04.11.1948
Neðri deild: 10. fundur, 68. löggjafarþing.
Sjá dálk 431 í C-deild Alþingistíðinda. (3891)

39. mál, stéttarfélög og vinnudeilur

Flm. (Jóhann Hafstein) :

Herra forseti. Ég get ekki varizt því að snúa mér nokkuð að sessunaut mínum í sambandi við þessa hlægilegu ræðu, sem hann hér flutti. Ég veit, að þessi hv. þm. er töluvert mikill skipulagsmaður, og hefur af og til bólað á skipulagsfrv. og hagfræðiplönum og alls konar plönum frá honum. En að hv. þm. hefði áhuga fyrir að skipuleggja Sjálfstfl., hefur ekki komið fram fyrr en nú. Hv. þm. sagði, að það vissi enginn, hvað Sjálfstfl. væri. En við sjálfstæðismenn getum huggað okkur við það, að stærsti kjósendahópurinn í landinu veit, hvað Sjálfstfl. er, og það hefur hv. 4. þm. Reykv. fengið að vita um kosningar. Það er ekkert leiðinlegt, að menn mæti á fundum, af því að þá langar til þess. Það hefur ekki komið fyrir hjá Sjálfstfl., og ég vona, að það komi ekki fyrir, að menn mæti þar bara af því, að þeir eru skyldaðir til þess. En við söknum þess ekkert að hafa ekki Gylfa eða Hannibal innan Sjálfstfl., en getum vel sætt okkur við, að flokkurinn sé samstilltur vel. En þetta var nú aðeins útúrdúr hjá hv. þm. En það, sem hann vék að frv., sem hér liggur fyrir, þá lýsti hann sig mótfallinn því, af því að það mælti fyrir um það, að það skyldi hafa ákveðnar reglur innan verkalýðsfélagsskaparins í landinu og setja slíkum félagsskap ákveðnari skilyrði með ákvæðum laga. En þessi hv. þm. var ekki fyrr búinn að sleppa orðinu um þetta, en hann sagði, að það ætti að setja reglur um fundarsköp og almennar reglur um kosningar ekki aðeins innan verkalýðsfélaganna, heldur samvinnufélaganna líka. Ég veit ekki, hvort á að taka hv. 4. þm. Reykv. alvarlega, þegar hann talar svona.

Ég vorkenni hv. 11. landsk., þegar hann talar hér í hv. d. um þetta mál, því að hann vann að því á sínum tíma innan verkalýðsfélaganna, að komið yrði á hlutfallskosningum innan félaganna, eins og kunnugt er. Síðan hefur hann komizt í þann pólitíska flokk, sem er fljótur að skrúfa fyrir sannfæringu manna, en þar verða þeir, sem inn í þann flokk leiðast, að dansa með, hver svo sem fyrri afstaða þeirra hefur verið. Það var annars lítið annað í ræðu hv. þm. en að óska þessu frv. sömu útreiðar og frv. um sama efni hefði fengið síðast. Þm. þurfa ekki að fá sér það til, þótt frv., sem þeir flytja, nái ekki við fyrsta flutning fram að ganga. Ég minnist þess, að sjálfstæðismenn fluttu á Alþ. frv. ekki óskylt þessu, um vinnulöggjöf, sem kölluð var þrælalög af þm., sem þá börðust á móti frv. En það má segja, að þetta frv. hafi verið í meginatriðum eins og það frv., sem hinir sömu flokkar stóðu að að flytja nokkru seinna, og er sú löggjöf búin að vera lengi við lýði og er orðin það vinsæl, að ég hygg, að enginn vilji missa hana nú.

Ég er sannfærður um það, að þótt þetta frv. um sanngjarnar, lýðræðislegar kosningar innan verkalýðsfélaganna nái ekki fram að ganga á þessu þingi, þá muni stefna þess sigra að lokum. Hvort það er ákveðið hér á Alþ. eða með frjálsum vilja innan verkalýðsfélaganna, það skiptir ekki meginmáli í þessu sambandi.

