09.11.1948
Neðri deild: 12. fundur, 68. löggjafarþing.
Sjá dálk 454 í C-deild Alþingistíðinda. (3905)
39. mál, stéttarfélög og vinnudeilur
Gylfi Þ. Gíslason:
Það eru örfá orð. — Þetta, sem þessi hv. þm. sagði síðast, er eitt af mörgu, sem ber vott um, að þessi hv. þm. hefur alls ekki verið hér s. l. tvö ár. Hann segir, að ég hafi haldið svo margar ræður. Allir hv. þm. vita, að þetta er sagt út í bláinn, og það getur ekki stafað af öðru en því, að hv. þm. G-K. veit ekkert, hvað gerist hér í d. eða í þinginu yfir höfuð. Það er fjarri því, að ég sé í hópi þeirra þm., sem mest tala. Það er lítill vandi að ganga úr skugga um það. Ef allar þingræður væru athugaðar frá þeim tíma, er ég kom á þing, þá geri ég ráð fyrir, að það kæmi í ljós, að ég væri svona um meðallag hvað ræðulengd snertir, alls ekki meira. En ef mikil ræðuhöld fara í taugarnar á þessum hv. þm., þá ætti hann að athuga ræðuhöldin í Ed., því að þar er þm., sem heldur jafnlangar ræður og allir aðrir í d. til samans. Sá þm. er flokksbróðir hv. þm. G-K. Þangað væri honum nær að beina spjóti sínu, en til mín.