26.11.1948
Neðri deild: 23. fundur, 68. löggjafarþing.
Sjá dálk 259 í B-deild Alþingistíðinda. (391)
2. mál, síldarbræðsluskip
Jóhann Hafstein:
Herra forseti. Ég vildi aðeins við þessa umr. málsins fá að standa við loforð, sem ég gaf í gær í sambandi við deilur okkar hv. þm. Siglf., þar sem hann var hér með nokkuð annarlegan söguburð um kaup skipsins Hærings og taldi þau öðruvísi til komin en ég hafði gefið upplýsingar um. Og ég sagðist þá mundu gefa nánari skýrslur um það mál frá fyrstu hendi. Ég vildi þá gera hv. þd. grein fyrir þessu með því að lesa upp, með leyfi hæstv. forseta, skýrslu frá Ólafi Sigurðssyni, sem er svo hljóðandi:
„Í umræðum á Alþ. um innflutningsleyfi fyrir ofannefnt skip (þ.e. s/s Hæring) hefur gætt nokkurrar vanþekkingar á ýmsum atriðum varðandi kaup skipsins, og þar eð ég, ásamt herra verkfræðingi Jóni Gunnarssyni, mun vera því máli einna kunnugastur, leyfi ég mér hér með að gefa eftirfarandi skýringar á þeim forsendum, er þetta skip var keypt, eftir:
Í byrjun þessa árs var þess farið á leit við mig af stjórn h.f. Hærings að vera þeim til aðstoðar. við kaup á skipi fyrir væntanlega fljótandi síldarverksmiðju. Mætti ég þá á nokkrum fundum með stjórn fyrirtækisins hér í Reykjavík og ræddi um stærð, gerð og tilhögun vinnslu í væntanlegu skipi. Lágu þá fyrir fleiri tilboð í skip af ýmsum stærðum, bæði frá Ameríku og Evrópu. Varðandi stærð skipsins var álitið heppilegast, að það væri 5–7 þús. tdw., skyldu aðrar stærðir einnig athugaðar, ef ástæður þættu til. Það þótti strax sýnt, að frekast væri að leita fyrir sér í Ameríku, þar eð fjöldi skipa lá þar uppi, en eigi í Evrópu. Einnig var nauðsynlegt að láta fara fram strax nokkrar breytingar á skipinu, hverju sem keypt væri, og ómögulegt var um þær mundir að fá þær gerðar í Evrópu, en hins vegar voru skipasmíðastöðvar í Ameríku sólgnar í vinnu.
Hinn 19. febrúar í ár fór ég síðan ásamt Jóni Gunnarssyni til New York þessara erinda. Bárust þá enn frekari upplýsingar um boðin skip, svo og tilboð í fleiri.
Skip þau, er byggð voru í seinasta stríði og þá á boðstólum, skiptust í vissa stærðarflokka. Liberty-skipin voru of stór (ca: 10.000 tdw.), og önnur flutningaskip voru of lítil, en þó þótti ástæða til að skoða skip af LST-gerð um ca. 4.000 tdw. og sérstaklega gerð til flutninga á stríðstækjum. Skoðuðum við skip af þessari gerð þann 24. febrúar, þar sem það lá skammt frá New York. Skipið reyndist ónógt. Geymslur hefðu orðið mjög litlar, bæði fyrir afurðir og hráefni, og auk þessa hefði þá orðið að kaupa sérstaka katla fyrir verksmiðjuna, þar eð skipið var dieseldrifið.
Af eldri skipum virtist eitt hafa ýmsa kosti fram yfir önnur. Voru þeir aðallega þessir:
1. Skipið var ca. 6.900 tdw., með miklar lestir og grunnskreitt.
2. Gufuskip með olíukynta katla nægilega fyrir verksmiðjuna.
3. Skipið hafði 50x50 feta stóran og sterkan pall, 2 fet yfir þilfari,, tilvalinn fyrir stærstu og þyngstu vinnsluvélar verksmiðjunnar.
4. Allar yfirbyggingar skipsins voru byggðar nýjar 1943 og gerðar fyrir 70 manns. Einnig hafði skipið þá verið gert fullkomlega í stand af ameríska flotanum.