Hv. 11. landsk. sagði, að þetta frv. væri í raun og veru dauðadæmt, af því að því hefði verið mótmælt af alþýðusambandsþingi, og þau mótmæli yrðu ekki léttvæg fundin. En ég vil þá minna á í þessu sambandi, að það hefur verið sagt, að með þessu frv., ef það yrði samþ., yrði lögfest sundrung innan verkalýðsfélaganna. Það er eins og að ekki hafi verið pólitísk sundrung innan verkalýðsfélaganna hingað til og hún ætti að skapast við það, að þessi hlutfallskosning yrði tekin upp. En þetta er það, sem allir lýðræðissinnar um heim allan vilja taka upp. En hér hefur því verið haldið fram, að ef þetta kosningafyrirkomulag yrði tekið upp, mundi það auka afskipti pólitísku flokkanna í verkalýðsfélögunum. Ég veit ekki, hvort þau eru svo lítil nú, að menn verði ekki varir við þau. Nei, ég held þvert á móti, að þau meginrök, sem vitnað hefur verið til frá þingi Alþýðusambandsins, verði mjög léttvæg fundin.

Ég vil svo víkja að ræðu hv. 8. þm. Reykv., sem fór mjög ýtarlega út í málið frá sínu sjónarmiði. Hann furðaði sig ákaflega á því, að þetta mál væri orðið pólitískt flokksmál. Þetta mál hefur verið rætt og samþ. á landsfundum og öðrum samkomum Sjálfstfl., og var gerð grein fyrir því við flutning málsins hér í hv. d., svo að frv. er framhald af þeim samþykktum.

Þá var eitt atriði í ræðu hv. 8. þm. Reykv., sem er eftirtektarvert. Hann talaði um, að þetta frv., sem hér liggur fyrir, væri flutt vegna hagsmuna atvinnurekenda, og komst þannig að orði, að hagsmunir verkamanna færu aldrei saman við hagsmuni atvinnurekenda. Ég skal leiða hjá mér þá ásökun, að þetta frv. sé flutt vegna hagsmuna atvinnurekenda, en ég vil vekja sérstaka athygli á hinu, sem er ákaflega veigamikið atriði fyrir okkur Íslendinga, að menn lýsi því yfir á Alþ., að hagsmunir verkamanna fari ekki saman við hagsmuni atvinnurekenda. Þessi rangsnúni hugsunarháttur er hættulegur íslenzkum stjórnmálum, en það er einmitt þetta, sem menn verða að gera sér grein fyrir og að það er einn flokkur í landinu, sem hefur tekið upp þetta aldagamla sjónarmið í baráttu sinni, að byggja á því, að stétt berjist gegn stétt. Þetta er búið að kenna hv. þm., og þess vegna talar hann þannig. Menn verða að gera sér grein fyrir, að hagur verkamanna og atvinnurekenda er mjög samantvinnaður og þeir þurfa að vinna að því að skapa gagnkvæman skilning milli stéttanna, sem hér er um að ræða, verkamanna og atvinnurekenda. Ég veit, að hér er um sjónarmið að ræða, sem Sósfl. hefur byggt alla sína pólitísku baráttu á. Og ég veit, að það er hættulegt íslenzku þjóðfélagi, ef þessi kenning þeirra fær að festa rætur. Það ríður því á að koma þeirri stefnu rækilega fyrir kattarnef og það sem fyrst.

