26.11.1948
Neðri deild: 23. fundur, 68. löggjafarþing.
Sjá dálk 462 í C-deild Alþingistíðinda. (3928)
81. mál, varðskip
Frsm. (Finnur Jónsson):
Herra forseti. Mál þetta er flutt eftir ósk dómsmrh., og er ástæðan sú, að í lögum um varðskip er gert ráð fyrir því, að skipshafnir þeirra eigi heima í Rvík. Nú hefur verið gerður samningur við slysavarnadeildirnar á Vestfjörðum, að byggt skuli skip, sem hafi með höndum slysavarnir og landhelgisgæzlu við Vestfirði, en óþægilegt fyrir skipshöfnina að eiga heima í öðrum landshluta, og er því farið fram á þessa breyt. á lögunum. Sjútvn. mælir með frv.