09.11.1948
Neðri deild: 12. fundur, 68. löggjafarþing.
Sjá dálk 449 í C-deild Alþingistíðinda. (3900)
39. mál, stéttarfélög og vinnudeilur
Jón Sigurðsson:
Herra forseti. Ég hafði ekki hugsað mér að taka til máls í þessu máli, en ætlaði að láta Reykvíkingana um það. En af því að mitt nafn hefur verið sérstaklega nefnt í þessum umr. og ég sé, að ekki eru hér viðstaddir aðrir hv. þm., sem líka voru nefndir og vitnað til ummæla eftir, taldi ég ástæðu til þess að segja nokkur orð út af ræðu hv. síðasta ræðumanns. Hann gat þar um mál, sem var hér til meðferðar fyrir 12–13 árum síðan, og lagði út af því að sumu leyti miður vingjarnlega. Ég skal þá leyfa mér að gera litla grein fyrir því, hvernig þetta bar að, þ. e. breyt. á jarðræktarlögunum. En í þeirri breyt. innifólust líka fyrirmæli um það, að Búnaðarfél. Ísl. skyldi taka upp hlutfallskosningafyrirkomulag, og var það lögskipað. Þetta atriði, ásamt ýmsum nýjum ákvæðum, mætti eindreginni mótspyrnu hér í þinginu af minni hendi og margra annarra, eins og þegar hefur verið getið um. En þrátt fyrir það varð þetta frv., sem fól í sér m. a. fyrirskipun um hlutfallskosningar til búnaðarþings, samt sem áður að lögum, — alveg þvert ofan í mótmæli meiri hluta búnaðarþings. Það var svo hart að því gengið. Svo var því haldið fram, að það væri eðlilegast, að félögin stæðu að þessu sjálf, og að lokum var gert samkomulag milli ríkisstj. og búnaðarþings um það, að þetta ákvæði skyldi numið úr l., en búnaðarþing tæki það upp í sín l., og það er búið að því, og með þeim l. er tryggt, að því verði ekki auðveldlega hrundið, því að l. mæla svo fyrir, að það þurfi ríflegan meiri hl. til að breyta l. félagsins. Það mátti því ætla af hendi þeirra manna, sem stóðu fyrir þessu, að það væri tryggt, að þessi ákvæði héldust í l.
Nú kem ég að því, sem ég tel mest vert í þessu sambandi. Hvernig hefur þessi skipun reynzt? Ég held, að mér sé óhætt að segja, að það sé samróma álit allra, að það hafi reynzt vel, Ég segi það jafnt, þó að ég hafi á sínum tíma verið því andvígur. Þetta fyrirkomulag varð m. a. til þess að auka að miklum mun samstarf milli þeirra, sem eiga að vinna saman að sameiginlegum hagsmunamálum. Áður fyrr, meðan einn og sami flokkur fékk annaðhvort alla fulltrúana eða engan, myndaðist oft óeðlilegt kapp, sem hjá þeim, sem töldu sig afskipta, olli oft sársauka, sem torveldaði alla samvinnu milli þeirra, sem saman þurftu að vinna. Þetta hefur horfið mikið. Ég fullyrði, að samstarfið hefur orðið miklu betra, síðan þessi breyt. komst á. Þetta var orsökin til þess, að þegar stéttarsamband bænda var stofnað, sem er að sumu leyti hliðstæðara verkalýðssamtökunum, en Búnaðarfélag Íslands, þá var þar ákveðin hlutfallskosning, eða menn hafa rétt til að hafa þær, sé þess óskað. Það sýnir, hvernig þetta fyrirkomulag hefur gefizt. Það er stundum svo, að það þarf nokkuð til að vekja athygli manna á, hvað sé heppilegast, og ég fyrirverð mig ekki neitt fyrir það, þó að ég nú líti öðruvísi á þessi mál, en ég gerði fyrir 12 árum síðan. Ég tel skyldu mína, ef ég kemst að því, að ég hafi ekki á réttu að standa, að breyta um og fylgja því, sem réttara eða betra reynist, hver sem aðstaða mín kann að hafa verið áður fyrr. Þetta er sú regla, sem ég hef fylgt, og samkvæmt þessari reglu og samanborið við þá reynslu, sem ég tel, að bændastéttin hafi hér fengið, þá hikaði ég ekki við að gerast meðflm. að þessu frv., þó að ég telji eðlilegast, að upp úr þessu kæmi það, að verkalýðsfélögin hyrfu sjálfkrafa að þessu ráði og ákvæðu það fyrirkomulag, sem hér er lagt til, og ég gæti vel trúað, að þessi tilraun, sem hér er gerð, yrði til þess, að verkalýðsfélögin tækju þetta fyrirkomulag upp í l. sín, eins og Búnaðarfélagið gerði á sínum tíma, og þar með er þá líka okkar tilgangi náð.
Ég tel svo ekki ástæðu til að hafa um þetta fleiri orð. Það er sannfæring mín, að slík breyt. yrði verkalýðsfélögunum aðeins til góðs. Þess vegna tel ég rétt að fylgja málinu og stuðla þannig að því, að það gæti komizt á rekspöl.