Þá sagði hv. 8. þm. Reykv., að það væri ekkert fordæmi fyrir því í nokkru þjóðfélagi, að það væru l., að ákveðið kosningafyrirkomulag væri haft innan frjálsra samtaka. En ég vil þá minna á búnaðarfélagssamtökin, vegna þess að það eru 12 ára gömul l., sem lögskipa, að hlutfallskosning skuli vera höfð innan búnaðarfélaganna, þegar kjósa á til búnaðarþings. Þessi ákvæði voru sett í jarðræktarlögin 1936. Þar er sagt, að rétt til þess að bera fram kjörlista hafi minnst 40 félagsmenn, og geri ég ráð fyrir, að það sé mjög lítill hluti af öllum félagsmönnum. Í gr. segir: „Rétt til að bera fram kjörlista hafa minnst félagsmenn með samtals 40 atkv., og skulu vera jafnmargir á hverjum lista og kjósa á og jafnmargir til vara. Komi fram fleiri en einn listi, skal hlutfallskosning viðhöfð.“ Hv. 8. þm. Reykv. sagði, að þessi samtök væru meira fjárhagslega háð ríkinu, en verkalýðssamtökin, og mér skilst, að það séu einu rökin fyrir því, að ríkið geti leyft sér að setja slík kosningaákvæði innan búnaðarsamtakanna. Hvað fjárhagshlið málsins snertir, þá er það að vísu rétt, en verkalýðsfélagsskapurinn hefur engu minni þjóðfélagslega þýðingu en búnaðarfélagsskapurinn, og er því ekki úr vegi, að ríkið komi þeim málum svo fyrir, að rétt kosningafyrirkomulag sé viðhaft innan þeirra, en ekki eins og t. d. í Dagsbrún, sem lætur minni hlutann ráða. Í Dagsbrún, þegar á að kjósa 32 fulltrúa til alþýðusambandsþings, þá er kosið þannig, að þeir, sem fá hreinan meiri hluta, fá menn kosna, og það er minni hlutinn í Dagsbrún, sem stendur á bak við alla þessa menn. (SigfS: Er þetta ekki eins og í Sjálfstfl.? — GÞG: Ef þar er þá kosið nokkuð.) Ég vil minna á, hvernig menn litu á þessi mál 1936, þegar lögskipaðar voru hlutfallskosningar í búnaðarfélögunum. Þá var tekið fram í grg. fyrir frv., sem flutt var um það af framsóknarmönnum, sem studdu þá ríkisstj., sem einnig var mynduð af Alþfl., og mun það hafa verið eitt af samningsmálum Framsfl. og Alþfl. Þar segir, með leyfi hæstv. forseta:

„Með þessu kosningafyrirkomulagi er bændunum gefinn kostur á að hafa áhrif á skipun búnaðarþingsins, eftir því sem þeir hafa vilja og aðstöðu til. Einmitt með þessari skipan búnaðarþings ætti það að vera tryggt, að það væri nokkurn veginn rétt mynd af því viðhorfi, er bændurnir hafa til helztu áhugamála sinnar stéttar, og reyndar þjóðmála yfirleitt. Líklegt er, að öllum þyki vænt um þessi lagafyrirmæli. Þau svipta engan bónda réttindum, heldur þvert á móti. Þau veita bændum mikilsverð réttindi, sem þeim að sjálfsögðu ber og hefðu átt að vera búnir að fá fyrir löngu, en hefur þó dregizt til þessa. Nú mun þeim af öllum frjálshuga mönnum fagnað“.

Á þessum tíma átti það að vera fagnaðarefni allra frjálshuga manna í landinu, að lýðræðislegra kosningafyrirkomulag skyldi tekið upp í landinu, þó að sumir líti öðrum augum á það hér, þegar um verkalýðssamtökin er að ræða.

Loks er eitt atriði, sem ég vil minnast á, að með þessu frv. er ekki gert ráð fyrir því, að minni hlutinn eigi að ráða; heldur segir hér í frv.: „Skylt er að viðhafa hlutfallskosningu innan stéttarfélaga til stjórnar- og trúnaðarstarfa og við kosningu fulltrúa til stéttarsambands, ef 1/5 hluti félagsmanna krefst þess.“ En hér hefur verið reynt að koma á misskilningi, að minni hlutinn eigi með þessu að ráða í verkalýðsfélögunum. Minni hlutinn á ekki í þessu tilfelli að ráða í félögunum, en honum væri gefin þarna aðstaða til þess að geta, ef vissum skilyrðum er fullnægt, haft áhrif innan samtakanna, þannig að hann hefði rétt til þess að fá fram að hafa áhrif í hlutfalli við styrkleika sinn innan félaganna. Honum er gefið færi á að óska eftir, að áhrif hans fái að koma fram við kosningar í samræmi við styrkleika, sem sá minni hluti kann að hafa bak við sig.

Það eru svo ekki fleiri orð í fram komnum ræðum, sem þarf að svara að sinni.