5. Skipið hafði fram til 1943 verið á stóru vötnunum, þannig eigi orðið fyrir eins mikilli áreynslu vegna ölduhreyfingar eins og skip á hafi, svo og eigi eins mikil hætta á ryðbruna.
6. Vegna ísa hafði skipið aðeins verið í gangi um 7 mánuði á ári hverju.
7. Verðið var mjög lágt, eða 170.000 dollarar (ca. 1.1 millj. ísl. kr.).
Aðalgallar voru eftirfarandi:
1. Skipið var gamalt, byggt strax eftir aldamót.
2. Skipið var eigi í klassa.
Nafn skipsins var „Duluth“ og það í eigri félagsins Overlake Freight Corporation.
Að öllu athuguðu þótti rétt að skoða skipið, þar sem það lá í nánd við Portland Oregon. Þangað komið sýndi sig, að systurskip þess, „W,
J. Conners,“ lá þar við bryggju á skipasmíðastöð og til sölu, þar eð kaupandi hafði ekki getað staðið í skilum við áðurnefnt félag. Skipið var alveg eins og „Duluth“, en nýklassað og tilbúið til siglinga. Var það í fullkomnu standi og í fjögurra ára hæsta klassa American Bureau of Shipping. Verðið var 192.500 dollarar (ca. 1,25 millj. ísl. kr.).
Við skoðuðum bæði „Conners“ og „Duluth“ og álitum klössun „Duluth“ mundi kosta 30–40 þús. dollara. Af þeim tveimur var „Conners“ betri kaup, auk tímasparnaðar. — Við undruðumst hið lága verð. Önnur skip af svipaðri stærð og einnig aldurstigi voru að minnsta kosti 50% dýrari og yngri skip í tvöföldu þessu verði. Ástæður voru meðal annars þær, að skipið var mjög hæggengt, svo og að flotinn hafði látið gera áðurnefndan pall á dekki og minnka öll lestarop um helming. Hvort tveggja þetta var til mikils óhagræðis fyrir afmenna flutninga. Hins vegar var bæði pallur og minnkun lestaropa til mikils hagræðis fyrir síldarvinnsluskip, og ganghraði hafði þar litla þýðingu.
Einnig áttum við tal við yfirmann skrifstofu American Bureau of Shipping í Portland og spurðumst um skipið. Hann kvaðst sjálfur hafa skoðað skipið og gaf því beztu meðmæli þrátt fyrir aldur. Sértaklega hældi hann efninu í því, kvað það hreint og mun betra en t.d. í Liberty-skipunum. Við sannfærðumst einnig um það við botnskoðun skipsins.
Að öllu ofannefndu athuguðu og samanborið við önnur fáanleg skip álitum við rétt að láta ekki þetta tækifæri fara, heldur mæltum með kaupunum á „W. J. Conners“. Stjórn h.f. Hærings féllst á sjónarmið vor, en þar til tekizt hefði að koma gjaldeyrismálunum í lag, var búið að selja skipið öðrum. Höfðu eigendur skipsins neitað að láta Hæring h.f. hafa skipið á hendinni nokkurn tíma, heldur kváðust selja þeim, er væri fyrstur. Hafði ítalskt skipafélag keypt annað systurskip áður og það reynzt það vel, að þeir vildu kaupa „Conners“ að auki. Hins vegar var svipað með þeirra gjaldeyrismál og vor, að þeir gátu eigi greitt á umsömdum tíma. Þannig tókst loksins að ganga endanlega frá kaupunum og á áðurnefndu verði, 192.500 dollarar.
Að lokum vil ég segja, að þótt reynslan sé ekki löng á skipinu, eftir að það kom undir íslenzkt flagg, þá hefur engin veila fundizt í skrokk skipsins, og engin aðfinnsla hefur önnur verið við skipið en sú, að það er gamalt. Það vissum við, þegar við skoðuðum skipið, og þess vegna athuguðum við skrokkinn, eftir því sem föng voru á. Hvorki American Bureau Shipping í Portland, við né aðrir, eftir að heim er komið, hafa getað bent á sérstakar veilur í skrokk skipsins, sem hefðu áhrif á öryggi þess og endingu.
Virðingarfyllst.
Ólafur Sigurðsson.“
Ég vildi aðeins leyfa mér að gera hv. þd. grein fyrir þessari skýrslu í framhaldi af umr. hér í gær.