14.02.1949
Neðri deild: 64. fundur, 68. löggjafarþing.
Sjá dálk 467 í C-deild Alþingistíðinda. (3950)
98. mál, atvinna við siglingar
Frsm. (Áki Jakobsson):
Herra forseti. Hv. sjútvn. þessarar hv. d. hefur haft málið til meðferðar. Kom það á daginn, þegar búið var að afgr. málið við 2. umr., að nokkurs ágreinings gætti milli vélstjóra og mótorvélstjóra. N. hefur því notað tímann til þess að finna lausn, sem báðir aðilar gætu sætt sig við. Nú er ekki því að heilsa, að það sé fullt samkomulag um þá lausn, sem n. leggur til, að höfð verði á þessu máli. Hins vegar er till. samin í samráði við Þorstein Loftsson, sem annazt hefur kennslu við vélstjóranámskeið víðs vegar um landið, og væntum við, að báðir aðilar megi við una, eins og sakir standa.
Okkur er það vel ljóst, að fyrirkomulagið á vélstjórakennslunni er mjög óheppilegt og til þess fallið að skapa ágreining, þar sem annars vegar eru þeir, sem verið hafa 4 ár í smiðju og 3 vetur á skóla til þess að öðlast réttindi auk fullnægjandi reynslu, sem einnig er sett sem skilyrði, en hins vegar eru þeir, sem sótt hafa mótornámskeiðin og öðlazt með meiranámskeiðinu rétt til að fara með 600 hestafla vélar, en ekki fengið nein frekari réttindi, þó að þeir vinni við þetta alla ævi. Það er því hér um að ræða tvær brautir í sömu grein, sem nauðsyn ber til að samræma þannig, að mótornámskeiðin geti orðið áfangar til að ná fullum vélstjóraréttindum. Af þessum ástæðum hefur n. átt í samningum við ríkisstj. um það, að hún léti í náinni framtíð endurskoða gildandi lög um vélstjóranám, þar sem samræmdar væru þessar tvær leiðir og námskeiðin gerð að þætti í náminu í heild, og þá væri líka um leið leyst úr þeim ágreiningi, sem risið hefur í þessu máli. Þessi till. n. er því aðeins bráðabirgðalausn, sem við væntum, að aðilar sætti sig við, einkum ef vænta mætti skjótrar endurskoðunar á l. En vegna þess að ríkisstj. mun nú vera á fundi og getur því ekki gefið loforð um þetta efni, vil ég fara þess á leit við hæstv. forseta, að hann sjái sér fært að fresta umr. [Frh.].