast og losaralegast skipulag af öllum stjórnmálaflokkum í landinu. Það veit í rauninni enginn, hvað Sjálfstæðisfl. er. Manni skilst þó, að hann sé samansettur af ýmsum félögum í ýmsum bæjum og héruðum, eins og reyndar hinir flokkarnir. En víst er um það, að engar ákveðnar reglur virðast gilda um heildarskipulag hans og þinghald, heldur er flokksþingið eins konar allsherjarmót sjálfstæðismanna, sem þeir kalla svo landsfund sjálfstæðismanna. Og litlar reglur munu vera um það, hvernig kosnir eru fulltrúar á þessi allsherjarmót. Ég hygg þó, að ég hafi fengið alveg áreiðanlegar fregnir af því, hvernig fulltrúar eru kosnir á þennan landsfund sjálfstæðismanna. Þar munu sumir fulltrúarnir kosnir af félögum, aðrir vera tilnefndir af stjórn Sjálfstfl. og þar munu jafnvel mæta menn, sem ekki hafa verið tilnefndir af nokkrum aðilum, heldur bara af því að þá langar til þess að mæta þar! Ég hygg, að þetta gildi ekki aðeins um fulltrúana úr Reykjavík, heldur einnig utan af landi. Ég hef áreiðanlegar fregnir af því, að á þessum landsfundum er enginn greinarmunur gerður á fulltrúunum, hvort sem þeir eru kosnir af félögum, tilnefndir af stjórn Sjálfstfl. eða þeir mæta þar bara af því, að þá langar svo mikið. til þess að vera þar viðstaddir. Og þessir landsfundir Sjálfstfl. hafa oft verið einhverjar hinar mestu pólitísku skrípasamkomur, sem haldnar hafa verið, hallelújasamkomur af ómerkilegustu tegund, þar sem hvorki fundarmenn sjálfir né utanaðkomandi menn hafa vitað neitt um það, hvort fulltrúarnir hafa löglegt umboð eða ekki, enda mun atkvgr. á þessum fundum sjálfstæðismanna hafa farið fram með lófataki og í bezta tilfelli með handauppréttingum, og eiga þá allir að samþ., en um ágreining á þessum fundum hefur afar lítið heyrzt.
Mér finnst það sitja afar illa á flokki eins og Sjálfstfl. að bera slíkt frv. fram sem þetta, sem hér liggur fyrir, og undrast ég það mjög, að allir hv. þm. þessa flokks skuli hafa sameinazt um slíkt mál, að setja frjálsum félagasamtökum í landinu mjög nákvæm fyrirmæli um það, hvernig þau skuli haga sínum kosningum og innri málum, þegar um þeirra eigin flokk, Sjálfstfl., má segja, að hann sé algerlega skipulagslaus.
Það mun ekki vera hætta á því, að frv. þetta fái nokkrar verulegar undirtektir nú frekar en áður, en ef einhver hætta væri á því, að þetta frv. næði fram að ganga, þá væri ástæða til að setja löggjöf um stjórnmálafl. og þá fyrst og fremst til þess að tryggja það, að Sjálfstfl. verði sæmilega lýðræðislegur flokkur.